Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.12.1994, Síða 17

Bæjarins besta - 21.12.1994, Síða 17
A) Elsa Guðmundsdóttir. B) Elín Þorbjamardóttir. C) Margrét Önnudóttir. 11. Nýtt skip bættist í flota Isíirðinea í mars. Var það rækjutogari sem keyptur hafði verið frá Grænlandi. Hvað heitir skipið? A) Básafell. B) Kögurfell. C) Hafrafell. 12. „Ólíklegt að Sighvatur hafnijafn góðum kosti,”sagði bóndi einn á Vestfjörðum í samtali við blaðið eftir að hann hafði lagt inn umsókn um stóðu Seðlabankastjóra sem auglýst hafði verið til uni- sóknar stuttu áður. Hvaða bóndi vildi í Seðlabankann? A) Jens Guðmundsson á Kirkjubæ. B) Sigurjón Samúelsson á Hrafnabjörgum. C) Ólafur Þórðarson á Rauða- mýri. Apríl: 13. Áhöfn ákveðins skips á norðanverðum Vestfjörðum var sagt upp störfum í byrjun apríl vegna þess að bolfisk- veiðiheimildir skipsins voru uppurnarogenginn viðbótar- kvóti fékkst keyptur. Hvaða skip er hér um að ræða? A) Hálfdán íBúð fráísafirði. B) Gyllir frá Flateyri. C) Sléttanes frá Þingeyri. 14. „Húsið gekk í bylgjum og eldglæringarnar lýstu upp nágrennið,”sögðu hjónin Sól- veig Guðnadóttir og Ásgeir Lýðsson í viðtali við blaðið í apríl. Hjónin björguðust úr sumarbústað sínum í Tungu- dal þegar stórt snjóflóð féll á Seljalandsdal og yfir sumar- húsabyggðina í Tungudal og lagði |>ar ineð sumar- og vetrarútivistarsvæði Isfirð- inga í rúst. Hvaða dag féll snjóflóðið mikla? A) Aðfararnótt 5. apríl. B) Aðfararnótt 6. apríl. C) Aðfaramótt 7. apríl. 15. Mikil skelfing greip um sig á meðal ísfirska skíða- barna sem voru við æfingar í hlíðum Þverfjalls við Botns- heiði í apríl. H\ að gerðist? A) Skíðakennarinn sagði þeim draugasögur. B) Móður jörð nötraði án nokkurra frekari skýringa. C) Óvæntur gestur, Snæ- finnur snjókarl birtist úr þok- unni. 16. Á stjórnarfundi ákveð- ins fyrirtækis á Isafirði í apríl var m.a. til umræðu að færa aðsetur útgerðarinnar til Súðavíkur vegna aðstiiðu- leysis sem skipið bjó við á ísa- firði. Hvaða fvrirtæki er hér átt við? A) Hrönn ht'. B) Gunnvör hf. C) Djúpbáturinn hf. Maí: 17. Héraðsdómur dæmdi ungan inann í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi í byrj- un maí fyrir afbrot. Hvað hafði maðurinn ungi gert af sér? A) Hann kveikti í tveimur sumarhúsum í Önundarfirði. B) Hann ók ölvaður á milli ísafjarðar og Reykjavíkur. C) Hann lokaði þrjá lögreglu- menn inni í fangaklefa. 18. „Ekkert líkt Þerry Mason eða Matlock,” sagði lögfræðingur einn á Isafirði í spjalli við blaðið í maí um starfsiií. Hvaða iögmaðuríók svo til orða? A) Tryggvi Guðmundsson hdl. B) Arnar Geir Hinriksson hdl. C) Björn Jóhannesson hdl. 19. Útibú Landsbankans á Isafirði átti stórafmæli í maí. Hvað varð útibúið gamalt? A) 60 ára. B) 75 ára. C) 90 ára. 20. Byggingarsjóði Isa- fjarðarkirkju voru færðar ein milljóna króna að gjöf í maí frá bankastofnun einni. Hvaða bankastofnun var svona örlát? B) Islandsbanki. B) Landsbanki Islands. C) Sparisj. Bolungarvíkur. Júní: 21. Gengið var frá ráðningu nýs bæjarstjóra á Isafirði í maí. Ráðinn var 37 ára karl- maður, Kristján Þór Júlíus- son, sem gegnt hafði bæjar- stjórastöðu í öðru sveitar- félagi. Hvar var það? A) Á Akureyri: B) í Hrísey. C) Á Dalvík. 