Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.10.2016, Síða 10

Bæjarins besta - 27.10.2016, Síða 10
10 FIMMTudagur 27. OKTÓBER 2016 Markmið hverrar þjóðar hlýtur að vera það að landsmenn séu það bjartsýnir á framtíð sína að þeir hlakki til að stuðla að áfram- haldandi fjölgun hennar. Við þurfum fólk, hamingjusamt fólk sem treystir því að ákvörðun- in um að eignast barn verði gæfurík. Til þess að ná þessu markmiði hafa þjóðir heimsins farið mjög mismunandi leiðir. Allt frá því að gera næstum ekki Látum ekki endurreisn fjölskyldunnar verða kosningamál í framtíðinni neitt eins og víða í Bandaríkjun- um og til þess að senda öllum nýbökuðum foreldrum byrjun- arpakka með helstu nauðsynjum til að styðja við bakið á þeim eins og í Finnlandi. Sumar hafa engan virðisaukaskatt á bleyjum og barnamat og margar hafa komist að þeirri niðurstöðu að fæðingarorlof sé mikilvægur réttur og stuðningur sem skilar sér til baka á fleiri vegu en einn. Í raun og veru stuðningur við hagsæld þjóðarinnar sjálfrar. Nú er svo komið fyrir okk- ur Íslendingum, sem þó standa mörgum framar í þessum efnum, að fæðingartíðni er að lækka og feður eru ekki að taka fæðingar- orlof til jafns við mæður. Þar tapa allir. Feður verða af hugsanlega mestu gæðastundum sem lífið getur gefið okkur, ungabörn njóta ekki nálægðar við föður sinn og mæður skerða möguleika sína á vinnumarkaði. Og í þokkabót skerðast möguleikar allra kvenna á vinnumarkaðnum. Þetta viljum við laga. Fyrir marga er það svo mikið fjárhagslegt högg að eignast barn að því er frestað eða sleppt. Höggið slær svo samfélagið sem bregst ekki við vandanum til baka með lækkaðri fæðingartíðni, færri einstaklingum til að halda uppi samfélaginu og erfiðleikum, sem við þekkjum nú vel sem fámenn þjóð. Þetta þarf að laga. Píratar stefna að því að lögfesta lágmarksframfærsluviðmið þar sem allir eiga rétt á mannsæm- andi tekjum. Lykilorð eru allir og mannsæmandi. Píratar stefna einnig að því að lágmarks- greiðslur úr fæðingarorlofssjóði og vegna fæðingarstyrks verði aldrei lægri heldur en grunn- neysluviðmið sem Velferðaráðu- neytið gefur út. Nú árið 2016 er þetta grunn- viðmið 224.155 kr. fyrir par í sambúð á höfuðborgarsvæðinu með ungabarn fyrir utan húsnæð- iskostnað. Þegar hann bætist við er ljóst að upphæðin dugar alls ekki fyrir framfærslu og er því ekki mannsæmandi. Í stjórnarskrárfrumvarpi Stjórn- lagaráðs er ákvæði um að konur og karlar skuli njóta jafns réttar í hvívetna. Nýja stjórnarskrá- in er eitt megináhersluatriði Pírata. Foreldrum á að vera úthlutaðir jafn margir mánuðir til fæðingarorlofs ásamt því að geta skipt hluta tímans sín á milli eftir geðþótta. Ísland hefur lang stystan fæðingarorlofstíma allra Norðurlandanna með 9 mánuði á meðan hin löndin hafa 12-16 mánuði. Þar sem erfitt er að fá pláss í daggæslu fyrir ungabörn undir 12 mánaða aldri hafa margir íslenskir foreldrar þurft að dreifa fæðingarorlofsgreiðslum sínum til lengri tíma til þess að geta brúað bilið milli fæðingarorlofstíma og daggæslu. Það leiðir til frekari tekjuskerðingar fjölskyldunnar. Með lengingu fæðingarorlofstím- ans í 12 mánuði þar sem móðir fengi 3 mánuði, faðir 3 mánuði og 6 mánuðir væru sameiginlegir væri auðveldara fyrir foreldra að brúa þetta bil ásamt því að aukinn tími sem fjölskyldan fær saman stuðlar að vellíðan og velferð barns og foreldra. Að því mark- miði stefnum við. Fæðingartíðni Íslendinga er nú sú lægsta síðan að mælingar hófust. Það þarf fólk til að halda úti þjóð. Látum ekki endurreisn fjölskyldunnar verða kosninga- mál í framtíðinni. Förum í þetta núna. Fyrir hönd Pírata í fæðingar- orlofi: Eva Pandora, 1. sæti Pírata í Norðvesturkjördæmi og nýbökuð móðir. Andri Þór Sturluson, 3. sæti Pírata í Suðvesturkjördæmi og þriggja barna faðir. Andri Þór Sturluson. Stígðu fyrsta skrefið og hjálpaðu okkur að meta þörfina fyrir fleiri Leiguheimili Leiguheimili er nýtt kerfi að danskri fyrirmynd sem gerir meðaltekjufólki kleift að komast í 20–30% lægri lang- tímaleigu. Kíktu inn á leiguheimili.ils.is og skráðu þig á póstlistann. Við munum senda þér fréttir af framvindu verkefnisins. Segðu okkur í leiðinni hvar þú vilt búa og hversu marga fermetra þú þarft. Dreymir þig um varanlegt heimili? Leiguheimili eru byggð á lögum um almennar íbúðir. leiguheimili.ils.is Eva Pandora.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.