Bæjarins besta - 27.10.2016, Qupperneq 14
14 FIMMTudagur 27. OKTÓBER 2016
Vinstri græn:
Tryggja þarf að lægstu laun
dugi fyrir grunnfram færslu, að
vinnuvikan styttist án kjara-
skerðingar og að upphæðir al-
mannatrygginga fylgi launa-
þróun.
Mikilvægt er að koma í veg
fyrir mansal, misnotkun á vinnu-
afli og félagsleg undirboð með
samstarfi við verkalýðshreyf-
inguna.
Atvinnulíf á Íslandi þarf að
byggja upp í sátt við umhverfi og
án þess að gengið sé á hagsmuni
komandi kynslóða. Þess vegna
er mikilvægt að fjárfesta í rann-
sóknum og nýsköpun.
Endurskoða þarf stuðnings-
kerfi atvinnulífsins. Meginmark-
miðið með slíkri vinnu yrði að
stuðla að fjölbreyttu atvinnulífi
í sátt við samfélag og auðlindir.
Sjálfstæðisflokkur:
Á Vestfjörðum eru spennandi
tímar í atvinnumálum. Þar er raun
af mörgu að taka, en fyrst nefn-
um við tækifæri sem eru tengt
raforkuframleiðslu og fiskeldi.
Nú liggur fyrir að á Vestfjörðum
getur orðið innan fárra ára mikil
raforkuframleiðsla. Iðnaðarráð-
herra hefur nýlega stuðlað að
því að bygging á tengivirki geti
orðið með þeim hætt að virkjun
Hvalá, Austurgilsvirkjun og
fleiri virkjanakostir geta orðið
að veruleika. Orkuframleiðsla
og atvinnu uppbygging á sviði
orkunýtingar eru kostir sem nú
blasa við íbúum á Vestfjörðum.
Fiskeldið er þegar orðin kjölfesta
atvinnulífssins og hefur þegar
skapað verðmæti og atvinnu og
á tækifæri. ferðaþjónusta á mikið
inni og gera framtíðina mjög
spennandi. Það er okkar að grípa
þessi tækifæri. Því er mikilvægt
að samgöngumál og fjarskipti
ásamt annari grunnþjónustu sé
tryggð.
Samfylking:
Atvinnuhættir tengdir mat-
vælaframleiðslu hafa verið
aðalsmerki Vestfirðinga frá
aldaöðli og kista hafsins verið
þeim drjúg. Greinin stendur
fjórðungnum næst og jafnaðar-
menn vilja auka möguleika til
uppbyggingar í sjávarútvegi á
svæðinu. Nýsköpun tengd sjáv-
arútvegi hefur skotið rótum og
gefur góð fyrirheit. Áform eru um
aukningu laxeldis sem þegar er
hafið. Jafnaðarmenn studdu með
afgerandi hætti framkvæmdir
sem þegar eru hafnar á suður-
fjörðunum og styðja það áfram
við Djúp enda krafa gerð um að
vinna málin í sátt við umhverfið
og af fagmennsku og ábyrgð. Í
ferðaþjónustu eiga Vestfirðingar
dauðafæri. Jafnaðarmenn munu
stuðla að eflingu þessarar at-
vinnugreinar með eflingu tekju-
stofna sem renni til sveitarfélaga.
Viðreisn:
Sjávarútvegsmál eru stærsta
atvinnumálið á norðanverðum
Vestfjörðum. Eins og ég fjalla
um í grein minni sem birtist hér
í blaðinu, þá er uppboðsleiðin
réttlát til að taka ákvörðun auð-
lindagjalds úr höndum stjórn-
málamanna. Óháð upphæð auð-
lindagjaldanna, er lykilatriði að
arðinum af auðlindinni sé varið
meðal annars til að styðja þær
byggðir sem hafa orðið undir í
hagræðingu í sjávarútvegi.
Styrkja þarf innviði alla og
styðja við nýsköpun sem nýtir
kosti nærumhverfisins. Bíldu-
dalur er hér gott dæmi. Fiskeldi
verður að vera í sátt við umhverf-
ið. Nærumhverfið verður bæði
að hafa tekjur og áhrifavald á
uppbyggingu í geiranum. Mögu-
lega erfðablöndun við villta
stofna þarf að taka alvarlega,
og hafa eftirlit og rannsóknir í
heimabyggð.
Píratar:
Ákveðið hlutfall skatta af
rekstri og störfum fyrirtækja skal
renna beint til þess sveitarfélags
þar sem starfsemi eða verslun fer
fram. Við það myndast hvati til
þess að byggja upp atvinnustarf-
semi í sveitarfélögum á lands-
byggðinni en stefna Pírata er að
byggja upp sjálfstæð sveitarfé-
lög. Til þess að sveitarfélögin
geta verið sjálfstæð þá verða
þau einnig að vera sjálfbær fjár-
hagslega. Til þess að geta orðið
sjálfbær fjárhagslega þá verður
að rjúfa fátækragildru þeirra og
búa til hvata til uppbyggingar
sem leiðir til tekna.
Framsókn:
Sjávarútvegur, landbúnaður
og iðnaður eru grundvallarat-
vinnugreinar kjördæmisins. Eyða
þarf óvissu um rekstrarum-
hverfi þessara greina og því
hafna t.d. Framsóknarmenn
uppboðsleið sem kæmi verst
út fyrir litlar og meðalstórar
útgerðir og við teljum óeðlilegt
að sjávarútvegur einn greiði
auðlindagjald. Auðlindagjald
af öllum auðlindum okkar á
að renna að hluta til sveitarfé-
laganna og að hluta til ríkisins.
Í samstarfi við Landsnet og
Orkustofnun unnum við að
því að tryggja tengipunkt fyrir
Hvalár- og Austurgilsvirkjanir.
Hringtengja þarf orkuflutning
um vestfirði í framhaldinu. Þá
munum við sjá í nýrri byggða-
áætlun tillögu okkar um lægra
tryggingagjald fyrirtækja á
landsbyggðinni.
Stefna og áhersluatriði í atvinnumálum
Sirrý kemur til Bolungarvíkur. Mynd: Hafþór Gunnarsson.