22. „Fiskurinn er svo verð- mætur að þú verður að henda lionum strax,” sagði ísfirskur útgerðarmaður í samtali við blaðið í júní. Útgerðarmað- urinn hefur verið búsettur á vesturströnd Bandaríkjanna þar sent hann hefur rekið fyrirtæki sitt. Hvaða útgerð- armaður tók svona til orða? A) Jón Grímsson. B) Gunnar Þórðarson. C) Grímur Jónsson. 23. Hús eitt á Isafirði var flutt um liálfan kílómeter eina nóttina í júní, frá Brunngötu að Tangagötu. Þurfti stór- virkar vinnuvélar og hugvit eins og það gerist best til að allt færi vel. Undir hvaða nafni gekk þetta hús? A) Sýslumannshúsið. B) Skólastjórahúsið. C) Bæjarstjórahúsið. 24. Myndir blaðsinsaf karl- fatafellu einni sem skenunti á konukvöldi í Krúsinni í júní fóru fyrir brjóstið á mörgu kvenfólki bæjarins og vildu margar þeirra sem höfðu samband við hlaðið fá sams konar myndir af karlakvöldi? Hvað kallaði fatafellan sig. A) Sunny strip. B) Mike boss. C) Tom Krús. 25. T veir sparisjóðir á Vest- fjörðum sameinuðust um mánaðarmótin júní-júlí í sumar. Hvaða sparisjóðir voru áttu þar lilut að máli? A) Sparisjóður Önundar- fjarðar og Sparisjóður Súða- víkur. B) Sparisjóður Bolungar- víkur og Sparisjóður Súg- firðinga. C) Sparisjóður Þingeyrar- hrepps og Eyrarsparisjóður. 26. „Við grátum hvorki né hlæjum,” sagði Olafur Kristjánsson, bæjarstjóri í samtali við blaðið í júlí. Af hvaða tilefni lét hann þessi orð falla? A) Vegna þess að Bolvík- ingar og Isfirðingar fengu ekki að vera reynslusveitarfélög. B) Vegna þess að öll sveitar- félög á Vestfjörðum neituðu að sameinast Bolungarvík. C) Vegna þess að Bol- víkingar höfðu borið lægri hlut rios. H vaða skutttogara er hér um að ræða? A) Guðbjörgu ÍS-46. B) Guöbjart ÍS-16. C) Pál Pálsson ÍS-102. ✓ Agúst: 29. Miðvikudaginn 3. ágúst var undirritaður samningur á milli ríkisins annars vegar og Isafjarðar, Bolungarvíkur og Héraðsnefndar Isafjarðar- sýslu hins vegar um viðgerðir og klæðningu á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Isafirði. Hvað í „hláturskeppni” í þætti Hemma Gunn. 27. Rekstur Skipasmíða- stöðvar Marsellíusar hf., á Isafirði var tekinn til gjald- þrotaskipta í júlí og tóku á- kveðnir aðilar reksturinn á leigu til eins mánaðar. Hverjir voru það? A) Skiptastjórinn og kunn- ingjar hans. B) Tveir bændur úr Önundar- firði. C) Stærstu kröfuhafarnir. 28. Skipverjar á skuttogara einum frá ísafirði koinu með heldur óvenjulegan afla að landi í júlí, eða fallhlíf, nauta- kjöt, kakó og rússneskt Chee- er áætlað að viðgerðirnar kosti? A) 15 milljónir króna. B) 36 milljónir króna. C) 100 milljónir króna. 30. Öll fískvinnsla og út- gerð á Flateyri fór undir einn hatt í byrjun ágúst þegar þrjú fyrirtæki á staðnum sam einuðust. Hvaða fvrirtæki voru þetta? A) Hjámur, Kambur og Brimnes. B) Ásafell. Básafell og Kög- urfell. C) Vagninn, kerran oghjólið. 