Bæjarins besta


Bæjarins besta - 30.06.2016, Page 2

Bæjarins besta - 30.06.2016, Page 2
2 FIMMTudagur 30. JÚNÍ 2016 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma Hildur Einarsdóttir Bolungarvík lést á Hjúkrunarheimilinu í Bolungarvík mánudaginn 27. júní. Útförin fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík, laugardaginn 9 júlí kl 14:00. Einar Benediktsson, María Guðmundsdóttir Halldóra Benediktsdóttir, Sören Pedersen Bjarni Benediktsson, Bjarnveig Eiríksdóttir Ómar Benediktsson, Guðrún Þorvaldsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlegast bent á orgelsjóð Hóls- kirkju í Bolungarvík, rnr. 1176-18-911908, kt.630169-5269. – Sjónarmið – Kristinn H. Gunnarsson Stjórnmálin á Íslandi ein- kennast öðru fremur af van- trausti og vantrú. Efnhags- hrunið 2008 kom þjóðinni algerlega á óvart. Afleiðingin varð reiði og svo vantraust. Stjórnmálaflokkarnir sem eink- um báru ábyrgð á landsmálun- um fyrir hrun voru Sjálfstæðis- flokkur og Framsóknarflokkur. Þeir flokkar fengu báðir afleita kosningu í alþingiskosningun- um 2009 og kjósendur ákváðu að fela Samfylkingu og Vinstri grænum stjórn landsins. Í fyrsta sinn í stjórnmálasögu Íslands fengu tveir vinstri sinnaðir flokkar hreinan meirihluta at- kvæða og meirihluta þingsæta. Þeim flokkum mistókst að standa undir trausti kjósenda og fengu herfilega útreið í síðustu kosningum. Þá snerust málin til fyrra horfs og Sjálfstæðis- flokkur og Framsóknarflokkur fengu góðan þingmeirihluta á nýjan leik. Hrunið traust Þeim hefur ekki gengið vel og hafa um langt skeið verið rúnir trausti þorra kjósenda. Það hefur hins vegar ekki leitt til aukins fylgis Samfylkingar og Vinstri grænna á nýjan leik. Öðru nær. Flokkarnir hafa lengst af varla mælst með það fylgi sem þeir fengu í alþing- iskosningunum 2013 og jafnvel sigið enn neðar. Síðustu mánuði hefur þó fylgi Vinstri grænna lyfst uppfyrir kosningaúrslitin 2013. Það fer ekki á milli mála að vantraust ríkir í garð þeirra. Það sést best á því að Píratar hafa mælst með geysimikið fylgi undanfarið ár og eru enn með mest fylgi allra stjórnmálaflokka. Til viðbótar er svo kominn nýr stjórnmálaflokkur, Viðreisn, sem nýtur fylgis um 10% kjósenda. Úr þessu má lesa nokkuð skýra vísbendingar um vantraust á þá flokka sem hafa farið með völdin frá hruni. Það á við þá alla að eitt eru yfirlýsingar og kosningastefna og annað eru efndir. Það sjást of skýr merki klækjastjórnmála þar sem spilað er með kjósendur. Gefin eru fyr- irheit eða skýr loforð og síðan er snúið við blaðinu eins og ekkert sé og ekki einu sinni talin þörf á því að útskýra vanefndirnar fyrir vonsviknum kjósendum. Núverandi ríkisstjórn missti trúverðugleikann sinn og þá sér- staklega Sjálfstæðisflokkurinn þegar ekki voru efnd skýr og marggefin loforð um að efna til almennrar atkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild að Evrópusambandinu. Forystu- menn flokkanna hafa ekki áttað sig á því að nú á tímum er allt til á netinu og ekkert gleymist. Spilaðar hafa verið yfirlýsingar og ummæli allra ráðherra Sjálf- stæðisflokksins sem gefin voru fyrir kosningar þar sem þeir lofa því að kosið verið um ESB viðræðurnar og svo farið eftir vilja kjósenda hver svo sem hann kynni að verða. Eftir kosningar var snúið við blaðinu og sömu einstaklingar horfðu framan í sjónvarpsvélarn- ar án þess einu sinni að blikna. Kjósendum varð ljóst að í augum þessara ráðherra voru loforðin bara leikaðferð til þess að fá atkvæðin. Eftir kosningarnar kom ekki greina að efna fyrir- heitin því takmarkinu var náð. Þetta birtist kjósendum eins og að það sé sjálfsagt að hafa rangt við í atkvæðaleiknum rétt eins og í knattspyrnunni. En á því er einn munur. Í knattspyrnunni komast menn stundum upp með að blekkja dómarann og þótt það sannist eftir á verður engu breytt. En í stjórnmálunum eru kjósend- ur dómararnir og þeir gleyma ekki svo glatt þegar leikið hefur verið á þá. