Bæjarins besta


Bæjarins besta - 01.03.1995, Blaðsíða 12

Bæjarins besta - 01.03.1995, Blaðsíða 12
VIFILFELL HF Sími 5490 Fax 5491 Opið frá kl. 8 til 17 / / / / ÓHÁÐ FRÉTTABLAÐ ,1.1 Á VESTFJÖRÐUM STOFNAD 14. NOVEMBER 1984 MILLARCO rörberar Frábært verð! GvENPUR Á ÉyRITtlU HAFNARSTRÆ.TI 11" "900 ÍSAFJÖRPUR * SÍMI ^ÝSISS Fegurðarsamkeppni Vestfjarða Frá skíóavikunni 1993. Skfðavikan 1995 Þátttakendur byrj- aðir að skrá sig SJÖTTA Fegurðarsam- keppni Vestfjarða fer fram í Krúsinni á Isafirði laugardaginn l. apríl næstkomandi. Aðstand- endur keppninnar í ár eru Sigríður Ragna Jóhannsdóttir og veitingahjónin Steinþór Friðriksson og Gróa Böðvars- dóttir. Skráning til þátttöku fer fram í síma 94-5445 hjá Sigríði Rögnu. Þegar eru aðstandendum farnar að berast ábendingar um glæsilegar vestfirskar stúlkur og fleiri ábendingareru vel þegnar, og þá sérstaklega frá sveitarfé- lögunum í kring um Isafjörð. Fegurðarsamkeppni Vestfjarða er núorðið haldin einungis annað hvert ár og segja aðstand- endur það ekki vegna þess að framboð vestfirskra kvenkosta sé ónægt, heldur vegna þess að landsfjórðungurinn sé ekki fjölmennur og þeir vilji fremur halda góða og vandaða keppni og telja þetta fyrirkomulag því heppilegast. Fyrirtæki á Isafirði hafa verið ötul að leggja keppninni lið og má þar t.d. nefna Studio Dan, Hárgreiðslustofu Siggu Þrastar, Snyrtivöruverslunina Krismu og Gullauga en þessi fyrirtæki eiga stóran þátt í undirbúningi sem og vinnu við sjálft krýn- ingarkvöldið. Þau fyrirtæki sem vilja leggja keppninni lið eru vinsamlegast beðin að hafa samband við Sigríði Rögnu sem allra fyrst og einnig þeir sem vilja koma á framfæri ábendingar um stúlk- ur, en þær verða að vera eldri en 17 ára og helst hærri en 170 cm. Sú glæsilegasta Tugir nemenda fra upphafi UNDIRBUNINGUR að Skíðavikunni 1995 hófst af fullum krafti fyrir nokkru og hafa fyrirtæki og félagasamtök sýnt mikla þátttöku. Að sögn Ásthildar Cesil Þórðardóttur í skíðavikunefndinni, verður dagskráin glæsilegri en nokkurn tímann en skíðavikan stendur í Dymbilvikunni, eða frá I2. til I7. apríl. „Frumvinnan er að baki. þ.e.a.s. að búið er að ákveða hvað verður á dagskrá í Dymb- ilvikunni en við látum nánari framkvæmdir bíða þar til nær dregur. Hvað varðardagskrána, þá hefur okkur fundist hún ekki hafa höfðað nægilega til ungl- inga og við ætlum af því tilefni m.a. að halda snjóbrettakeppni, ratleik og skíðakross en síðast- nefnda greinin er margþætt og felst í mörgum skemmtilegum þrautum,“ sagði Ásthildur í fréttum af Skíðavikunni. Hún nefndi m.a. að Hjálparsveit skáta verður með grillveislu á Silfurtorgi, hundasveit þeirra mun einnig sýna leit og björgun mannslífa úr snjó og Fagranesið fer með skíðagöngumenn í óbyggðir Hornstranda. Einnig verðamyndlistarsýningar, leik- sýningar, kvöldgleði í Neðsta kaupstað, dansleikir, tónleikar auk allra annarra fastra dag- skrárliða. „Vettvangur atburðanna verður við barnalyftuna í Tungudal, í stað Harðarskála svæðisins áður. Þaðan verður grilldagurinn gerður út, furðu- fatadagurinn og fjölmargt