Bæjarins besta - 30.03.2017, Blaðsíða 2
2 FIMMTUdagUr 30. MARS 2017
Útgefandi: Athafnagleði ehf., kt. 690715-0740
Afgreiðsla og ritstjórn: Mánagötu 2, Ísafirði, sími 456 4560
Ritstjóri BB og bb.is: Bryndís Sigurðardóttir, 896 9838, bb@bb.is
Ábyrgðarmaður: Bryndís Sigurðardóttir.
Blaðamaður: Smári Karlsson, 866-7604, smari@bb.is
Auglýsingar: Sími 456 4560, auglysingar@bb.is
Prentvinnsla: Litróf ehf.
Upplag: 2.200 eintök
Dreifing: Íslandspóstur. Dreift án endurgjalds inn á öll
heimili á norðanverðum Vestfjörðum
Stafræn útgáfa: www.bb.is / facebook.com/pages/bbis
Önnur útgáfa: Á ferð um Vestfirði
ISSN 1670-021X
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið bb@bb.is.
Auglýsingar þurfa að berast fyrir kl. 17 á mánudögum
fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum.
ÞJÓNUSTUFULLTRÚI Í
UMFERÐARÞJÓNUSTU
ÍSAFIRÐI
Starf þjónustufulltrúa í umferðarþjónustu er laust til
umsóknar. Um 100% starf er að ræða.
Yfir vetrartímann er unnið á vöktum sem spanna tímann
frá 6:30 til 22:00. Yfir sumartímann er unnin hefðbundin
dagvinna.
Starfssvið
• Miðlun upplýsinga til vegfarenda um færð og veður
• Símsvörun á skiptiborði
• Ýmis úrvinnsla gagna
Menntunar- og hæfniskröfur
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun
• Góð íslenskukunnátta
• Góð enskukunnátta og gjarnan eitt Norðurlandamál
• Góð tölvukunnátta
• Góð þekking á landafræði
• Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt
• Góðir samstarfhæfileikar og þjónustulund
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem
hentar báðum kynjum og í samræmi við jafnréttisáætl-
un Vegagerðarinnar eru konur með umbeðnar hæfn-
iskröfur sérstaklega hvattar til að sækja um starfið
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins við
SFR. Umsóknarfrestur er til 18. apríl 2016.
Umsóknin berist til Vegagerðarinnar á netfangið starf@
vegagerdin.is. Í umsókninni komi fram persónulegar
upplýsingar ásamt starfsferilskrá og upplýsingum um
þá menntun og hæfni sem óskað er eftir.
Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristinn Þröstur
Jónsson í síma 5221619.
Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Almenningssamgöngur í Ísa-
fjarðarbæ og skólaakstur í
Skutulsfirði 2017-2021
Dagsetning opnunar: 11. apríl 2017
Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið:
„Almenningssamgöngur í Ísafjarðarbæ og
skólaakstur í Skutulsfirði 2017-2021“.
Verkið felur í sér að sjá um þjónustu vegna
aksturs almenningsvagna í Ísafjarðarbæ ásamt
akstri skólabarna í Skutulsfirði. Um er að ræða
akstur innan Skutulsfjarðar og milli Skutulsfjarð-
ar, Suðureyrar, Flateyrar og Þingeyrar.
Samningstími er fjögur ár, frá 1. júní 2017.
Útboðsgögn verða afhent hjá Ísafjarðarbæ,
Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði frá og með 23. mars
2017. Tilboðin verða opnuð hjá Ísafjarðarbæ í
Stjórnsýsluhúsinu, 4. hæð, 11. apríl 2017 klukk-
an 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem
þess óska.
Vestfirskir verktakar ehf.
hafa sótt um sjö lóðir á Ísafirði
undir iðnaðarhúsnæði. Í fyrra
og hittifyrra reisti fyrirtækið
þrjár skemmur á Mávagarði og
reyndist vera mikil eftirspurn
eftir húsnæðinu. „Þetta hefur
selst um leið og við finnum
að það er ennþá eftirspurn,“
segir Garðar Sigurgeirsson,
framkvæmdastjóri Vestfirskra
verktaka.
Lóðirnar sem fyrirtækið sótti
um eru Æðartangi 16, 18 og 20
annarsvegar og Neðstafjara 1,
3, 5 og 7. Lóðirnar eru á nýlegu
deiliskipulagi Suðutanga. „Við
fáum ekki allar lóðirnar að
sinni. Erum búnir að fá lóðirnar
á Æðartanga og förum fljótlega
í að láta teikna fyrir okkur hús,“
segir Garðar.
Tvö eða þrjú hús verða reist
á lóðunum og útfærsla þeirra
verður með svipuðu sniði og
iðnaðarhúsin á Mávagarði. Að
spurður hvenær verður hafist
handa við að byggja segir Garðar
það óljóst, en ólíklegt að það
verði byrjað í sumar.
En í Bolungarvík stefnir fyr
irtækið á að hefjast handa í
sumar við að reisa 900 fm iðnað
arhúsnæði. Húsið mun standa á
Mávakambi 13 og alls verða 12
bil í húsinu.
Halda áfram að byggja
iðn aðar húsnæði
Skemmurnar á Mávagarði.
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar
leggst alfarið gegn því að ákvæði
um lágmarksútsvar sveitarfé
laga verði afnumið. Alþingis
mennirnir Vilhjálmur Árnason,
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
og Hildur Sverrisdóttir, öll úr
Sjálfstæðisflokki, hafa lagt fram
frumvarp þar sem ákvæði um
lágmarksútsvar er fellt úr gildi.
Bæjarráð segir að það muni ýta
undir aðstöðumun á milli sveitar
félaga á landinu og samkeppni
þeirra á milli. Jafnframt væri
hætta á því að ójöfnuður í sam
félaginu mundi aukast þar sem
einstaka sveitarfélög gætu boðið
útsvarsprósentu sem væri miklum
meirihluta þeirra ómögulegt að
bjóða. Þá bendir bæjarráð á að
frumvarpið sé líklegt til að mynda
skekkju á milli þess hvar fólk býr
og hvar það þiggur sína þjónustu.
„Rökin fyrir lögbindingu lág
Afnám lágmarksútsvars
ýti undir aðstöðumun
marksútsvarshlutfalls eru þau
að allir íbúar landsins sem
greiða skatt af tekjum sínum
á annað borð skuli greiða sinn
lágmarkshluta af kostnaði við þá
samfélagsþjónustu sem sveitar
félögin veita íbúum landsins.
Þau rök eiga jafnvel við nú
og þegar lögin um tekjustofna
sveitarfélaga vorusamþykkt árið
1995,“ segir í umsögn bæjarráðs.