Bæjarins besta - 19.04.2017, Page 9
MIÐVIKUdagUr 19. APRÍL 2017 9
Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl nk. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 23. apríl nk.
Umsóknir sendist á isafjordur@netto.is Allar nánari upplýsingar veitir Ingólfur Hallgrímsson verslunarstjóri
á staðnum og í síma 893-0456
STARFSSVIÐ: HÆFNISKRÖFUR:
• Ábyrgð á rekstri verslunar
• Samskipti við viðskiptavini og birgja
• Ábyrgð á vöruframsetningu og áfyllingum
• Ábyrgð á birgðahaldi í verslun sem og önnur
tilfallandi störf.
• Reynsla af stjórnun hjá verslunar- og/eða
þjónustufyrirtækjum.
• Styrkleiki í mannlegum samskiptum, sjálfstæð
vinnubrögð, skipulagshæfni og reglusemi.
Umsóknir sendist á isafjordur@netto.is Allar nánari upplýsingar veitir Ingólfur Hallgrímsson verslunarstjóri á
staðnum og í síma 893-0456
AÐSTOÐARVERSLUNARSTJÓRI
NETTÓ ÍSAFIRÐI
Nettó opnar nýja og glæsilega verslun á Ísafirði þann 19. maí næstkomandi.
Af því tilefni leitum við nú að jákvæðum starfskröftum í eftirfarandi störf.
ALMENN VERSLUNARSTÖRF
Áhersla er lögð á styrkleika í mannlegum samskiptum, sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfni, reglusemi og árvekni í hvívetna.
eins getur verið mjög misjöfn,
og fer bæði eftir þroska og fyrri
reynslu. Börnin unnu síðan úr
upplifunum sínum, þar sem ýms-
um spurningum var velt upp og
reynt að svara, bæði af börnum
og fullorðnum, hvað er líkt eða
sameiginlegt með fyrri reynslu.
Þau deildu þeim síðan með hvort
öðru og sameiginlega fengu þau
hugmyndir að framhaldinu, eða
komu sér saman um framhaldið
með aðstoð kennarans.
Hlutverk kennaranna var að
örva athyglina, ímyndunaraflið
og styrkja börnin í að mynda
sér skoðanir á viðfangsefninu.
Kennarinn notaði mismunandi
orð, hugtök og lýsingarorð um
sama efnið. Hann leyfði sér
að búa til ímyndir sem „stand-
ast“ engin rök til að nálgast
efnið og búa til upplifun með
börnunum í gegnum „ævintýri/
ímyndunarleiki“. Þannig hjálpar
kennari barninu að þjálfa sig í að
ígrunda, móta sér skoðanir og
vera skapandi í hugsun en ekki
bara móttakandi.
Þau verkefni sem hafa ver-
ið tekin fyrir eru til dæmis.
Nafnið Ísafjörður; Húsin okkar;
Bókasafnið; Búðirnar okkar;
Bakaríin; Hafnirnar; Kirkjan;
Fjaran, Fjöllin og margt fleira.
Hluti af verkefnum barnanna
verða til sýnis í gluggum fyrir-
tækja og stofnana í páskavikunni,
víðsvegar um bæinn. Um leið
og við þökkum fyrirtækjum og
stofnunum kærlega fyrir aðstoð-
ina í að koma barnamenningu
leikskólans á framfæri, viljum
við hvetja bæjarbúa og gesti að
ganga um bæinn og kíkja í glugga
eða fara inn í verslanir eins og
Hamraborg, Samkaup, VÍS,
Pennann Eymundson, Vélsmiðj-
una Þrym, Vesturafl, Ráðgjafa-
og nuddsetrið og TM.
Að lokum langar okkur að
segja frá því að elstu börnin
leikskólans munu vera meðal
þeirra sem setja Skíðavikuna
miðvikudaginn 12. apríl með
söng. Einnig viljum við benda
gestum og bæjarbúum á, að í
samstarfi við veitingastaði og
bakarí bæjarins bjóða börn og
kennarar upp á upplifun, sem er
að sjá með „barns augum“. Með
því vill Leikskólinn Sólborg
sýna að það býr svo margt í
margbreytileikanum og að lífið
er ekki bara einsleitt.
Gleðilega páska með kærri
kveðju, nemendur og kennarar
Sólborgar.
Gamlabakaríðið heimsótt.
Í hópastarfi.
Í könnunarferð. Ísafjörður skoðaður.