Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.12.1994, Page 16

Bæjarins besta - 21.12.1994, Page 16
Guðni Marinó bjó þá líka í Danmörku með fjölskyldu sinni á þessum tíma. Hann hjálpaði bróður sínum mikið sem og mér. Eg hef heyrt utan af mér að Veturliði sé einnig samkyn- hneigður en ég hef aldrei fengið neina staðfestingu á því. Það hlýtur þó að vera því að hann bjó lengi með manni sem er látinn úrsamasjúkdómi. Vetur- liði segist ekki vera með þennan sjúkdóm og ég vona að guð gefi að það sé rétt,” segir Guðni hugsandi og það er greinilegt að þessi mál eru ofarlega í huga hans. -En snúum okkur að öðru. Þið hjónin hafið búið hér á Hlíf um fimm ára skeið. Hvernig er búið að öldruðum hér? „Það er í einu orði sagt frá- bært. Fólkið sem starfar hér er frábært, það er ekki hægt að biðja um meira. Eg hef þá trú að það sé búið vel að öldruðum á Isafirði, það hefur að minnsta kosti farið batnandi með hverju árinu. Það er hugsað vel um okkur og ég get ekki annað séð en að framtíðin sé björt hjá gamla fólkinu,” sagði Guðni að lokum. Þegar blaðamaður var að búa sig til brottfarar, út í norðan garrann, var dyrabjöllunni hringt. Þórður Einarsson, Tóti rukkari varkominn íheimsókn, með slæmar fréttir af einum íbúanum á Hlíf, 92 ára gamalli konu sem hafði slasað sig Guðni með gítarinn á einu baiiana í Gúttó. kvöldið áður. Þegar hann sá blaðamann sagði Tóti: „Hefur Guðni ekki spilað á munn- hörpuna fyrir þig? Guðni þú verður að ley fa honum að heyra, ég skal syngja með.” Guðni lét undan kunningja sínum líkt og fyrir blaðamanni er viðtals var óskað. Guðni spilaði þrjú gömul danslög og Tóti raulaði með. „Já, okkur leiðist ekki hér á Hlíf með menn eins og Guðna sem nábúa,” sagði Þórður. Þar með voru þeir félagar kvaddir. Guðni með mandóiínið heima í stofu. Bensínstöðin á ísafiröi Opnunartímar yfír jól og áramót Aðfangadagur 24. desember Jóladagur 25. desember Annar í jólum 26. desember Gamlársdagur 31. desember Nýársdagur 1. janúar * Sjálfsali eftir lokun kl. 07:30 ■ 15:00 Lokað kl. 10:00 ■ 15:00 kl. 07:30 ■ 15:00 Lokað G/eði/ega hátíð\ með þökk fyrír viðskiptin á árínu Hverju manstu eftir úr fréttum ífðandi árs? Fréttagetraun Bæjarins besta Janúar: 1. Rótgróin verslun á ísa- firði skipti um eigendur uni áramótin. Verslunin hafði verið í einkaeigu föðursins frá árinu 1953 en nú var komið að því að aðkomendurnir tækju við. Hvaða verslun er hér átt við? A) Verslun Jónasar Magnús- sonar. B) Bókaverslun Jónasar Tómassonar. C) Verslun Björns Guð- mundssonar. 2. Stórt snjóflóð féll á bæ einn á norðanverðum Vest- fjörðum í byrjun janúar og olli þar miklu tjóni á útihúsum og búfénai. Að minnsta kosti 20 ær drápust er flóðið féll á fjárhúsin og lóga þurfti nokkrum til viðbótar. A hvaða bæ féll flóðið? A) Hrafnabjörg í ísafjarðar- djúpi. B) Kirkjuból í Skutulsfirði. C) Fremstuhús í Dýrafirði. 3. I janúar birti blaðið endurminningar Isfirðings um fvrsta hlutverk hans á leiksviði. Vakti endurminn- ingin mikla athygli, sérstak- lega fvrir þær sakir, hversu minnugur Isfirðingurinn var en hann var aðeins sex vikna gamall þegar hann lék sitt fvrsta hlutverk. Hver er mað- urinn? A) Jónas Magnússon, fyrrv. kaupmaður. B) Jón Baldvin Hannibals- son, ráðherra. C) Magnús Reynir Guð- mundsson, framkvæmdastjóri. 4. I byrjun janúar festi Súðavíkurhreppur kaup á landi Eyrardals í Álftafirði. Ráðgert er að landið verði framtíðarbyggingarsvæði Súðvíkinga. Hvert var kaup- verðið? A) 100 milljónir. B) 68 milljónir. C) 12 milljónir. Febrúar: 5. Læknir einn á ísafirði fékk yfirburðarkosningu, hálfgerða „Rússneska kosn ingu" í prófkjöri flokks síns sem fram fór um mánaðar- mótin janúar-febrúar. Hver er þessi læknir? A) Halldór Jónsson. B) Þorsteinn Jóhannesson. C) Pétur H.R. Sigurðsson. 6. A hádegi miðvikudaginn 16. febrúar voru tímamót í jarðgangagerðinni undir Breiðadals- og Botnsheiðar þegar síðasta haftið í leggnum til Súgandafjarðar var sprengt að viðstöddu fjöl menni. Hver fékk þann heiður að sprengja síðasta liaftið? A) Björn A. Harðarson, Vegagerð ríkisins. B) Einar Kr. Guðfinnsson, alþingismaður. C) Halldór Blöndal, ráðherra. 7. „Súgfirðingar eru eins og ein stór fjölskylda,” sögðu hjón ein á Isafirði í viðtali við blaðið í febrúar. Hjónin voru þá nýflutt til ísafjarðar frá Revkjavík en bæði eiga þau ættir sínar að rek ja til Suður- evrar. Hvaða hjón er hér uin að ræða? A) Elín Árnadóttirog Magn- ús Örn Friðjónsson. B) Guðfinna Magnúsdóttir og Halldór Pálsson. C) Karen Blink og Mogens Jensen. 8. Jarðskjálfti sem mældist 2,7 á Richter fannst víða um sveitir Isafjarðardjúps þriðjudagskvöldið 22. febr úar. Hvar átti jarðskjálftinn upptök sín? A) Á Laugarbóli í Laugar- dal. B) í Kaldalóni. C) Á Rauðamýri. Mars: 9. í byrjun mars var til- kynnt um hver helði hlotið nafnbótina „Iþróttamaður ísafjarðar” fyrir árið 1993. Hvaða íþróttamaður varð fyrir valinu? A) Arnar Geir Hinriksson. B) Björn Helgason. C) Daníel Jakobsson. 10. „Hún eldaði mat ofan í sænska afbrotamenn á ungl- ingsárunum, tók þátt í blóð- ugum götuóeirðum Nevv York borgar á námsárunum og starfar nú sem verkefnisstjóri í atvinnumálum kvenna á Vestfjörðum,” sagði m.a. í kynningu á viðtali við konu eina á Isafirði í mars. Hvaða kona hafði upplifað það sem að framan greinir? 16 MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1994

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.