Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.08.1996, Síða 3

Bæjarins besta - 21.08.1996, Síða 3
Guðmundur Fy/kisson, einn úr 20 manna hópi íslenskra lögreglumanna sem fór ti! At/anta til að starfa vió öryggisgæs/u á Ólympíuleikunum Það eina sem stóðst var hiflim Guðmundur Fylkisson, lögreglumaður á Isafirði, fór ásamt 19 öðrum lögreglumönnum víðsvegar af landinu til Atlanta í Bandaríkjunum til að starfa við öryggisgæslu á Olympíuleikunum. Um 2,200 lögreglumenn víða að úr heiminum komu saman í Atlanta og nágrenni til að hjálpa til við öryggisgæslu í kringum leikana. Því miður þá var aðbúnaður ekki upp á það besta fyrir lögreglumenn heimsins og margir snéru heim á leið er þeir sáu hvernig í pottinn var búið. Lögreglumönnunum var plantað í eitt versta hverfi borgarinnar þar sem glæpir eru tíðir og hvítum mönnum ekki ráðlegt að stíga fæti inn fyrir. Guðmundur kom til landsins í síðustu viku eftir fimm vikna viðburðarríka dvöl í Atlanta, þar sem skipulagsmálin voru í molum. flllt skítugt og fullt af skordýrum ður en Guðmundur og félagar fóru til Atlanta, þá var gengið út frá því að hópurinn myndi vera í ólympíuþorpinu. Það breyttist síðan, en að sögn Guðmundar voru lögreglumennirnir ekki látnir vita með almennilegum hætti. „Það breyttist vegna þess að þeir reiknuðu með 10,000 keppendum og fylgdarliði þeirra, en þeir fengu 15,000. Aðstaðan sem við áttum að fá var tekin undir íþróttamenn. Við vorum látin gista í Morehouse háskóla- þorpinu, þar sem Martin Luther King gekk í skóla. Við vorum sett í lakari hlutann af þessum heimavistarblokkum og það var allt grútskftugt og l'ullt af skor- dýrum þegar við koinuin. Það tók eitthvað á þriðju viku að fá kústa, og þess háttar til þess að geta þril'ið í kring um okkur. Áður en við fórum út vorum við látin senda inn ferðaáætlunina þannig að þeir vissu nákvæmlega hvenær við kæmum. Svo þegar við komum þá var ekkert tekið á móti okkur, og þurfum við að «a okkur sjálf. Síðan fórum við á móttökustöð þar sent átti að taka I og afhenda okkur þar til gerð skilríki þannig að við gætum gengið um svæðið. Það tók fjóra daga að fá þessi skilríki þannig að við gátum lítið farið þessa fyrstu daga. Þegar við komum í Morehouse þar sem við gistum, þá stóðum við í þeirri meiningu í fyrstu að þetta væri bara bráðabirgða, að það ætti að koma okkur fyrir einhvers staðar annars staðar. En það varð nú aldrei.“ Margir fúruífrí „Við fórum á námskeið þar sem okkur var kennd múgstjórnun, og einnig hvernig á að nota málmleitartæki, vopnaleitartæki og röntgentæki lil að taka allar töskur og pakka í gegn. Á vetrar- ólympíuleikunum í Lillehammer í Noregi þá tók svipað námskeið tvær vikur, en í Atlanta fóru þeir í gegn um þetta á tveimur dögum. Síðan fengu menn að vita hvar þeir áttu að vinna og vinnuskráin breyttist dag frá degi, og var það aðeins til að auka óánægjuna. Sumir áttu að byrja að vinna strax, aðrir eftir hálfan mánuð. Þetta varð nú til þess að það var fjöldi fólks sem bara fór, fór bara í frí eða eitthvað. Yfirmaður öryggisgæslunnar lét hafa eftir sér að menn hefðu staðið í einhverjum misskilningi með það að þeir væru að koma út til þess að fara í frí, en þeir sem fóru í viku til tíu daga ferðir fóru vegna þess að þeir voru búnir að fá nóg og vildu bara koma aftur þegar ólympíuleikamir byrjuðu. Af þessum 1200 lögreglumönnum sem komu til að vinna við gæslu í Atlanta, voru yfir 300alfarnirheim áður en að ólympíuleikarnir byrjuðu." Hvítip lögreglumenn efst á lista „Fjórða júlí vaknaði einn lögreglumannanna við það að fá byssukúlu