Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.10.2016, Blaðsíða 13

Bæjarins besta - 27.10.2016, Blaðsíða 13
FIMMTUdagUr 27. OKTÓBER 2016 13 Vinstri græn: Vinstri græn leggja áherslu á markvissa uppbyggingu í vega- málum með sérstakri áherslu á almennt viðhald og héraðs- og tengivegi og að lokið sé uppbyggingu þjóðvega á þeim svæðum sem enn eru lélegir malarvegir og unnið sé eftir markvissri jarðgangnaáætlun. Markaðir tekjustofnar þurfa að renna óskipt til samgöngumála. Stefna og áhersluatriði í samgöngumálum Umhverfissjónarmið þarf að hafa að leiðarljósi við allar ákvarðanir í samgöngumálum þar sem mikil tækifæri eru í samdrætti í losun gróðurhúsa- lofttegunda í þeim málaflokki. Hrinda þarf af stað stórátaki í þrífösun rafmagns í dreifbýli og gera tímasetta áætlun um að ljúka háhraðanettengingu um allt land. Unnið verði að því að opna fleiri hlið inn til landsins til að auka möguleika fleiri svæða til að uppskera arð af ferðaþjónustu. Sjálfstæðisflokkur: Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að samgöngufram- kvæmdir eru eitt brýnasta byggðamál Vestfjarða. Nú eru komin í útboð framkvæmdir við göng úr Dýrafirði í Arnarfjörð. Þá er lagning og endurbygging á heilsársvegi milli norður- og suðursvæðis Vestfjarða á fram- kvæmdaáætlun. Veglagning um Gufudalssveit og óvissa um hana er óþolandi. Þar er nú vonast eftir niðurstöðu innan tíðar og er það í raun vonum seinna. Nú sér fyrir endann á stærstu úrbótum í fjarskiptamálum, seinni ára, sem Vestfirðir hafa lengi þurft að bíða eftir. Hringtenging ljósleiðara um Vestfirði er að ljúka. Þá renna upp nýir tímar í möguleikum sem byggja á nútíma fjarskiptum. Samfylking: Samgöngumál eru hagsmuna- mál allra Vestfirðinga og þar þarf að berjast fyrir flýtingu á ýmsum sviðum. Ljúka þarf framkvæmdum í Gufudalssveit á sunnanverðu svæðinu og vinda sér síðan af krafti í Dýrafjarðar- göng og vegabætur tengdar þeim. Með þessu opnast margvíslegir möguleikar, bæði í atvinnu- og mannlífi. Setja verður á dag- skrá í því sambandi áform um staðsetningu flugvallar fyrir Vestfirðinga sem gegnt geti hlutverki millilandaflugs, bæði með sérgreinda hópa ferðamanna og fiskflutninga beint á markað. Efni úr nýjum veggöngum má nýta til að bæta flugbraut sem fyrir er. Víða þarf að stórbæta núverandi vegakerfi, sérstaklega þar sem nánast er um einbreiða vegi að ræða. Viðreisn: Verkefnin eru mörg og því vill Viðreisn fjármagna við- bótarframlag til samgöngubóta með auðlindagjöldum sem tengd eru úr landshlutunum. Það er fagnaðar efni að Dýrafjarðargöng séu komin í útboð og Dynjandis- heiði á réttri leið. Við viljum efla samgöngur og auka samgöngu- öryggi í flugi með því að skoða mögulega nýja framtíðarlegu flugvallar við norðanvert Djúp, eða ná því markmiði með öðrum leiðum. Minni flugtíðni á Ísafjörð eftir flugvélaskipti Flugfélags Íslands er nefnilega áhyggjuefni. Víða þarf að sinna nauðsyn- legu viðhaldi vega, eins og í Seyðisfirði. Fyrir liggur áætl- un um ljósleiðaravæðingu, en þar hefur gengið allt of hægt. Ánægjulegt var að sjá rannsókna- fé úthlutað fyrir Álftafjarðargöng enda göngin augljós kostur í röðinni. Gera þarf stórátak í að setja upp hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla um allan fjórðung svo bolvíski Orkubúsmaðurinn verði ekki eini Vestfirðingurinn á rafbíl næstu tíu ár líka. Píratar: Til þess að það sé raunverulega hægt að búa um allt land þarf grunnþjónusta að vera til staðar fyrir alla landsmenn. Píratar vilja að tryggðar verði viðun- andi almenningssamgöngur til allra þéttbýlisstaða á landinu. Samgöngustefna Pírata er ekki fullmótuð en ætíð skal gera ráð fyrir að breytingar séu gerðar í samráði við heimamenn og að ákvörðunartaka sé í höndum nærsamfélagsins. Framsókn: Á síðasta kjörtímabili var áhersla lögð á að ná niður skuldum ríkissjóðs. Þannig náði ríkisstjórn undir forystu Fram- sóknarflokksins gríðarlegum árangri í ríkisfjármálum. Skuldir ríkisins hafa ekki verið minni í áratugi og nú er fer miklu minna fjármagn í að borga skuldir og vaxtagjöld. Svigrúm til upp- byggingar er því til staðar og nú komið að því að setja milljarða í samgöngubætur. Dýrafjarðar- göng eru í útboði og samkvæmt samþykktri samgönguáætlun er áætlað fjármagn í að klára Dynjandisheiði, Vestfjarðarveg 60 og hefja rannsóknir vegna Álftafjarðarganga. Halda verður áfram með vega- bætur í Árneshreppi og þá vinnu þarf að vinna með heimamönn- um, þeirra sem þekkja til að- stæðna.. Einnig þarf að tryggja flugsamgöngur vestur á firði, svo að eitthvað sé nefnt. Björt framtíð Björt framtíð vill að sam- gönguáætlun verði alltaf höfð til grundvallar uppbyggingu og viðhaldi á samgöngukerfinu svo hægt sé að forgangsraða verk- efnum og leggja raunhæft mat á árlegan kostnað við viðhald og nýlagningu vega og flugvalla eða annarra samgöngubóta. Álag á vegakerfið hefur til að mynda aukist gríðarlega undanfarin ár en viðhald á því hefur verið al- gerlega úr takti. Við viljum efla almenningssamgöngur og gera þær að raunverulegum valkosti. Framlög til samgöngumála sem hlutfall af vergri landsfram- leiðslu hafa þar að auki lækkað frá árinu 2013. Við kunnum ekki að meta svona vinnubrögð. Framtíðarsýnin þarf að vera skýr svo hægt sé að gera langtímaá- ætlanir sem taka til kostnaðar og framkvæmdahraða. Það er mikilvægt að vinna upp töpuð ár í viðhaldi og nýbyggingu vega með átaki í vegagerð. Holur í Arnarfirði. Mynd: Drífa K. Garðarsdóttir. Frá gerð Vestfjarðaganga. Mynd: Vegagerðin.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.