Bæjarins besta - 19.04.2017, Síða 4
4 MIÐVIKUdagUr 19. APRÍL 2017
Það er margt sem þrífst við
nyrsta haf og hefur þjónustan
sem nálgast má á norðanverðum
Vestfjörðum tekið talsverðum
breytingum síðustu árin. Sum-
staðar bætist í á meðan á öðrum
stöðum dregst saman, í anda
þess hvernig tímarnir breytast
og mennirnir með. Einn þeirra
sprota í þjónustu sem risið
hefur er Hundabaðstofan í Bol-
ungarvík, lítið þjónustufyrirtæki
í Bolungarvík sem tók til starfa
í lok árs 2014. Þar tekur hunda-
snyrtirinn Helena Sævarsdóttir á
móti hundum af öllum stærðum
og gerðum til snyrtingar.
Þeir sem hafa farið með hund-
inn sinn til Helenu geta vitnað
um að hjá henni er sannarlega
nostrað við ferfætlingana sem til
hennar koma og sýnir hún þeim
mikla alúð og nærgætni. Helena
er augljóslega mikil hundakerl-
ing og segir hún að hún hafi alltaf
elskað hunda.
„Ég ólst upp með hundi í 12
ár sem var mín hægri hönd alla
mína æsku og er ég mjög þakklát
fyrir að hafa alist upp með hund
á heimilinu. Ég hef alltaf átt
hunda eða ketti því mér finnst
lífið svo tómlegt án þess. Ég hef
alltaf viljað vinna með hunda
og kviknaði áhugi minn fyrir
alvöru á hundasnyrtingum árið
2014.“ Segir Helena um tilurð
þess að hún fór út í þetta til að
byrja með. Hundasnyrtir er ekki
löggild atvinnugrein á Íslandi
svo það þarf ekki menntun til að
verða hundasnyrtir, en hún hefur
verið dugleg við að sækja sér
þekkingu á faginu og lærði hún
grunninn með því að fylgjast með
hjá færum hundasnyrti og einnig
fékk hún að æfa sig undir hand-
leiðslu hans. Í framhaldi kom
svo Internetið að góðum notum:
„Ég skráði mig í hundasnyrti-
kennslu á netinu og þar var hægt
að fylgjast með tegundaklipp-
ingum og þess háttar. Þegar ég
opnaði stofuna mína var ég ekki
búin að æfa mig mikið sjálf svo
fyrstu mánuðina var ég aðallega
bara að æfa mig og var svo heppin
að fá nokkuð marga hunda til mín
af öllum stærðum og gerðum. En
draumurinn er að fara erlendis og
læra meira.“
Hvernig hafa vestfirskir hund-
eigendur tekið þjónustunni?
„Lygilega vel, vægast sagt. Í
mörgum tilfellum vill fólk bara
prófa, en langflestir koma aftur.
Svo eru margir smáhundar sem
þurfa reglulega klippingu. Hund-
um hefur fjölgað alveg rosalega
á Vestfjörðum og ég fæ hunda í
snyrtingu frá öllum þorpunum
hér í kring.“ Svarar Helena, sem
vart hefur tíma til að líta upp úr
feldunum þessa dagana þar sem
nú er einn annamesti tími ársins,
en vinsælt er að koma með hunda
fyrir páska og jól og einnig eru
svokallaðir niðurrakstrar vinsæl-
ir fyrir sumarið.
En hvernig taka hundarnir
sjálfir þessu?
„Hundar eru auðvitað mis-
munandi karakterar, bara eins og
fólk. Þegar hundar koma í fyrsta
sinn eru þeir eðlilega hræddir
og stressaðir, og þá sérstaklega
við iðnaðarblásarann, en ég
legg mig alla fram við að hafa
snyrtinguna sem bærilegasta ef
þeir eru mikið hræddir. Oftar en
ekki gengur þetta bara mjög vel
og langflestir hundarnir venjast
mjög fljótt. Ég leyfi hundinum
alltaf að skoða sig um, kynnast
mér aðeins og sýni honum tækin
og tólin sem ég nota á hann og
þá gengur þetta yfirleitt mjög vel.
Það þarf líka að öðlast þjálfun og
æfingu í að geta róað hunda niður
og þá sérstaklega stóra og sterka
hunda og að vera ekki hrædd
við að verða bitin. En hundar
Skínandi hreinir og fínir
hundar fara heim að nýju
eftir heimsókn á Hundabað-
stofuna.
Dekstrað við hunda
á bolvískri baðstofu
Helena á Hundabaðstofunni með fjárhundahópinn sinn, Kollu sem er þýskur fjárhundur,
Söru sem er íslenskur fjárhundur og Goða sem er rough collie.
Það getur verið mikil umbreyting á hundum við snyrtingu.
skynja okkur mannfólkið svo vel
og sérstaklega þegar við erum
stressuð, hrædd eða óörugg. En
það eru nokkrir kúnnar hjá mér
sem koma hoppandi glaðir inn á
stofu, hoppa sjálfir upp í baðið
og njóta þess að fá blástur og
það gleður mig ekkert meira en
að snyrta svoleiðis hunda.“
Helena segir að á Hundabað-
stofunni séu lagðar áherslur á
mannúðlegar snyrtiaðferðir fyrir
alla hunda í rólegu umhverfi svo
þeim megi líða sem best á meðan
snyrtingu stendur og notast hún
við hágæða hreinsivörur sem
hentar hverri feldtegund fyrir
sig svo ekki eru óþægindi af
völdum efnanna sem notuð eru.
Hundarnir eru skildir eftir hjá
Helenu og sóttir að snyrtingu
lokinni stroknir og fínir. Það
sem meira er að nánast án undan-
tekninga koma hundarnir alsælir
úr snyrtingunni, líkt og þeir séu
fullkomlega meðvitaðir um
hversu fínir þeir eru.
Kúnnahópur Hundabaðstof-
unnar hefur farið jafnt og þétt
vaxandi frá því er Helena byrjaði
að taka á móti hundum fyrir
ríflega tveimur árum og segist
hún afar þakklát og ánægð
með þá þróun. Til að næla í
tíma í yfirhalningu er hægt að
panta í gegnum fésbókarsíðu
Hundabaðstofunnar, sem og í
síma 895-2625, einnig má fá hjá
henni Brit care og Brit premium
hágæðafóður fyrir bæði hunda og
ketti. annska@bb.is