Bæjarins besta


Bæjarins besta - 14.09.1994, Side 8

Bæjarins besta - 14.09.1994, Side 8
Stakkur skrifar: Tryggt eftir á... enþofyrir kosningar ÞÆR FRÉTTIR að við- skipta- og tryggingaráð- herra Sighvatur Björgvins- son ætlar að sjá til þess að Viðlagatrygging Islands muni bæta tjónið á skíða- svæði Isfirðinga eru mikill léttir fyrir bæjarstjórn og reyndar bæjarbúa alla. Nóg er víst að fást við sorp- brennsluna, sem er dýr og verður sennilega öllum dýrari er yfir lýkur. Og nú spyr almúginn, af hverju megum viðekki líkatryggja eftir á? Það er miklu ódýrara. Hið hörmulega snjóflóð í apríl er Ieið er sárara en tárum taki og margir horfðu þar á eftir eignum sínum. Ekkert bætir þó glatað mannslíf og koma Tungu- dalsmenn að þessum málum öllum í myndarlegu blaði sínu, sem dreift hefur verið hér á Isafirði. „Ibúarnir” hafa beðið ákvörðunar um byggingarleyfi að nýju. Skipulagsstjóri ríkisins hef- ur fært rök að þeirri ákvörð- un sinni að krefjast stöðv- unar byggingarfram- kvæmda í Tungudal. Um- hverfisráðherra hefur haft málið til umhugsunar um skeið. Eitt af fjölmörgum atrið- um sem kom upp í kjölfar ákvörðunar skipulagsstjóra var einmitt það að Viðlaga- trygging Islands lýsti því, að væntanlegir bústaðir yrðu ekki tryggðir fyrr en lokið væri nokkrum forms- atriðum og gerð hefði verið grein fyrir snjóflóðavömum vegna sumarhúsabyggð- arinnar. Ja hérna! Nú stendur ekki á því, að bjarga málum og bæta tjón á ótryggðum munum. Hví- líkt fordæmi. Skyldu trygg- ingarfélögin ekki fagna því og taka undir nýstárleg sjónarmið ráðherra trygg- ingarmála? Vissulega ber að fagna því, að skíðasvæði verði byggt upp á nýjan leik. En tilfinningar hugsandi manna hljóta að vera blend- nar. Akvörðun ríkisstjórn- arinnar að hlaupa undir bagga með Isfirðingum, sem ekki áttu því láni að fagna, að bæjarstjórn Isa- tjarðar hefði séð ástæðu til þess að vátryggja búnað og lyftur á Seljalandsdal með fullnægjandi hætti, var fagn- aðarefni. Ef til vill verður það skilyrði, að framvegis tryggi þeir eigur bæjarins og sýni þar með lágmarks forsjálni og að þeir beri einhverjarskyldurgagnvart kjósendum sínum, sem reyndar láta allt yfir sig ganga. Kannski hefur það reynst ómögulegt að finna ein- hverja skynsamlega leið til þess að veita áður lofaða aðstoð. En aðferðin vekur upp margar spurningar. Ein þeirra er sú, hvort ekki skipti neinu máli hvernig staðið er að málum þegar ríkis- valdið á í hlut? En boðuð lagabreyting ráðherra tekur vonandi á því, að þetta skuli vera alger undantekning og þá jafnframt að skýr skylda verði sett í lög þess efnis að sveitarstjórnir gegni skyld- um sínum og sinni því að gæta að eignum umbjóð- enda sinna. Er það ekki makalaust að sveitarstjórnarmenn virðast undir þau örlög seldir að tala í einu orðinu um aukið sjálfstæði sveitarfélaganna, en í hinu að flest vondu verkin séu unnin vegna laga frá ríkisvaldinu? Hvernig geta menn búist við því, að eitth vað gerist í heimahéraði þegar frumkvæði sveitar- stjórnarmanna virðist helst vera það eitt að ganga á fund fulltrúa ríkisvaldsins og biðja um peninga? Er það ekki eftirtektarvert að kennarar eru þeir sem helst óttast flutning grunn- skóla af höndum ríkisins til sveitarfélaganna? Einhver kynni að segja að loforð tryggingaráðherra um lausn á peningavanda- málum vegna skíðasvæðis Isfirðinga lyktaði af kom- andi kosningum. Svo þarf ekki að vera, þótt vart skemmi það möguleika hans á endurkjöri, bæði í hugsanlegu, en fremur ólík- legu prófkjöri krata, og ekki síður til alþingis. Ráð- herrann er góður Isfirðingur, átti sín æskuspor þar og á þar enn dygga stuðnings- ntenn. En óneitanlega hefur hann sett samráðherra sinn ÖssurSkarphéðinsson, yfir- mann skipulagsmála, í erf- iða stöðu við ákvörðun um framhald sumarbústaða- bygginga í Tungudal. Auðvitað hlýtur