í gegn um gluggann hjá sér og hún stoppaði í veggnum fyrir ofan rúmið hans. Það var skotbardagi í einu hverfinu þarna fyrir utan og kúlan rataði þarna inn um gluggann hans. Þrátt fyrir að þetta væri blökkuntanna hverfi, þá skynjuðum við aldrei þessa andúð eða annað slíkt hjá íbúum hverfisins. Eftir því sem bandaríkjamenn sögðu okkur, þá var það tvennt sem efst á lista yfir það sem nágrannarnir hötuðu, og það var annars vegar hvítir menn og hins vegar lögreglumenn. Þarna settu þeir semsagt 1000 hvítar löggur svo að menn voru sífellt hræddir um sig þarna. Mönnum var ógnað þarna fyrir utan, einum var ógnað með byssu, og síðan fundu þeir upp á húsþökum í nágrenninu vopnaða unglinga sem menn voru hræddir um að væru að undirbúa sig undir að fara að skjóta inn á lóðina hjá okkur. Þetta var allt afgirt, það var aðeins ein leið inn í skólaþoipið.“ Fimm myrtir í okkar hverfi „Við Islendingarnir urðum ekki fyrir neinu. Við vorum mikið á ferðinni þarna að degi til, og málið var að við umgengumst þetta fólk bara eins og hvern annann, ekki með neinum fordómum. Ég held að þau hafi fundið það og fyrir vikið voru þau sátt við okkur. Aftur á móti þegar komið var myrkur þá vorum við lítið á ferðinni um hverfið. Ef það sást einhverstaðar einhver á götunni, þá tók löggan hann bara upp í og kom viðkomandi heim. Þeir voru ekkert að taka séns á neinu. I tveimur götum frá okkur var m.a. lögreglumaður frá Atlanta skotinn fyrstu vikuna. Fyrstu 12 dagana sem Olympíuleikarnir stóðu yfir, þá voru 12 menn myrtir í Atlanta, og 5 þeirra voru myrtir í okkar hverfi. Þannig að hverfið var svona frekar skuggalegt." Leitað á 10,000 áhorfendum „Ég var að vinna þar sem hnefaleikakeppnin fór fram. Við vorum þar átta lögreglumenn víðsvegar að úr heiminum, og við stjórnuðum öryggisgæslu á ákveðnum svæðum við hnefaleikana. Þetta var öðruvísi vinna, þarna vorum við að laka 10,000 áhorfendur í gegn um vopnaleitarhlið. Það þurfti að leita í öllum töskum áðuren viðkomandi fékk að ganga í gegn um hliðið. Þetla var svona 2/i tíma törn þar sem var alveg hrúga af fólki yfir manni. Eftir að sprengjan var sprengd í garðinum, þá fengum við eina herdeild, 30 hermenn, sem sáu um að leita í töskunum og leita á fólki." Beiot undir íslenska fánanum „Það má segja að Olympíuleikarnir sjálfir hafi farið að mestu leiti fram hjá mér. Ég sá þama nokkra bardaga í hnefaleikakeppninni. Við höfðum gengið út frá því að geta farið á aðra viðburði, en það var ekkert. Ég t.d. gat ekki farið í heimsókn til íslendingana inn í Ólympíuþorp. Ég fékk miða á handbolta og blak, en ég gat ekki nýtt mér það því ég var í vinnu þegar það var. Okkur var boðið á general prufuna fyrir opnunarhátíðina, og sáum við hana alveg frá a-ö, nema að fþróttamennirnir voru ekki. Það var svolítið skentmtileg tilviljun að þegar ég var búinn að finna mitt sæti á leikvangnum og búinn að koma mér fyrir, þá varð mér litið upp og þá sat ég beint undir íslenska fánanum!" Algengt að þurfa að bíða í 2-3 tíma „Samgöngumálin voru ein harmleikssagan. Rútubílstjóramir rötuðu aldrei, það tók t.d. klukkutíma að fara leið sem átti ekki að taka nema 15 mínútur. Það var alltaf nýr bílstjóri á hverjum degi, þannig að það var alltaf sama baslið. Það gekk síðan upp og ofan að sækja okkur úr og í vinnu, en algengt var að menn þyrftu að bíða í 2-3 tíma. Þar sem Sýnishorn af ,,snyrtimennskunni“ í Morehouse. Myndin er tekin i matsainum. Guðmundur ásamt vini sínum, Jimmy frá Jóm- frúareyjum, sem var aðstoðar-öryggis vett- vangsstjóri við hnefaieikakeppnina. Frá inngangnum