Bæjarins besta


Bæjarins besta - 14.09.1994, Síða 6

Bæjarins besta - 14.09.1994, Síða 6
Grímur Jónsson flugumsjónarmaður hættir eftir 30 ára starf ,,ÞAÐ ER jafngott að hætta núna meðan maður hefur sæmilega heilsu og mér finnst betra að taka sjálfur ákvörðun um starfs- lok en að bíða eftir því að einhverannartaki hanafyrir mig. Þó ég sinni starfinu á flugvellinum ekki lengur, þá er ég ekki dauður enn og hef ekki hugsað mér að setja tærnar upp í loft á næstunni,” segir Grímur Jónsson, loftskeytamaður, flugumferðarstjóri og mála- flutningsmaður með meiru en hann hefur nú hætt störfum á ísafjarðarfiugvelli eftir að hafa unnið þar í þrjátíu ár. Síðasti /oft- skeyta- maðurirtn Grímur Jónsson kom til ísafjarðar árið 1964 en þar áður hafði hann meðal annars unnið sem loft- skeytamaóur á togurum í ellefu árog hjá Landhelgis- gæslunni í sex ár. ,,í þá daga var nauðsynlegt að hafa loftskeytamenn um borð og þetta starfsheiti er alveg horfiö í dag vegna tæknibreytinga. Það eru til að mynda fáir sem kunna mors í dag og þær upp- lýsingar sem fóru í gegnum hendur loftskeytamanna komatil skipstjórnarmanna eftiröðrum leiðum. Það gat verið nokkuð mikið um að vera í loftskeytaklefanum þegar ég var á togurunum en annars vandi ég mig á það að taka til hendinni á dekkinu þegar það var lítið að gera við loftskeyta- mannsstarfið og svo var bara hóað í mig ofan af brú ef þaó var eitthvað sem ég þurfti að gera þar.” Engin fiugdeiia ,,Ég kom fyrst hingað til að setja upp búnað fyrir radarflug í Hnífsdal og ég vann þar í tíu ár við að leið- beina flugvélum inn til lendingar. Síðan fór ég inn á ísafjarðarflugvöll þegar radarstöðin var lögð af. Ég hafði aldrei neitt skírteini eða diplóma sem sagði að ég mætti vinna í flug- turninum. í þá daga settust menn bara í stólinn þegar þeir kunnu hlutina.” Þótt flugið hafi átt hug og hjarta Gríms síðustu þrjátíu árin er langt frá að hann hafi nokkra flugdellu. ,,Ég vann meðal annars á Rán, flugvél Landhelgisgæsl- unnar, en þar læknaðist ég algerlega af allri flugdellu. Þetta var gjörsamlega þægindalaus herflugvél sem gat verið allt að tólf tíma á lofti í einu og eftir að hafa skrölt með henni um allt í tvö ár, oft í frekar leiðinlegu veðri, var ekkert sport í fluginu lengur. Ég hef því látió mér nægja að fljúga frá A til B og leiðbeina flug- vélum síðan þá,” segir Grímur. Á undanförnum árum hefur verið umræða um hvort ekki mætti rýmka eitthvað reglur um flugtíma til og frá ísafirði. Grímur hefurmjög ákveðnarskoð- anir á þeim málum. ,,Mér finnst það hlægilegt þegar menn hafa verið að fljúga hér í ófærð og við erfið skilyrði að skyndilega þurfi að segja stopp þegar litli vísir klukkunnar bendir á ákveðna tölu. Það væri mikið heppilegra að nota einhverjaaðraviðmiðun en klukkuna þegar verið er að takmarka það svigrúm sem menn hafatil að fljúga til og frá ísafjarðarflugvelli. Svigrúmið til fragtflugs var rýmkað dálítið fyrir nokkrum árum en síðan varð óhapp sem í sjálfu sér tengdist ekki á nokkurn hátt lendingu eða fiugtaki á ísa- firði. Mér finnst skynsam- legt að menn athugi hvort ekki megi veita einstakl- ingsbundin leyfi til flug- manna til næturflugs, því reynsla þeirra skiptir miklu máli og ef farið væri eftir alþjóðlegum stöðlum sem notaðir eru víða, þá væri ekkert flogið hér. Það hafa nokkrir flugmenn flogið hérna meira og minna í næturflugi í tengslum við sjúkraflugið og þessir menn hafa flogið slysalaust og án áhættu. Raunar höf- um við wori A , ................. lánsöm með flug til og frá ísafirði en þó að það hafi verið einhver óhöpp á síðastliðnum þrjátíu árum, þá hefur ekki orðið neitt atvik sem ég myndi kalla slys.” Máia- fiutnings- maðurinn Grímur hefur ekki aðeins fengist við flugumferðar- stjórn síðan hann kom til ísafjarðar heldur hefur hann einnig fengist við mála- flutningsstörf. ,,Ég að- stoðaði föður minn á með- an hann var lögmaður og öðlaóist þar nokkra reynslu og síðan var ég töluvert í málaflutningsstörfum til að fylla upp í ákveðið skarð sem varð á þessum „markaði” en þetta skarð fylltist síðan þegar Björn Jóhannesson kom hingað. Menn mega flytja sitt eigið mál fyrir rétti eða gefa öðrum umboð til þess og þar sem ég hef ákaflega gaman af því að lesa lög og velta þeim fyrir mér, þá var ég oft fenginn til aó aðstoóa fólk. Þetta er skemmtileg rökfræði og það er hægt að túlka lög á ýmsa vegu - ann- ars væru dómstólarnir óþarfir. Á sín- Aðra við- m iðun en L kiukkuna um tíma var ég meira að segja skipaður málaflutn- ingsmaður því það voru engir lögmenntaðir menn tiltækir. Ég man að einu sinni lét ég til leiðast að taka að mér ákveðið mál eftir að það hafói verið reynt að tala mig til í tvo tíma og sagði þá að fyrst ég tæki málið að mér myndi ég vinna það og auðvitað stóð ég við það! Það gátu oft verið ansi skemmtileg mál og ég man ekki eftir að hafa lent í neinum drag- bítum hér. Það eru allt góðir menn sem voru í þessu og eru í þessu í dag." Kveðju færðu... Á sínum síðasta starfs- degi fékk Grímur Jónsson margar góðar kveðjur og sjálfum fannst honum nóg um enda hafði hann aðeins , ,unnið mitt starf eftir bestu getu”. Meðal þeirra sem höfðu samband við Grím var Brynjólfur Thorvalds- son, flugmaóur sem sendi honum þessa vísu: Reka boríst hefur raftur Ránarstrendur okkar á - kveðjurfærðu gam/i kjaftur kærar öðrum frá! -ai. 6 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.