Bæjarins besta


Bæjarins besta - 19.04.2017, Side 7

Bæjarins besta - 19.04.2017, Side 7
MIÐVIKUdagUr 19. APRÍL 2017 7 Kristín, hampaði nýlega titlinum íþróttamaður Ísafjarðarbæjar, fjórða árið í röð og var valinn Vest- firðingur ársins 2015 af lesendum bb.is Sumarstörf Kirkjugarðar Ísafjarðar auglýsa eftir sum- arstarfsfólki í kirkjugörðunum. Starfið felst í grasslætti og annarri garðvinnu og hirðingu. Starfsmenn þurfa að geta hafið störf þann 15. maí. Um er að ræða starf í þrjá mánuði. Einnig er auglýst eftir kirkjuverði til að leysa af í 4-6 vikur. Umsóknir skulu hafa borist sóknarnefnd Ísa- fjarðarkirkju, pósthólf nr. 18, 400 Ísafirði, fyrir 3. maí n.k. Nánari upplýsingar veita kirkjuvörður og sóknarprestur í síma 456 3560. Vilja lágmarksíbúafjölda í sveitarstjórnarlögin Á landsþingi Sambands ís- lenskra sveitarfélaga sem haldið var 24. mars, var lögð fram skoðanakönnun um ýmis mál fyrir landsþingsfulltrúa. Meðal annars var spurt hvort sam- bandið ætti að leggja til ákvæði um lágmarksíbúafjölda varðandi stærð sveitarfélaga í sveitar- stjórnarlögin og hver þau mörk ættu að vera ef svarið við fyrri Frá Árneshreppi, fámennasta sveitarfélagi landsins. spurningunni væri já. Rúmlega 63% þeirra sem tóku þátt í könnuninni telja að sambandið eigi að leggja til að slíkt ákvæði verði sett inn í sveitarstjórnarlögin. Þriðjungur svarenda taldi hins vegar að sambandið ætti ekki að leggja það til. Fimm einstaklingar vildu ekki svara spurningunni eða merktu við valkostinn „veit ekki“. Alls svöruðu 136 einstak- lingar könnuninni. Seinni spurningin sneri að því hver lágmarksíbúafjöldinni ætti að vera ef slíkt ákvæði kæmi inn. Alls voru gefnir upp níu valkostir ásamt svarreitnum annað. Flestir eða 20 einstaklingar töldu að lág- markið ætti að vera 3.000 íbúar og þar á eftir kom valmöguleik- inn 1.000 íbúar. smari@bb.is Sigruðu alla leiki lokamótsins Síðasta fjölliðamót vetr- arins í 10. flokki drengja í körfuknattleiksdeild Vestra fór fram á Torfnesi um þar síðustu helgi. Var keppt í B-riðli en Vestradrengir gerðu sér lítið fyrir og unnu alla leiki helginnar. Þeir hófu keppni í haust í D- riðli. Auk Vestra tóku lið Vals, Hauka og Skallagríms þátt en lið Fjölnis þurfti frá að hverfa vegna veðurs en þeir höfðu ætlað að fljúga vestur. Hin liðin þrjú sameinuðust um rútuferð og þrátt fyrir hremmingar á Steingríms- fjarðarheiði mættu þau galvösk til leiks, tæpum þremur tímum á eftir áætlun, og sýndu oft og tíðum flott tilþrif þrátt fyrir langt og strangt ferðalag. Til að koma til móts við Fjölnismenn býðst þeim að leika sína leiki síðar en þegar þetta er skrifað er óvíst hvort af því verður. Lið Vestra skipuðu: Daníel Wale Adeleye, Þorleifur Ingólfs- son, Stefán Snær Ragnarsson, Hugi og Hilmir Hallgrímssyn- ir, Egill Fjölnisson, Krzysztof Duda, Blessed og James Parilla og Friðrik Heiðar Vignisson. Það er Yngvi Gunnlaugsson, yfirþjálfari Vestra, sem hefur stýrt strákunum með þessum góða árangri í vetur. Vestramenn geta verið mjög sáttir við árangur vetrarins. Liðið tapaði einungis þremur leikjum, tveimur í deild og einum í bik- ar. Fæstir leikmannanna eru á 10. flokksaldri og því eru þeir reynslunni ríkari fyrir vikið. Einnig hefur breiddin aukist og nýir iðkendur bæst við. Það sem gerir liðið einstakt er að í því eru drengir allstaðar að af Vestfjörðum; Ísafirði, Suðureyri, Hólmavík og Bolungarvík auk þess sem þjálfarinn hóf sinn körfuboltaferil á Tálknafirði. smari@bb.is 0. flokkur drengja að móti loknu um helgina ásamt Yngva Páli Gunnlaugssyni, þjálfara og Nebojsa Knezevic, sem var aðstoðarþjálfari Yngva á mótinu en Nebojsa hefur lengi komið að þjálfun drengjanna. Kristín setti fjögur Íslandsmet Kristín á Íslandsmóti Íþróttasambands fatlaðra. Mynd/ Jón Björn, ifsport.is Ísfirska sundkonan Kristín Þorsteinsdóttir hjá íþróttafé- laginu Ívari heldur áfram á sigurbrautinni í sundinu. Um þar síðustu helgi keppti hún á Íslandsmóti Íþróttasambands fatlaðra í sundi í 50m laug sem fram fór í Laugardalslaug og var þar í fyrsta sinn keppt í flokki S16, sem er flokkur fyrir fólk með Downs heilkenni. Það gerir það að verkum að nú getur Kristín ekki bara keppst við að setja Evrópu- og heimsmet líkt og fram til þessa, heldur einnig Íslandsmet og gerði hún sér lítið fyrir og setti á mótinu fjögur slík. Kristín keppti í fjórum greinum á mótinu og setti hún Íslandsmet í 50m flugsundi, bæði 50m og 100m með frjálsri aðferð þar sem hún synti skrið- sund og í 50m baksundi. Hún bætti því fjórum gullpeningum í verðlaunapeningakistu sína sem er orðin ansi vegleg. annska@bb.is

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.