Bæjarins besta - 16.03.1994, Blaðsíða 15
BÍ(AR1NS BESTA • Miðvikudagur 16. mars 1994
15
Vestfiröir:
Fermingarundirbún-
ingur langt kominn
NU er undirbúningsnám fermingarbarna viða a Vest-
fjörðum að nálgast lokastigið en fermingarnar hefjast í bvrjun
apríl. 55 börn fermast á Isafirði, 29 í Bolungarvík, 3 í Súðavík,
8 á Flateyri og 10 á Þingeyri.
A Isafirði eru fjórar fermingar
fyrirhugaðar; ein þann 24. apríl,
tvær 22. maí og hin síðasta
verður 29. maí. Alls fermast
fimmtíu og átta börn á Isafirði
en þar af eru þrír Súðvíkingar.
Hlutfall drengja og stúlkna er
næstum jafnt.
í Bolungarvík verða einnig
fjórar fermingar; annan dag
páska þ.e. 4. apríl, 24. apríl og
I. og 22. maí. Alls verða tuttugu
og sjö börn fermd og eru
drengirnir aðeins níu talsins.
A Flateyri verður haldið í
gamlar hefðir og fermt á Hvíta-
sunnudag. Þar fermast fjórir
drengir og jafnmargar stúlkur
en engin ferming verður í
Mosvallahreppi.
Tíu börn fermast í Þingeyrar-
kirkju, þrír drengir og sjö
stúlkur, en ekki hefur enn verið
ákveðið hvenær.
-hþ.
Frumvarp um breytingar á lögskráningarlögum:
Sjómenn brátl skyldaðir dl
að sækja öryggisfræðslu
FYRIR Alþingi íslendinga liggur nú frumvarp um
breytingar á lögskráningarlögum sjómanna, en í því er m.a.
gert ráð fyrir að sjómenn verði innan ákveðins tíma skyldugir
til þess að sækja öryggisfræðslu til að fá lögskráningu á skip.
Slysavarnaskóli sjómanna
sem er í eigu Slysavarnafélgas
íslands er eini aðilinn hérlendis
sem annast tilskilda fræðslu
fyrir sjómenn. A vegum skólans
eru haldin 54 námskeið á ári og
sækja þau unt 1.000 sjómenn
árlega. Til starfsins hefur skól-
ísafjaröardjúp:
Lítið gaf
á sjó hjá
rækju-
bátunum
INNFJARÐARRÆKJU-
BÁTUNUM sem stunda veið-
ar í ísafjaröardjúpi gekk
freniur erfiðlega að komast á
sjó í síðustu viku vegna veðurs
og var aflinn rýr eftir því.
Fjórir bátar lögðu upp hjá
Bakka hf., í Hnífsdal, samtals
7,3 tonnum. Ritur kom með 1,9
t., Gunnvör 2,21., Guðrún Jóns-
dóttir 1,6 tonn og Finnbjörn
kom með 1,6 tonn. Tíu bátar
lögðu upp hjá Rit hf., samtals
36 tonnum. Árni Ola kom með
3.1 t., Dagný 3,61., Gissur hvíti
3.1 t., Halldór Sigurðsson 2.4
t., Haukur 6,5 t., Húni 1,4 t.,
Neisti 2,4 t., Stapavík 3,8 t.,
Stundvís 4,3 t., og Örn kom
með 3,9 tonn. Örn, Haukur.
Árni Óla og Ver eru búnir með
kvóta sinn en þrír fyrst töldu
bátarnir hafa keypt sér viðbótar
kvóta en Ver er hætt veiðum.
Þrír bátar lögðu upp hjá Bása-
felli í síðustu viku. Aldan kom
með 6,2 t., Bára 1,9 t., og
Kolbrún kom með 8,4 tonn.
Hafrafell, hinn nýi rækjutogari
Kögurfells ht'., dótturfyrirtækis
Básafells hf., er væntanlegur til
ísatjarðar á rnorgun, fimmtudag
og er gert ráð fyrir að skipið
haldi á veiðar um næstu helgi.
Skipstjóri á Hafrafellinu er
Pétur Birgisson.
inn notast við Sæbjörgu, sent
áður hét varðskipið Þór, og
hefur skipið verið víðsvegar um
landið til að fræða sjómenn um
öryggi þeirra.
Verði fruntvarpið að lögum
þurfa þeir sjómenn sem hafa
ekki sótt námskeið skólans að
bæta þar úr, að öðrum kosti fá
þeir ekki lögskráningu.
/ i •
L
A leikskólann Eyrarskjól v/Eyrargötu
vantar starfsmann í Vá stöðu nú þegar.
í síma 3685.
