Bæjarins besta


Bæjarins besta - 14.09.1994, Side 7

Bæjarins besta - 14.09.1994, Side 7
Bessi ÍS-4 lOfrá Súðavík hélt íSmuguna á föstudag. Hérsleppir framkvæmda- stjóri Frosta, ingimar Haiidórsson, iandfestum. Hann segiraó tiigreina komi að senda skipið á rækjuveiðar í vetur og að boifiskkvóti skipsins verði notaður sem skiptimynt fyrir rækju. er verið að flytja fisk lands- hornanna á milli. Sjónarmið Ós- varar hlýtur að vera að útgerðin hafi sem mestan arð af þeim litla kvóta sem fyrirtækið hefur yfir að ráða. Við getum ekki annað en fengið hæsta verð. í fyrsta lagi til að mæta skertum kjörum sjómanna og í öðru lagi til að standa við þær skuld- bindingar sem eru samfara þessunr togarakaupum.” Ólafur sagði ennfremur að Ósvör gæti engan veginn farið fram á það við fyrirtækið Þuríði hf., að það taki við skuld- bindingum sem Ósvör ræður ekki við eða öfugt. Sigurður Hafberg, framkvæmdastjóri Þuríðar hf., hafði eftirfarandi að segja um orð bæjarstjórans sem og afstöðu Ósvararmanna: „I þessum tveimur fréttum er það látið í veðri vaka að Þuríðar- menn vilji fá fiskinn gefins eða á niðursettu verði. Það er bara bull. Bæjarstjórinn veit ekkert um það hvort sameining leysi vandamál Bolvíkinga eða ekki, fyrr en málið er skoðað til hlýtar. Hvernig geta menn full- yrt svona án þess að skoða málin. Tónninn í Ólafi er öðruvísi þarna en í þau skipti sem ég hef rætt við hann. Ég hef rætt við hann um ýmsakosti sem ég hef talið þess vert að skoða og hann hefur tekið vel undir það, því skil ég ekki þessa hugarfarsbreytingu hjá bæjar- stjóranum.” Sameiginleg umsóknfrá Þuríðiog Bakka Þuríðarmenn hafa litið til fleiri fyrirtækja en Ósvarar en viðræður hafa átt sér stað á rnilli fyrirtækisins og Bal.ka hf., í og ræða málin. Við sáum því fram á að við myndum detta út úr þessari mynd ef við gerðum ekkert annað og því var um- sóknin send inn í nafni þessara tveggja fyrirtækja. í leiðinni erum við kannski búnir að opna fleiri möguleika fyrir Ósvör því að nefndin hefur áskilið sér rétt til að skoða aðra möguleika,” sagði Sigurður. Hann sagði ennfremur að of snemmt væri að segja til um hvernig rekstri þessara fyrir- tækja yrðu háttað eftir sam- eininguna og hann var ófús til að tímasetja það nánar. „Þetta verður bara að vinnast eftir hendinni en við erum að skoða þessi mál af fullri alvöru,” sagði Sigurður. ískúsiéiagið sækirumí kraitiíyrri sameiningar Ishúsfélag Isfirðinga hf., er eitt þeirra vestfirsku sjávarút- vegsfyrirtækja sem sótt hafa um „Vestfjarðaaðstoð”. Aðalfund- ur fyrirtækisins var haldinn á fimmtudag í síðustu viku og á þeim fundi var gengið frá kaupum útgerðarfyrirtækisins Gunnvarar hf„ á 62,5% hlut Hrannar hf„ í fyrirtækinu. Að sögn Magnúsar Reynis Guð- mundssonar, stjórnarformanns beggja fyrirtækjanna varð ör- lítill hagnaður á Ishúsfélaginu á síðasta ári en nokkurt tap varð á útgerðarfélögunum tveimur sem sameinuð voru Ishús- félaginu á síðasta ári þ.e. Arnar- núpi hf., og Þorfinni hf. „Það eru engin frekari sam- einingarmál á döfinni hjá Is- húsfélaginu. Það er búið að sameina Arnarnúp og Þorfinn Ishúsfélaginu og þar er um veru- leggja framtíðina því við höfum sótt um að fá að njóta „Vest- fjarðaaðstoðarinnar” í krafti þeirrar sameiningar sem þegar er orðin. Það er nauðsynlegt fyrir okkur að eiga kost á slíku víkjandi Iáni sem og skuld- breytingu í bönkum til þess að getað staðið fastar í fæturna. Það er geysilegt verk fram- undan og ég er hæfilega bjart- sýnn á framtíðina.” Norðurtanginn ieigirskip -Nú líður senn að því að Guð- björgin hætti veiðum fyrir Is- húsfélagið. Verður Framnesið þá sent á bolfiskveiðar? „Nei, þessi tvö skip okkar eru ekki með meiri kvóta en það að eitt skip dugar alveg til að ná þeim kvóta. Það verður trúlega Stefnir og við höfum verið með það inn í myndinni að semja við einhverja aðila um afnot af Framnesinu eða afla þess gegn því að fá það sem við þurfum. Ef það ekki gengur er aldrei að vita hvað menn gera, það er eitthvað af rækjuverksmiðjum til sölu. Við erum nreð það stórt hús að ein rækjuverksmiðja rúmast vel þar innan veggja. Það er nú kannski ekki alveg á dagskrá í dag en ef ekki tekst að nýta Framnesið sem skyldi er aldrei að vita hvað gerist. Ég held þó að okkur takist að semja við önnur fyrir- tæki um Framnesið,” sagði Magnús Reynir. Eins og greint var frá í síðasta blaði varð nokkurs konar „hall- arbylting“ á aðalfundi