Bæjarins besta - 27.10.2016, Page 17
FIMMTUdagUr 27. OKTÓBER 2016 17
Mikill efnahagslegur árangur
hefur náðst á kjörtímabilinu sem
er að líða, með tilheyrandi kaup-
máttaraukningu alls almennings
og bættum lífskjörum fólks.
Uppbygging innviða og styrking
á grunnþjónustu ríkisins er hafin
á traustum grunni. Sjálfstæðis-
flokkurinn leggur því verk sín
stoltur í dóm kjósenda í komandi
kosningum og ef vel er haldið á
spilum eru allar forsendur fyr-
ir áframhaldandi lífskjarasókn
landið um kring.
Stjórnarskrá og ESB
En stór grundvallarmál eru
jafn framt undir í þessum alþingis-
kosn ingum. Vinstriblokkin boðar
stór felldar breytingar á stjórnar-
skránni og aðild að ESB. Það eru
ekki lítil og krúttleg kosninga-
loforð heldur tillögur sem fela í
sér afsal á fullveldi þjóðarinnar
og minni áhrif landsbyggðarinn-
ar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
ávallt staðið vörð um sjálfstæði
þjóðarinnar og hafnar aðild að
ESB nú sem endranær. Þá eru
engin haldbær rök fyrir því að
kollvarpa stjórnarskránni nema
ef tilgangurinn sé einmitt að raska
valdajafnvægi fulltrúalýðræðisins
Á réttri leið
og grafa undan borgaralegum
réttindum. Sjálfstæðisflokkurinn
boðar yfirvegaðar breytingar og
lagfæringar á tilteknum atriðum
stjórnarskrárinnar, eins og ákvæði
um þjóðaratkvæðagreiðslu, í
víðtækri sátt. Ef leggja á þessi tvö
mál til grundvallar í kosningunum
þá eru valkostir kjósenda nokkuð
skýrir.
Atvinnutækifæri
Fleira er undir í komandi
kosningum sem varða hagsmuni
landsbyggðarinnar með beinum
hætti. Uppboðsleið í sjávarútvegi
er ávísun á aukna skattheimtu og
gjaldþrot lítilla og meðalstórra
útgerða á Vestfjörðum og víðar
með tilheyrandi atvinnuleysi og
samþjöppun í greininni. Harkaleg
uppstokkun á landbúnaðarkerf-
inu, sem sumir flokkar boða,
mun hafa sambærileg neikvæð
áhrif á byggðafestu í sveitum
fjórðungsins.
Leiðin fram á við felst ekki í
því að kollvarpa grunnatvinnu-
vegum landsbyggðarinnar heldur
verður að byggja á grunninum
sem fyrir er. Tækifærin eru til
staðar á grundvelli sjálfbærrar
nýtingar auðlinda. Uppbygging
ferðaþjónustunnar og fiskeldisins
á Vestfjörðum er til vitnis um það.
Mestu skiptir að fólk hafi svigrúm
og athafnafrelsi til að vinna verð-
mæti úr þeim auðlindum sem hér
er að finna og fái notið afrakstur
vinnu sinnar í stað þess að fjár-
munirnir leki af svæðinu í formi
of hárra skatta og vaxta. Hluti af
því er að sveitarfélög fái tekjur í
samræmi við uppbyggingu á ýmis
konar aðstöðu. Sjálfstæðisflokk-
urinn leggur ríka áherslu á að þessi
tækifæri til atvinnuuppbyggingar
verði nýtt með skynsamlegum
Nú verður líka opið
á laugardögum
Kynntu þér nýjan og lengri opnunartíma
Vínbúðarinnar á Patreksfirði.
vinbudin.is
mán-fim 14-18
fös 13-19
lau 11-14
NÝR OPNUNARTÍMI FRÁ 1. NÓVEMBER
Teitur Björn Einarsson.
Rekstur Íslenska kalkþörungafélagsins er í stöðugri framþróun.
Félagið framleiðir hágæða fóðurbæti og fæðubótarefni úr
kalkþörungum úr Arnarfirði og er árleg framleiðsla félagsins um
50 þúsund tonn af mismunandi kalkafurðum. Eigendur félagsins
eru frumkvöðlar á sínu sviði sem einkum vinna að þróun ýmissa
afurða úr kalkþörungum fyrir fæðubótarmarkað og til sýrustill-
ingar og vatnshreinunar á mörkuðum víða um heim.
