Bæjarins besta - 27.10.2016, Blaðsíða 18
18 FIMMTudagur 27. OKTÓBER 2016
Óttarr Proppé
þingmaður
G. Valdimar Valdemarsson
framkvæmdastjóri
xA
K J Ó S T U
B J A R T A
F R A M T Í Ð
M E I R I
B J A R T A F R A M T Í Ð
M I N N A F Ú S K
Tökum byggðamálin föstum tökum
og mótum skýra stefnu til framtíðar.
Ekki meiri bútasaum
og tilviljanakenndar ákvarðanir.
Svona er Björt framtíð
Fjölbreytt og spennandi
Ísland
Björt framtíð er málsvari
fjölbreytni, á öllum sviðum.
Byggjum upp ferðaþjónustuna,
skapandi greinar, rannsóknir
og þróun, grænan iðnað og alls
konar nýsköpun. Eflum skóla-
starf og menningarlífið og gerum
Ísland að skemmtilegri stað til að
vera á, uppfullum af tækifærum.
Leyfum fólki að flytja til okkar
og gerast nýir Íslendingar. Fáum
unga fólkið heim. Treystum fólki
til að skapa sín eigin tækifæri
í traustu, opnu og alþjóðlegu
samfélagi.
Engin manneskja er útundan
Stöndum mannréttindavakt-
ina, alltaf, fyrir börn, fyrir fatlað
fólk, fyrir innflytjendur, fyrir
konur, fyrir karla, fyrir ríka, fyrir
fátæka. Hjálpum þeim mest sem
virkilega þurfa aðstoð, til þess
að lifa sjálfstæðu lífi, til þess að
öðlast þak yfir höfuðið, til þess
að ala upp börnin sín. Endur-
reisum heilbrigðiskerfið, með
stórbættri heilsugæslu um land
allt, öldrunarþjónustu, lýðheilsu
og forvörnum, nýjum Landspít-
G. Valdimar Valdemarsson.
ala, betra gæðaeftirliti og miklu,
miklu minni greiðsluþátttöku
sjúklinga.
Ábyrg langtímahugsun
Verndum umhverfið, björgum
jörðinni, verum græn. Hugsum
fram í tímann. Frestum ekki
vandamálum. Innviðir Íslands
eru að drabbast niður, vegirnir,
skólarnir, spítalarnir. Samt er
góðæri. Í stað þess að fjárfesta
í innviðum hefur verið bruðlað
með fé. Í stað þess að afla tekna
af auðlindum okkar til samfélags-
legra verkefna, eru þær færðar
fáum á spottprís. Þannig gerir
Björt framtíð ekki. Við búum í
haginn.
Yfirveguð stjórnmál
Tölum saman, segjum satt.
Virðum hvort annað. Góð mál
verða betri ef fleiri koma að þeim.
Skoðanir, þekking og kunnátta
fólks með alls konar bakgrunn og
menntun eru fjársjóður. Upplýs-
ingar eru gull. Björt framtíð þorir
að leiða hin stærstu og erfiðustu
deilumál til lykta með gögnum,
rannsóknum, opnu samtali og
lýðræðislegum aðferðum. Við
höfum okkar sannfæringu og
stöndum á henni. En við höfum
líka kjark til að hlusta á aðra.
Öflug sveitarfélög
Björt framtíð telur brýnt að far-
ið verði ofan í saumana á tekju-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga.
Ýmis verkefni sem sveitarfélögin
hafa tekið yfir hafa haft í för með
sér meiri kostnað en fyrirhugað
var. Skuldastaða margra sveitar-
félaga er verulegt áhyggjuefni.
Björt framtíð telur svigrúm til
að endursemja um tekjuskiptingu
þar sem gert sé ráð fyrir því að
hagur ríkisins muni vænkast
verulega á næstu árum en staða
sveitarfélaganna standa óbreytt.
Einnig er mikilvægt að halda
aftur af fjárfestingaráformum
hins opinbera og/eða forgangs-
raða þeim til að koma í veg fyrir
spennu í hagkerfinu.
Arður af auðlindum
Ísland er ríkt af auðlindum.
Endurnýjanlega orkan, ósnortna
náttúran og fiskurinn í sjónum
eru okkur gjöful. Umfram allt
þurfum við að passa upp á sjálf-
bærnina við nýtingu á þessum
auðlindum. Fyrir umhverfið
og fyrir komandi kynslóðir.
Stefna Bjartrar framtíðar í auð-
lindamálum er því samtengd
umhverfisstefnunni. Við eigum
að auka virðisaukann sem við
fáum með nýtingu auðlindanna.
Ekki með því að nýta meira,
heldur að nýta betur. Það er með
ólíkindum að ekki hafi farið fram
opinber stefnumótun til að inn-
heimta í auknum mæli tekjur af
auðlindanotkun. Gjald fyrir afnot
af sjávarauðlindum er í mýflugu-
mynd og hefur verið lækkað.
Tekjur af orkusölu geta aukist
verulega ef látið verður af þeirri
stefnu sem ríkt hefur um árabil að
stórkaupendum í stóriðju sé seld
orkan á allt of lágu verði. Þá er
náttúra Íslands viðkvæm auðlind
sem ferðamenn vilja njóta. Það
er fullkomlega eðlilegt að hið
opinbera sæki sér umtalsverðar
tekjur til þessarar auðlindanotk-
unar sem hægt væri að nýta til
nauðsynlegrar uppbyggingar á
innviðum ferðaþjónustu.
G. Valdimar Valdemarsson