Bæjarins besta - 27.10.2016, Side 12
12 FIMMTudagur 27. OKTÓBER 2016
Áherslur kjósenda í NV kjördæmi
Vinstri græn:
Félagslegur rekstur heilbrigðis-
þjónustunnar er grundvallar-
atriði. Einkarekstur í ágóðaskyni
á ekki heima í velferðarþjón-
ustunni.
Auka þarf framlög ríkisins
til heilbrigðisþjónustu þannig
að þau verði sambærileg við
það sem gerist á hinum Norður-
löndunum.
Ljúka þarf við byggingu nýs
Landspítala við Hringbraut sem
fyrst og efla um leið sjúkraflutn-
inga og sjúkraflug um land allt.
Stefnt skal að því að öll heil-
brigðisþjónusta á sjúkrahúsum
og heilsugæslustöðvum verði
gjaldfrjáls. Byrjað verði á að
lækka kostnað vegna barna,
öryrkja og aldraðra og þjónustu
göngudeilda sjúkrahúsanna.
Styrkja þarf heilsugæsluna
þannig að hún verði alltaf fyrsti
viðkomustaðurinn og koma á
valfrjálsu tilvísanakerfi.
Forgangsverkefni er að sál-
fræðiþjónusta verði hluti af
almennri heilbrigðisþjónustu.
Fjölga þarf hjúkrunarrýmum og
tryggja góða þjónustu við okkar
elstu borgara.
Sjálfstæðisflokkur:
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
lagt áherslu á uppbyggingu í
heilbrigðismálum á þessu kjör-
Samkvæmt könnun á bb.is í liðinni viku leggja lesendur vefsins fyrst og fremst áherslu á heilbrigðis- og samgöngumál fyrir kosningarnar en 33% svarenda
nefndu heilbrigðismál sem áhersluatriði en 27% samgöngumál. Næst á eftir voru atvinnumál sem voru hugleikin 12% svarenda en 11% þeirra lögðu áherslu á
lýðræði, stjórnarskrá og spillingu. 1 – 5% nefndu mennta-, umhverfis-, menningar- og utanríkismál. Bæjarins besta hefur nú boðið öllum oddvitum framboða
hér í NV kjördæmi að upplýsa um stefnu sína og áhersluatriði í þessum fjórum málaflokkum í blaðinu og fara svör þeirra hér á eftir.
tímabili, um land allt. Það er
grundvallarbreyting frá fyrra
kjörtímabili. Ef bornar eru
saman tölur frá þeim tíma,
fækkun starfsmanna almennt í
opinberum rekstri, þá var fækkun
starfsmanna á svið heilbrigðis-
þjónustu 7,3% hjá undirstofnum
heilbrigðisráðuneytisins á móti
4,2% sem er meðaltalsfækkun.
Á nýju ári tökum við upp nýtt og
sanngjarnt greiðsluþátttökukerfi
þar sem þak er sett á kostnað
einstaklinga fyrir heilbrigðis-
þjónustu. Sjálfstæðisflokkurinn
í NV kjördæmi leggur áherslu á
eflingu þeirra stofnana sem þar
eru. Við leggjum sérstaklega
áherslu á fæðingarþjónustu og
mæðraeftirlit og eflingu þess.
Samfylking:
Heilbrigðismál eru forgangs-
mál jafnaðarmanna. Við vilj-
um efla Heilbrigðisstofnun
Vestfjarða í verki og standa
vörð um þjónustuna á öllu svæð-
inu, bæði á suðurfjörðunum og
norðanvert. Með áform um mikil
umsvif í nýjum greinum atvinnu
verður þetta algjör forsenda.
Við munum beita okkur fyrir
endurreisn heilsugæslunnar og
vinna að því að menntunarmál
heilbrigðisstétta fyrir lands-
byggðina fái forgang, t.d. að
undirsérgrein heimilislækninga,
héraðslækningar fari af stað skv.
reglugerð. Sömuleiðis að svipuð
sérgrein á sviði hjúkrunarfræði
verði efld. Við krefjumst þess
að sérfræðiþjónusta verði flutt
til íbúanna með markvissum
hætti og viljum að sjúkrahúsið
nýti viðbúnað sinn til þátttöku
í styttingu biðlista á landsvísu.