ríkis- stjórnin að fylgja þessari ákvörðun sem ein heild. H venær sem ákvörðun hans kemur þá þýðir hún senni- lega einhverskonar laga- breytingu varskipulagsmál, ella sýnist skipulagsstjóri tæpast starfi sínu vaxinn. Gildir það líka hjá Viðlaga- tryggingu Islands? -Stakkur. Þuríður og Bakkií viðræðum... - framhald af bls. 7 til í þessum orðróm eins og málin standa í dag. Það getur vel verið að það verði eitthvað en við höfum ekki verið beðnir um það. Maður er bara að heyra þetta á götunni. Þetta er bara ein af kjaftasögunum. Það er ekki til fótur fyrir þessu eins málin standa í dag,” sagði Eiríkur. Hraðfrystihúsið Norðurtangi hefur hins vegar gert samning við Básafell þess efnis að tog- arinn Guðbjartur leggi upp rækju hjá fyrirtækinu nú á haustmánuðum. Þá hefur fyrir- tækið leigt Orrann til fisk- vinnslufyrirtækisins Rits hf., á Isafirði. Norðurtanginn hefur því aðeins eitt skip í dag en það er Hálfdán í Búð. Heyrst hefur að afkoma Norðurtangans muni í vetur byggjast á afla línubáta og hefur verið talað um að Auðunn IS og Sæfell IS muni leggja upp hjá fyrirtækinu. Bessinn á rækiuveiðar Ingimar Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Frosta hf., í Súða- vík sagði í samtali við blaðið að fyrirtæki hans hefði sótt um „Vestfjarðaaðstoð” og hefði sú umsókn verið lögð inn í krafti þeirrar samvinnu sem komið hefði verið á, á milli Frosta hf., og FiskiðjunnarFreyju hf. „Við ætlum að láta reyna á þessa túlkun gagnvart Freyju og það er engin sameining á döfinni hjá Frosta hf„ og einhverju öðru fyrirtæki.” -Er það rétt að þið séuð að selja Bessann til Hraðfrysti- hússins hf„ í Hnífsdal og takið Pál Pálsson upp í kaupin? „Það hefur aldrei komið til tals.” -En er það rétt að viðskipta- banki fyrirtækisins hafi sett þau skilyrði að þið losuðu um eignir til að rétta úr stöðunni? „Bankinn hefur ekki sett okkurnein skilyrði.hvorkiþetta né annað.” -Hvernig verður rekstrinum háttað í vetur. V erður fyrirtækið eingöngu í rækjuvinnslu eða mun bolfiskur verða hluti af framleiðslunni? „Við erum að skoða það að vera einungis í rækjunni. Bess- inn fór í Smuguna á föstudaginn og það er verið að skoða þann möguleika að senda skipið á rækju í framhaldi af því. Og þá sem ísfiskskip, það verður ekki farið út í neinar breytingar á skipinu. Það er ýmislegt að hægt að gera við bolfiskkvóta skips- ins en hann verður fyrst og fremst notaður sem skiptimynt yfir í rækju.” -Það samstarf sem verið hefur á milli fyrirtækisins og Norður- tangans hf„ er það úr sögunni? „Það var um það samið að það yrði aðeins út kvótaárið og nú er nýtt kvótaár hafið,” sagði Ingimar. Hann sagði ennfremur að möguleiki væri á að fleiri skip myndu koma í viðskipti við Frosta en fyrir á fyrirtækið þrjú skip sem munu að öllum líkind- um verðaárækjuveiðum ívetur þ.e. Bessinn, Haffari og Kofri. Ingimar sagði einnig að þessa dagana færi fram vinna við milliuppgjör hjá fyrirtækinu og að reksturinn væri mun léttari nú en oft hefði verið áður. Aðal- fundur fyrirtækisins fyrir síð- asta ár hefur ekki verið haldinn og ekki hefur verið ákveðið hvenær boðað verður til hans. Ingimar vildi ekki tjá sig um niðurstöðu síðasta árs fyrr en að til aðalfundar kæmi. Fáfnir hf„ á Þingeyri hefur sótt um „Vestfjarðaaðstoð” þrátt fyrir að engar forsendur til sameiningar liggi á borðinu en Þingeyringar hafa hafnað sam- einingu en eru þrátt fyrir það í sameiningarviðræðum við ná- grannasveitarfélög. Ljóst virðist því vera að ýmissa breytinga megi vænta í vestfirskum sjáv- arútvegi á næstu misserum. Þuríður hf., í Bolungarvík hefur sent inn sameiginlega umsókn um ,,Vestfjarðaaðstoð” með Bakka hf., í Hnífsdai. Viðraeður um sameiningu fyrirtækjanna standa yfir. 8 MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1994

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.