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn eru að finna fyrir því um þessar mund- ir og ekki eru sjáanleg merki þess að þeir muni sleppa undan refsingu kjósenda í næstu alþing- iskosningum. Nýi flokkurinn Viðreisn er stofnaður mikið til af illa sviknum sjálfstæðismönnum. Heiðarleg stjórnmál Samfylkingin og Vinstri græn- ir sitja líka uppi með ásýnd klækjastjórnmála eftir þeirra stjórnartíð. Í stærsta ágrein- ingsmáli íslenskra stjórnmála síðasta aldarfjórðunginn, fisk- veiðistjórninni, höfðu flokkarnir borið fram skýra stefnu um innköllun og endurúthlutun veiðiheimilda en reyndu ekki einn dag að efna loforð sín og lögðu svo til eftir langa mæðu að kvótaaðallinn héldu kvótanum a.m.k. aldarfjórðung í viðbót. Engar skýringar hafa verið gefnar á þessum vanefndum. Kjósendur flokkanna í kosningunum 2009 eru ekki litnir viðlits og ekki þess verðir að fá skýringar hvað þá afsökunarbeiðni. Allir valdaflokkarnir eru meira og minna tortryggðir í afstöðunni til Reykjavíkurflugvallar þar sem að minnsta kosti einn Skerja- fjörður er milli orða og gerða flokkanna í borgarstjórn Reykja- víkur og í stjórnarandstöðu á Alþingi. Enn eykst tortryggnin þegar litið er til digurbarkalegra yfirlýsinga um stjórnarskrár- breytingar sem sérstaklega eiga að tryggja að fram fari þjóðarat- kvæðagreiðsla um umdeild mál. Fjölmennasta undirskriftasöfn- unin varðar framtíð Reykjavíkur- flugvallar. Engu að síður hafa flokkarnir sem eru í meirihluta í Reykjavíkurborg hunsað þær óskir og jafnvel gert gys að þeim. Ríkisstjórnarflokkunum er í lófa lagið að setja lög um framtíð Reykjavíkurflugvallar þar sem m.a. yrði ákveðið að setja málið í dóm kjósenda. En það hafa þeir ekki gert og munu ekki gera. Flokkarnir virðast vera sam- mála um að aðeins eigi að fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla um mál ef þeirra vilji í mál- inu er undir og þá til þess að koma í veg fyrir tap. Sé hins vegar líklegt að kjósendur vilji aðra niðurstöðu en viðkomandi flokkur þá verður sá flokkur um leið andsnúinn því að hún fari fram. Í þeirra augum er þjóðaratkvæðagreiðsla aðeins tæki til nota í klækjabúskap stjórnmálanna. Valdið er í þeirra augum flokkanna en ekki kjósenda. Kjósendur eru að krefjast þess að flokkarnir hætti að umgangast valdið með þessum hætti. Uppreisnin gegn valdinu er jafnframt uppreisn gegn spillingu, sérhagsmunum og bragðarefum. Það er krafa um heiðarleg stjórnmál. Kristinn H. Gunnarsson Uppreisnin gegn valdinu Mat á umhverfisáhrifum Athugun Skipulagsstofnunar Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði, Árneshreppi Vesturverk hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummats- skýrslu um Hvalárvirkjun í Ófeigsfirði. Kynning á frummatsskýrslu:Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 1. júlí til 29. ágúst næstkomandi á eftirtöldum stöðum: Í Kaupfélagi Steingrímsfjarðar, á Landsbókasafni og hjá Skipulagsstofnun. Frum- matsskýrslan er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar www.skipulag.is. Athugasemdafrestur: Allir geta kynnt sér frummatsskýrsluna og lagt fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 29. ágúst 2016 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 105 Reykjavík eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is. Kynningarfundir: Vakin er athygli á að Vesturverk stendur fyrir kynningarfundi á frummatsskýrslu í félagsheimilinu í Trékyllisvík mið- vikudaginn 6. júlí næstkomandi kl. 14:00 og miðvikudaginn 10. ágúst hjá Verkís, Ofanleiti 2 í Reykjavík, kl 14:00. Allir eru velkomnir. Auglýsingasími bb.is er 456 4560

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.