Viðreisn:
Fjárframlög til heilbrigðismála
í fjórðungnum eru mun lægri
en til sambærilegra stofnana
annarsstaðar á landinu. Auka þarf
fjárframlög til rekstrarins svo
HVEST geti staðið við að sinna
hlutverki sínu af sóma. Stefnu-
leysi hefur verið vandamál í kerf-
inu; réttindi sjúklinga eru óskýr,
markmiðin óljós og eftirfylgni og
gæðaeftirliti verulega ábótavant.
Hér á ég ekki við stofnunina staka
heldur heilbrigðiskerfið í heild.
Þetta var niðurstaða mín þegar
ég gerði sem heilsuhagfræðing-
ur forúttekt a stofnuninni fyrir
nokkrum misserum. Til viðbótar
er mikilvægt að loforðum um
fjárútlát fylgi raunhæfar lausnir
við fjármögnun. Myntráðsleið og
vaxtalækkun samhliða vandaðri
sölu ríkiseigna eru hér tillögur
Viðreisnar.
Píratar:
Þegar hugað er að langtíma
heilbrigðisáætlun álykta Píratar
að hafa skuli velferð sjúklinga
og annarra þjónustuþega að
meginmarkmiði og auka skuli
á þjónustu við landsbyggðina,
sjálfstæði rekstrareininga og
gagnsæi í málefnum tengdum
heilbrigðisþjónustunni. Einnig
skal huga að auknu álagi vegna
fjölda ferðafólks um landið.
Meðferðarúrræði skulu teljast
hluti af heilbrigðisþjónustu, svo
sem sjúkraendurhæfing, með-
ferðir við fíkn og öldrunarþjón-
usta. Einnig skuli sálfræði- og
tannlæknaþjónusta falla undir
almenna heilbrigðisþjónustu.
Píratar stefna að því að heil-
brigðisþjónusta verði gjaldfrjáls
fyrir alla landsmenn sem og
lyfjakostnaður vegna langvinnra
sjúkdóma. Endurmenntum heil-
brigðisstarfsfólks skal vera með
besta móti, m.a. með því mark-
miði að byggja upp lýðheilsu og
forvarnarstarf á öllum sviðum
mannlífs.
Framsókn:
Framsóknarmenn vilja vinna
að heilbrigðisáætlun fyrir Ísland.
Þar þarf að skilgreina hvaða
þjónustu veita eigi á Landspít-
ala og hvaða þjónustu eigi að
veita á heilbrigðisstofnunum
víða um landið. Við gerð heil-
brigðisáætlunar skal taka mið
af raunverulegum þörfum og
horft til samgangna, fjarlægða,
aldurssamsetningar íbúa og
o.s.frv. Þessa áætlun þarf að
vinna í samráði við heimamenn
á hverjum stað, þeirra sem þekkja
til aðstæðna. Fjárveitingar til
málaflokksins þurfa að taka mið
af þessum þörfum. Með þessum
hætti væri fjármagni skipt með
réttlátari hætti og aukin þjónusta
væri í boði á heilbrigðisstofn-
unum á landsbyggðinni. Auk
þessa vilja Framsóknarmenn
að nýr Landspítali rísi hratt á
nýjum stað.
Björt framtíð
Eitt grundvallarviðfangsefni
heilbrigðiskerfisins er að tryggja
nægan fjölda af hæfu starfsfólki.
Menntun og þjálfun skiptir
hér máli. Laun þurfa að vera
samkeppnishæf og starfsum-
hverfið gott. Því miður vantar
talsvert upp á það. Björt framtíð
vill breyta því, m.a. með því að
tryggja að á hverjum tíma sé til
vönduð mannaflaspá fyrir heil-
brigðisstarfsstéttir. Björt framtíð
vill efla heilsugæsluna sem fyrsta
viðkomustað í heilbrigðiskerfinu
og stórauka þjónustuna þar,
m.a. með auknu aðgengi að
sérfræðingum og aukinni þjón-
ustu. Við teljum að unnt sé að
bæta þjónustu og hagræða með
því að nýta betur þá þekkingu
og reynslu sem hinar fjölmörgu
starfsstéttir búa yfir.
Stefna og áhersluatriði í heilbrigðismálum