Bæjarins besta - 19.04.2017, Side 8
8 MIÐVIKUdagUr 19. APRÍL 2017
Vertu
með!
www.uw.is
Viltu eignast
nýjan fjölskyldu-
meðlim í sumar?
Háskólasetrið er að leita að
gestgjöfum fyrir bandaríska
háskólanema 18. júní - 5. júlí
2017.
Upplýsingar veitir Pernilla Rein, verkefnastj.,
pernilla@uw.is s. 820-7579
Hugmyndin að verkefninu
„Bær í barns augum“ kviknaði
hjá kennurum skólans, þar sem
bærinn okkar Ísafjörður átti 150
ára kaupstaðarafmæli síðastliðið
sumar. Í kjölfarið spratt upp sú
hugmynd að bjóða nemendum
að skoða bæinn okkar „betur“ á
nýju skólaári. Hugmyndin var að
skoða bæinn okkar og sjá hann,
finna hann og sýna síðan hvernig
hann er í augum barna. Verkefnið
byrjaði síðan í september 2016 þá
strax var ákveðið að hafa sýningu
á verkum barnanna um vorið.
Með þessari sýningu viljum
við vekja athygli á starfi barna og
gefa innsýn í barnamenningu hér
á Ísafirði. Við viljum meina að
barn geti opnað augu fullorðinna
á svo mörgu, því það sér og tekur
efnavinnu okkar í vetur. Unnum
við eftir Aðalnámsskrá leikskóla
og tengdum við vinnuna öllum
námsþáttum leikskólans og var
læsisverkefni Ísafjarðarbæjar
„Stillum saman strengi“ þar á
meðal.
Í vettvangsferðunum sóttum
við upplifanir og fengu ýmsar
hugmyndir. Einnig nálguðust
börnin efnið úr bókum eða
sögðu frá fyrri upplifunum og
reynslu. En upplifanir hvers og
Bærinn okkar 150 ára
„Bær í barns augum“
Þemaverkefni nemenda leikskólans
Sólborgar veturinn 2016-2017
Björgunarskipin skoðuð í vettvangsferð.
eftir öðrum hlutum í umhverfi
okkar og á annan hátt en við
fullorðnu.
Með því að tengja saman
menningu barna og fullorðinna
viljum við skapa meira traust,
samkennd og virðingu milli
kynslóða og efla tilfinningu
barnsins að tilheyra og að vera
hluti af samfélagi, ásamt því að
hafa hugmyndafræði Reggio
Emilia og aðferðir Könnunarað-
ferðarinnar að leiðarljósi í verk-
Bókasafnið og safnahúsið heimsótt.
Fangaklefar skoðaðir.