Bæjarins besta - 19.04.2017, Side 6
6 MIÐVIKUdagUr 19. APRÍL 2017
Listin gengur oft í ættir og
svo læra líka börnin það sem
fyrir þeim er haft. Þó húsfreyjan
Unnur Thoroddsen starfaði ekki
í listinni þá spilaði hún mikið
á píanó. Þegar auð stund gafst
settist hún við klaverið og á
sömu stund skondraðist Skúli
sonur hennar við fætur mömmu
og lagði eyrað við hljóðfærið.
Hér erum við sannarlega að
tala um músíkeyra. Það hafði
okkar vestfirski listamaður en
hann heitir Skúli Halldórsson.
Á unga aldri var hann búinn að
ákveða að hann ætlaði að verða
píanóleikari og varð gott betur
en það því hann varð einnig
tónskáld. Fæddur og uppalinn
á Flateyri og til að styrkja
ættarlistakenninguna skal þess
strax getið að langafi hans var
skáldið Jón Thoroddsen og amma
Skúla er þuludrottningin Theó-
dóra Thoroddsen. Ekki má svo
gleyma Muggi frænda. Seinna
átti Skúli eftir að semja músík
við verk þessarar einstöku lista-
þrenningar. Engum sögum fer
hinsvegar af listagáfum föðursins
Halldórs Georgs Stefánssonar er
starfaði sem læknir á Flateyri.
Hinsvegar fara alltof margar
vínsögur af doktornum enda
fór það svo að hann var settur
úr embætti. Fjölskyldan tók sig
upp og flutti á Ísafjörð hvar hús-
bóndinn fékkst við læknisstörf.
Á Ísafirði var meðal kennara
Skúla alþýðulistamaðurinn Jón
Hróbjartsson. Hann var eins og
allir listamenn í mörgum störf-
um, var með meiru stjórnandi
barnakórs og undirleikari um
leið. Þá var nú gott að hafa lítið
músíkséní í hópnum eins og hann
Skúla sem ósjaldan var settur
við orgelið meðan stjórnandinn
reyndi að leiða krakkaskarann á
réttu tónana. Fjölskyldan fluttist
loks til Reykjavíkur og var Skúli
þá ósjaldan hjá Theódóru ömmu
í Vonarstræti 12 enda var þar
jafnan fjölmenni og mikill erill
jafnvel bara eins og á fjörugustu
listamannaknæpu. Skúli settist á
skólabekk í Ingimarsskóla hvar
Þórbergur Þórðarson var meðal
kennara hans og þaðan lá leiðin
í Verslunarskóla Íslands. Það
var einmitt á Verslunarskóla-
skemmtun í Iðnó 1932 sem Skúli
kom fyrst fram opinberlega sem
píanóleikari. Hann var þegar
byrjaður að semja músík á þess-
um árum m.a. Jójó-valsinn og
voru nóturnar gefnar út sérstak-
lega og seldust vel. Sumir vilja
meina að þar hafi skipt mestu
að það var mynd af hinu unga
tónskáldi á forsíðunni. Þetta
var aðeins upphafið og síðan
fylgdu fjölmargar útgáfur laga
hans á prenti. Árið 1941 kom
út sönglagahefti Skúla hvar
öll lögin voru við ljóð langafa,
Jóns Thoroddsens, þar á meðal
Smaladrengurinn eitt hans vin-
sælasta lag. Áform Skúla um að
leggja músíkina fyrir sig höfðu
hinsvegar ekkert breyst en það
er jú alltaf gott að hafa eitthvað
með listinni. Þannig var það hjá
Skúla sem starfaði lengst af á
kontórnum hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur.
Leiðin lá loks í Tónlistarskóla
Reykjavíkur hvar hann stúderaði
bæði píanóleik og tónsmíðar.
Skúli var gífurlega afkastamikið
tónskáld ekki síst þar sem hann
stundaði aðra vinnu með listinni.
Samdi hann vel á annað hundrað
tónverka bæði hljómsveitar- og
kammerverk sem og fjöldamörg
sönglög. Mörg verkanna hafa
komið út í nótnaheftum, hljóm-
plötum og geisladiskum. Eins og
áður var getið var hann iðinn við
að semja músík við verk eigin
ættar. Hann leitaði þó einnig
fanga útfyrir ættina og samdi
m.a. músík við ljóð Vilhjálms frá
Skáholti en þeir voru jafnframt
góðir mátar, Einars Benedikts-
sonar, Jóhannesar úr Kötlum og
hins vestfirska Steins Steinarrs.
Skúli var einnig undirleikari
hjá mörgum stórsöngvaranum
mætti þar nefna Kristinn Halls-
son og Sigurð Ólafsson. Hann
var og mjög virkur í félagsstarfi
músíkskálda hér á landi árið
1950 settist hann í stjórn bæði
Tónskáldafélags Íslands og hins
umdeilda STEFS. Stórmúsík-
Vestfirskir listamenn
Skúli Kristján Halldórsson
F. 28. apríl 1914 Flateyri. D. 23. júlí 2004.
Öndvegisverk:
Smaladrengurinn, Linda, Augun þín
Æfisaga Skúla er sérlega op-
inská og hressandi lesning.
Nótnahefti með vinsælasta og umtalaðasta slagara Skúla
Nótnahefti með sönglögum við ljóð langafa Skúla.
Skúli Halldórsson frá Flateyri.
skáldið Jón Leifs barðist eins og
riddari fyrir hönd sinna kollega
og var Skúli hans bandamaður.
Enda tók hann við stjórnartaum-
unum þar á bæ eftir að Jón hélt á
önnur svið. Alls starfaði hann í
um fjóra ártugi í stjórnum þessara
félaga auk þess átti hann sæti í
stjórn Bandalagi íslenskra lista-
manna í áratug.
Þekktasta lag Skúla er án efa
valsinn Augun þín sem hann
samdi til lífsförunautar síns
Steinunnar Guðnýjar Magnús-
dóttur. Ástæðan er sú að 16 árum
eftir að hann samdi valsinn sló
franska lagið Dómínó í gegn um
heim allan og þótti Skúla lagið
mjög keimlíkt sínu. Hann leitaði
til STEFS með málið sem hafði
svo aftur samband við samskonar
félag þeirra Frakka. Utanað-
komandi aðilar tóku málið fyrir
og komust að þeirri niðurstöðu
að bæði verkin væru sjálfstæð
og því hefði hinn franski ekki
nappað laginu frá kollega sínum
á Íslandi. Málið vakti svo mikla
athygli hér á landi að úr varð sér-
stök gamanvísa við hið franska
lag, Dómínó, er Brynjólfur
Jóhannesson, leikari, flutti með
bravúr og söng þá m.a.:
Domino, Domino,
finnst mér afi þinn íslenskur vera.
Um þig stendur styr,
sextán árum fyr
Skúli samdi þig og þó
Þykistu vera frönsk, Dominó?
Rétt er að benda áhugasömum
lesendum á hina hressilegu og
mjög svo opinskáu ævisögu
Skúla, Lífsins dóminio, 1992,
sem er einmitt aðalheimild þessa
greinakorns.
Elfar Logi Hannesson
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Atvinna
Starfsmann vantar til starfa í eldhús stofn-
unarinnar, þarf helst að geta hafið störf 1. maí.
Nánari upplýsingar á vef stofnunarinnar www.
hvest.is