fleira. Þá má nefna að á Eyrinni verður áðurnefndur ratleikur, í Bol- ungarvík verður dorgkeppni gegnum ís og vélsleðarall og farið verður í ævintýra skíða- ferð til Suðureyrar, þannig að reikna má með mikilli þátttöku nágranna sveitarfélaganna — enda verður væntanlega búið að opna jarðgöngin bæði til Flateyrar og Suðureyrar." Vélsleðaóhapp á Breiðadalsheiði Féll fram af snjóhengju VELSLEÐAMAÐUR slapp óskaddaður er hann fór fram af hengju ofarlega í Breiðadal, rétt neðan við Þverfjall, um kl. 14 á sunnudaginn en hann var á vestur- leið ásamt félaga sínum. Menn- irnir voru vel búnir og komust í neyðarskýli Slysavarnafélags ís- lands nokkru neðar og tilkynntu þar atburðinn til lögreglunnar á Isafirði. „Viðhéldumafturtil ísafjarðar á hinum sleðanum og lögreglan hafði þá samband við Ásgeir Mikkaelsson, bónda í Fremri- Breiðadal, og bað hann að svipast um eftir sleðanum. enda voru mikil verðmæti í honum, s.s. vinnuteikningar, farsími og fleira,“ sagði ökumaður sleðans, Þórir Þrastarson. Veður var ekki enn orðið slæmt á heiðinni er atvikið átti sér stað en þó var orðið nokkuð hvasst og skafrenn- ingur mikill. „Ég náði að kasta méraf sleðanum áðuren hann fór fram af og félagi minn slapp einnig. Við horfðum á eftir sleðanum hverfa út í sortann og treystum okkur ekki til að leita að honum. Ásgeir fann sleðann 250 metrum neðan við vettvangsstað og þar stóð hann enn í gangi með ljósin kveikt og án nokkurrar rispu,“ sagði Þórir. Kennaraverkfaiiið leita sér atvinnu A ISAFIRÐI hafa nærri þúsund nemendur orðið fyrir barðinu á kennaraverkfallinu sem nú hefur staðið í tólf daga. Námsfólk á aldrinum 13 til 20 ára hefur talsvert sótt á vinnu- markaðinn af þeim sökum en þegar blaðið hringdi í nokkur fyrirtæki kom í Ijós að þeir skipta mörgum tugum sem hafa þreifað hafa fyrir sér um at- vinnu, en svo virðist sem miklu færri hafi komist að en vilja. Rækjuvinnslan Ritur hefur aðeins getað ráðið örfáa, í Hrað- frystihúsinu Norðurtanga var unnt að ráða þá tólf fyrstu sem sóttu um. Básafelli hefur borist ntargir tugir umsókna en fyrir- tækið hefur engan getað ráðið. Nokkrir hafa fengið svokallaða íhlaupavinnu í Bakka hf. í Hnífsdal en enginn í Ishúsfélagi Isfirðinga hf. Bolludagurinn var á mánudaginn og má grófiega áætia að bakaóar hafi verið samtais um 12. OOO boiiur af því tiiefni í ísfirsku bakaríunum tveimur. Um 2000 boiiur í fjórum tegundum voru bakaðar í Bakaranum og um 10. OOO boiiur í þrettán tegundum í Gamia bakaríinu. Hér eru það Heiða Óiafsdóttir og Ruth Tryggvason í Gamia bakaríinu sem framvísa sýnishorni af irish Coffee boiium. í gær var sprengidagur, dagur öfga- kennds kappáts á saitkjöti og baunum sem ísiendingar jöfnuðu sig senniiega loks á í morgun. í dag fögnum við öskudegi, en samkvæmt Sögu daganna var ösku dreiftyfir iðrandi kirkjugesti í kató/skum sið, og er öskupokasiðurinn taiinn runninn af þeirri athöfn. Sú veðurtrú er tengd deginum að hann eigi 18 bræður með iíkri veðráttu. RITSTJORN 4564 • AUGLYSINGAR OG ASKRIFT 4570

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.