Hrað- frystihússins Norðurtanga hf„ sem haldinn var fyrir stuttu. Þar var framkvæmdastjóri fyrir- tækisins og einn eigenda, Jón Páll Halidórsson, felldur úr stjórn og búast viðmælendur Mikii uppstokkun fyrirsjáanleg á meða/ sjávarútvegsfyrirtækja á Vestfjörðum vegna Vestfjarðaaðstoðarinnar Þuríður og Baldd í vlð- ræðum um samehiingu MIKIL uppstokkun mun vera fyrirsjáanleg á meðal vestfirskra sjávarútvegsfyrirtækja í kjölfar „Vestfjarðaaðstoðarinnar” svokölluðu en frestur til að sækja um víkjandi lán frá ríkissjóði rann út á föstudag. Forsvarsmenn hinna ýmsu sjávarútvegsfyrir- tækja hafa verið í viðræðum um aukna samvinnu eða jafnvel sameiningu sem er forsenda þess að lán fáist. Mikil leynd hefur hvílt yfir þessum viðræðum og hafa sögusagnir um sameiningar hinna ýmsu fyrirtækja nánast komið á færibandi dag hvern að undanförnu. Osirör hainaði sameiningu við Þuríði Fiskvinnslufyrirtækið Þur- íður hf„ í Bolungarvík sendi útgerðarfélaginu Ósvör hf„ bréf á mánudag í síðustu viku þar sem óskað var eftir viðræðum um hugsanlega samvinnu eða sameiningu fyrirtækjanna. Svar frá Ósvör hf„ barst ekki fyrr en klukkustund eftir að frestur til að sækja unt .Vestfjarðaaðstoð" rann út á föstudag og var það neikvætt, ekkert samstarf við Þuríði hf„ skyldi skoðað. I svar- bréfi frá stjórn Ósvararhf., segir m.a. að ekki liggi fyrir sýni- legar eða tölulegar niðurstöður um hagkvæmi þess að gengið verði til sameiningar fyrir- tækjanna og því sé beiðninni hafnað. Stjórn Ósvararhf., lýsti sig hins vegar reiðubúna til við- ræðna við Þuríði um viðskipti á milli fyrirtækjanna sem treyst gæti rekstrargrundvöll Ósvarar hf. Valdimar L. Gíslason, einn eigenda Þuríðar hf„ sagði í sain- tali við Morgunblaðið á laugar- dag að afstaða þeirra Ósvarar- manna væri furðuleg og ekki síður afstaða bæjarins, en Bol- ungarvíkurkaupstaður á 64% í Ósvör hf. Taldi Valdimar að lögð væri áhersla á að flytja afla þann sem kæmi til Bol- ungarvíkur til annarra byggðar- laga til vinnslu. Ólafur Krist- jánsson, bæjarstjóri í Bolung- arvík hafði eftirfarandi að segja um ákvörðun Ósvararmanna í Morgunblaðinu á sunnudag: „Fyrirtæki í Bolungarvík verða að átta sig á því að landið er orðið eitt markaðssvæði. Það Hnífsdal. Sigurður Hafberg sagði í samtali við blaðið á mánudag að þessi tvö fyrirtæki hefðu sent inn sameiginlega umsókn um Vestfjarðaaðstoð og að sameining þeirra væri allt eins á döfinni. „Við sóttum um Vestfjarða- aðstoð með Bakka hf„ í Hnífs- dal og við erum að skoða hugsanlega sameiningu þessara fyrirtækja. Það er of snemmt að segja til um hvenær af sam- einingunni getur orðið en við munum vinna í málinu á næstu vikunr. Viðgerðum okkur vonir um að Ósvararmenn myndu sinna bréfi okkar en þeir skiluðu okkur ekki svari fyrr en kl. 17.30 á föstudag, klukkustund eftir að frestur til að skila inn umsóknum rann út. Þeir höfðu engan áhuga á að setjast niður lega sameiningu að ræða. Þar erum við að ræða um sam- einingu fyrirtækja frá Þingeyri og Flateyri við fyrirtæki á Isa- firðiogannað erekkiádöfinni.” Aðspurður um þær sögu- sagnir sem gengið hafa um hugsanlega sameiningu Frosta hf„ og Ishúsfélagsins sagði Magnús: „Það er bara bull. Menn eru alltaf að ræða um samvinnu en sameining er ekki á döfinni. Þeir Frostamenn eru nær eingöngu komnir í rækjuna og við erum með skip sem er á rækjuveiðum og okkur vantar bolfisk þannig að ef þeir hefðu verið tilbúnir til að láta okkur hafa bolfisk í staðinn fyrir rækju, þá hefði það verið mjög álitlegur kosturtil að ræða. Það sem liggur fyrir hjá okkur í stjórn Ishúsfélagsins er að kort- blaðsins við miklum breyt- ingunr íkjölfar þess. Fyrirtækið hefur verið í góðri samvinnu viðFrostahf., ISúðavfkog Fisk- iðjuna Freyju hf„ á Suðureyri en engin sameining mun vera á döfinni milli þessara fyrirtækja. Blaðið hefur ekki haft fregnir af því hvort Norðurtanginn hf„ hafi sótt um „Vestfjarðaaðstoð” en Fiskiðjan Freyja mun hafa sent inn umsókn í krafti þeirrar samvinnu sem er á milli fyrir- tækjanna. Þá hefur verið orðrómur um að viðræður hafi átt sér stað á milli Norðurtangans og Bása- fells hf„ á Isafirði um sam- einingu fyrirtækjanna en Ei- ríkur Böðvarsson hjá Básafelli bar þann orðróm til baka í sam- tali við blaðið. „Það er ekkert Framhald ó nœstu síðu. MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBEFt 1994 7

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.