Eru framtíðarmöguleikar því miklir.
Í boði er krefjandi starf í fallegu umhverfi Vestfjarða þar sem fjöl-
margar af helstu náttúruperlum landsins eru í næsta nágrenni.
Á Bíldudal er vaxandi atvinnulíf ásamt gróskumiklu mannlífi
þar sem íbúatalan fer hækkandi. Á Bíldudal er góður leik- og
grunnskóli ásamt íþróttaaðstöðu auk þess sem sundlaugar og
heilsugæsla eru í næsta nágrenni ásamt tækifærum til marg-
víslegra vetraríþrótta.
Kynntu þér málið
Allar nánari upplýsingar veitir framleiðslu-
stjóri fyrirtækisins, Jóhann Magnússon, í
síma 863 7558. Einnig má senda fyrirspurnir
á johann@iskalk.is
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist Íslenska
kalkþörungafélaginu ehf. á sama netfang,
merkt Viðhaldsstjóri fyrir 12. nóvember.
Viðhaldsstjóri óskast á Bíldudal
Í boði er krefjandi og skemmtilegt starf hjá traustu og vel reknu fyrirtæki
Íslenska kalkþörungafélagið leitar að hæfum, áhugasömum, metnaðarfullum og lífsglöðum einstaklingi
í starf viðhaldsstjóra í verksmiðju félagsins á Bíldudal. Viðkomandi þarf að vera árangursmiðaður, sýna
frumkvæði og hafa áræði til að takast á við krefjandi starf sem felst í umsjón með eftirliti og viðhaldi á
vélbúnaði verksmiðjunnar ásamt vinnuvélum sem notaðar eru á vinnusvæðinu.
Hlutverk viðhaldsstjóra
• Þú tekur þátt í gerð áætlana og tekur þátt í undirbúningi og framkvæmd breytinga og viðhalds á
vélbúnaði verksmiðjunnar og vinnuvélum.
• Þú gegnir mikilvægu hlutverki varðandi kröfur um öryggi og umhverfismál enda eru öryggismál og
velferð starfsfólks í forgangi.
• Þú hefur yfirumsjón með skipulagi og verkstjórn á verkstæði.
• Þú vinnur að stöðugum umbótum og fyrirbyggjandi viðhaldi.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Menntun, reynsla og hæfni sem nýtist í starfi.
• Reynsla af sambærilegu starfi er kostur en ekki krafa.
• Reynsla af stjórnun og mannaforráðum er kostur en ekki krafa.
• Góð íslensku- og enskukunnátta er nauðsynleg.
• Lipurð í mannlegum samskiptum er nauðsynleg.
• Áhugi og metnaður fyrir gæða-, umhverfis- og öryggisstjórnun.
hætti og öll opinber stefnumörkun
miði að því að búa í haginn til þess
að svo megi verða.
Uppbygging á Vestfjörðum
Uppbygging samfélagslegra
innviða eykur byggðafestu og
bætir búsetuskilyrði. Það er ekki
ofsögum sagt að samgöngufram-
kvæmdir eru eitt brýnasta byggða-
mál á Vestfjörðum og að þeim
málum hefur verið unnið vel
og ötullega á kjörtímabilinu.
Dýrafjarðargöng eru komin á
útboðsstig og endurbygging
heilsársvegar milli norður- og
suðursvæðis Vestfjarða er inni í
framkvæmdaáætlun ásamt því að
Álftafjarðargöng eru nú komin á
undirbúningsstig. Uppbygging
fjarskiptakerfis á Vestfjörðum
er að ljúka og markverðum
áfanga hefur verið náð í upp-
byggingu raforkukerfisins með
nýjum tengipunkti við innanvert
Ísafjarðardjúp.
Saman mynda allir þessir
þættir, ásamt fyrrgreindum at-
vinnutækifærum, raunveruleg
sóknarfæri fyrir fólk til að bæta
hér lífskjör til muna og byggja upp
gott samfélag. Kerfiskollsteypur
og endurræsingar eru óþarfar.
Um það kjósa Vestfirðingar öðru
fremur næsta laugardag.
Teitur Björn Einarsson.
Höfundur skipar 3. sæti á
lista Sjálfstæðisflokksins í Norð-
vesturkjördæmi