31. Hraðbátur einn gjör- eyðilagðist í miklu hvassviðri sem geysaði í ágúst. Báturinn lá við festar hjá Skarðseyri í Skötufirði og þurfti eigandinn að vaða út í brimið til að bjarga því heillegasta. Hvað heitir báturinn? A) Kan. B) Pan. C) Ran. 32. „Þegar ég fékk síðan tilboð um að koma hingað til að ]> jálfa liðið og spila tók ég þá ákvörðun að helga mig ein- göngu körfuboltanum,”sagði Golíat í liði Davíðs í viðtali við blaðið í ágúst. Hvað heitir Golíat réttu nafni? A) Mel Gibson. B) Sal Gibson. C) Sean Gibson. September: 33. „Augun beinast að skipi erlendis frá,” sagði útgerðar- maður einn í spjalli við blaðið í september en á hafði útgerð hans misst af hugsanlegum kaupuin á gömlu Guðbjörg- inni. Hvaða útgerðarfélag er hér um að ræða? A) Ósvör. B) Gunnvör. C) Norðurvör. 34. Vegagerð ríkisins sótti í september um aukafjárveit- ingu til ríkisins vegna vatns- flaums í Vestfjarðagöngun- um. Hversu háa upphæð sótti Vegagerðin um? A) 960 milljónir króna. B) 350 milljónir króna. C) 120 milljónir króna. 35. Flugmaður einn á Isa- fírði sagði m.a. frá því í við- tali við blaðið í september, þegar hann flaug með sundur- skotið fólk í Afríku. Hvaða flugmaður býr yfir þessari reynslu? A) Hörður Guðmundsson. B) Guðmundur Harðarson. C) Hálfdán Ingólfsson. 36. „F.kki langt þar til við færuin öll okkar viðskipti,” sagði Sigurður Þorleifssonar, gjaldkeri Verkalýðs- og sjó- mannafélags Bolungarvíkur við blaðið í september en stjórn félagsins íhugaði þá að færa öll sín viðskipti frá Spari- sjóði Bolungarvíkur vegna hárra þjónustugjalda. Hvert ætlaði félagið með viðskiptin? A) Til Sparisjóðs Önundar- fjarðar. B) Til Sparisjóðs Súðavíkur. C) Til Sparisjóðs Þingeyrar- hrepps. Október: 37. Sjaldséður gestur kom um borð í Kofra frá Súðavík í byrjun október. Gesturinn var færður til hafnar og sleppt þar. Hvaða gestur var hér á ferð? A) Fálki. B) Örn. C) Ugla. 38. Fjölmargir „Skógar búar” hófust handa við að planta fyrstu plöntunum, sem sveitarfélög á Stór-Revkja- víkursvæðinu gáfu Isfirð- ingum, í Tungudal í byrjun október. Plönturnar voru settar niður í lund sem gefið hefur verið nafnið? A) Skógarengi. B) Tunguengi. C) Hlíðarengi. 39. Þrjú fvrirtæki óskuðu eftir því við bæjarsjóð Bol- ungarvíkur i október að fá keyptan hlut þess í útgerðar- fvrirtæki á staðnum. Hvaða útgerðarfvrirtæki vildu fyrir- tækin þr jú kaupa? A) Traðarhyrnu. B) Ósvör. C) fsver. 40. Vestfirskt blað kom út í risaupplagi í október, eða 100.000 eintökum. Blaðinu var dreift inn á hvert heimili á landinu. Hvaða hlað var svona stórtækt? A) Skutull. B) Pilsaþytur. C) Vesturland. Nóvember: 41. Trúbador einn kynnti sinn fyrsta geisladisk í Víkur- bæ í byrjun nóvember að við- stöddu fjölmenni. Hver var hér á ferð? A) Siggi Björns. MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1994 17

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.