Hiíf íbúðir aldraðra
Einbýlishús til sölu
Til sölu er húseignin Hlíðarvegur 20, ísafirði
sem er einbýlishús á tveimur hœðum ásamt
bílskúr.
Upplýsingar gefur Jakob Ólason í síma
4306 eða 3273.
Frosti
Gunnars
SPAUGARI síðustu viku
Sigurgeir Júhannsson, eggja-
bóndi í Minni-Hlíð í Bol-
ungarvík skoraði á Frosta
Gunnarsson, strætisvagnabíl-
stjóra að koma með næstu sögu
og hér kemur framlag lians.
„Strákureinn ÍReykjavík var
sendur í sveit út á land en kom
mánuði fyrr heima en áætlað
hafði verið. Móðir drengsins
varð mjög undrandi og bað hann
því skýringa á því, hvern vegna
hann kom svona fljótt heim.
Sko, svaraði stráksi. Fyrst
drapst eina beljan og var þá étið
eintómt beljukjöt. Síðan drapst
eini hesturinn og var þá hrossa-
kjöt í allar máltíðir. Nú, þegar
við vorum alveg að verða búnir
með hestinn - dó bóndinn - og þá
fór ég sko heim.”
Og hér er önnur frá Frosta:
„Kona nokkur stakk upp á
því við mann sinn, að öll fjöl-
skyldan færi í húsdýragarðinn í
Laugardal. Eiginmaðurinn taldi
það óþarfa, vegna þess að þau
gætu alveg eins setið heima og
horft á hvert annað. Konan
óskaði nánari skýringa og þá
kvað í bóndanum: Þú ert í laginu
eins og verðlaunakýr, eldri sonur
okkarerdrykkjusvín, sá yngri er
sauður, dóttirin er útigangsmeri,
tengdapabbi er refur og spurðu
svo bara mömmu þína hvort ég
sé ekki asni?”
Eg skora ú vin minn Gunnar
Finnsson, rafvirkja og hrepp-
stjóra Súðavíkur að konui með
nœstu sögu.
Allar nýjustu
myndirnar...
...NÚNA!
16 árastelpaóskareftirvinnu
við parnapössun allan dag-
inn í sumar. Getbyrjað í byrjun
júní. Upplýsingarísíma3823
eftirkl. 18.
Til sölu er Arctic Cat Prowler
vélsleöi, árg. '91. Vel með
farinn og lítið ekinn. Uppl.
gefur Sigurjón í síma 4560 á
daginn og 4277 á kvöldin.
Sundhöll Isaíjaróar.
ísafjöröur:
Sund-
laugin
lokuð til
laugar-
dags
SUNDHÖUL ísafjarðar
var lokað í morgun og stend-
ur lokunin frani á laugardag
en þá verður opið aftur
samkvæmt venjulegum opn-
unartíma að sögn Björns
Helgasonar, íþrótta- og
æskulýðsfulltrúa.
Lokað er vegna uppsetningu
á nýjum tækjum, s.s. hitastilli-
búnaði og fleiru. Einnig verður
skipt um vatnstanka sem komn-
ir eru til ára sinna.
Veðurspádeild Veðurstofu Islands
16. mars 1994 kl. 18:43
Horfur á landinu næsta sólarhring:
Storru'vlðvörurL: Búist er við stormi á Norðurdjúpi.
í dag verður norðlæg átt, víða allhvöss í fyrstu en síðdegis fer að
lægja vestan til. Norðanlands verður snjókoma eða éljagangur en
sunnan heiða verður skýjað með köflum, víða skafrenningur og
jafnvel dálítil él í fyrstu. Seint í dag fer að létta til vestanlands. í
nótt gengur norðanáttin að mestu niður. Á morgun verður austlæg
átt, kaldi eða stinningskaldi um landið vestanvert. Austast á
landinu verður N-kaldi en annars verður fremur hæg breytileg átt.
NA-lands, SV-til og á Vestfjörðum verða él en nokkuð bjart veður í
öðrum landshlutum. Frost verður víðast á bilinu 0-8 stig.
Horfur á landinu föstudag:
Norðlæg átt, strekkingur NA-til en annars fremur hæg.
Norðaustanlands verða él en víðast léttskýjað í öðrum landshlutum.
Frost verður á bilinu 4-10 stig.
Horfur á landinu laugardag:
Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt. Við suðurströndina verða dálítil
slydduél en annars léttskýjað. Hiti verður nálægt frostmarki allra syðst á
landinu en annars verður frost á bilinu 1-4 stig.
Horfur á landinu sunnudag:
Nokkuð hvöss SA-átt og rigning, einkum þó sunnanlands og vestan. Hiti
verður á bilinu 5-7 stig. ^
, >c<
o