að hnefaieikakeppninni, en þarna var ieitað á um 10,000 áhorfendum á rúmum 2 tímum. ég var að vinna þar biðum við aldrei, við fórum bara með lest því það var það stutt í lestarstöðina frá mínum vinnustað, og síðan voru um 2 km. frá lestarstöðinni og heim í íbúðarhverfi. Þeir voru með þrjá 8-10 manna sendiferðabíla til að ferja lögreglumennina milli þorpsins og lestarstöðvarinnar. Þó að við værum frjáls allra ferða okkar og gætum farið hvert sem við vildum, þá vorum við miklu meira inn í þorpinu heldur en að þvælast eitthvað út í bæ. Samgöngurnar buðu ekki upp á það að fara neitt. Ef við vildum taka lest þá var það happdrætti vegna þess að þær voru alltaf yfirfullar. Okkur var líka varað við að ferðast með lestum, sérstaklega eftir sprenginguna, vegna þess að það sem væri viðkvæmast og væntanlega næst væru lestarnar. Þannig að maður var ekkert að leika sér að ferðast með lestum með það yfirvofandi að þær yrðu sprengdar." flllt fullt af bjor „Maturinn var einnig ekkert til þess að hrópa húrra fyrir. Þegar við komum t.d. heim eftir kvöldvakt, þá var ekkert til og ekki hægt að komast í neitt. Loksins eftir mikið basl komu þeir með brauð fyrir okkur, en það voru þá kannski 4-5 brauð fyrir 200 manns, sem dugaði náttúrulega ekki neitt. Ef þú komst seint heim þá var allt búið. Áður en við komum höfðu skipuleggendur leikanna ráðlagt okkur að drekka mikið af vatni og lítið af áfengi vegna hins háa hita. Þrátt fyrir þessa aðvörun þá buðu þeir bara upp á bjór í tonnatali í þorpinu þar sem við gistum. Þá var þetta öfugt við það sem þeir sögðu. Það var ekki fyrr en á fjórðu viku, þegar við vorum búin að kvarta oft og mikið, að við loksins fengum vatn á flöskum." Hitinn þaö eina sem stúðst „Þetta var upplifun, og þegar þetta er búið þá hefði ég ekki viljað missa af þessu. Það var oft þannig að ég var á leiðinni heim. Maður var bara svo svekktur yfir meðferðinni á sjálfum sér, að maður skyldi sætta sig við svona lagað. En svo ákvað ég nú að klára þetta, taldi að þetta gæti ekki versnað, en þá var alltaf eitthvað svona smáatriði sem að versnaði á hverjum degi. Við vorum orðin bæði andlega og líkamlega þreytt þegar þetta var búið. Það eina sem stóðst í þessari ferð var hitinn. Allt annað sem þeir sögðu við okkur brást. Við vorum að grínast með að þeir hefðu skipulagt þetta svo vel að þeir gerðu ekki ráð fyrir að það gæti eitthvað klikkað. og þegar það fór að klikka þá var hvergi í skipulaginu gert ráð fyrir að það væri hægt að bregðast við því, og þá valt þetta upp á sig og varð alltaf verra og verra. Þeir vildu ekki trúa því og sætta sig við að þetta gengi ekki alveg upp, og þar af leiðandi versnaði þetta. Vandamálunum fjölgaði á hverjum degi. Það fóru það margir heim og þá jukust bara vandamálin því þá vantaði mannskap til að sinna þessum málum. Þegar menn sáu að það var ekkert gert og þessu ekkert stjómað frá höfuðstöðunum, þá tóku menn þetta bara að sér sjálfir. Það var 10-15 manna hópur sem hefði annars átt að vinna við öryggisgæsluna sem var bara að vinna að því að gera þetta sæmilegt í lögreglumanna þorpinu. Túk Ólympíuleikana fram fyrir fæðingu dúttur sinnar „Það er alver ljóst að þelta var reynsla og mikil upplifun. Við kynntumst þarna lögreglumönnum frá 50 öðrum löndum. Þctta er hlutur sem ég hefði ekki viljað missa af, en ég þurfti líka sð leggja mikið á mig fyrir þetta. Hefði ég vitað að þetta yrði svona áður en ég fór, þá hefði ég aldrei farið í upphafi." Guðmundur ákvað að fórna því að vera viðstaddur fæðingu dóttur sinnar til að geta verið að vinna áÓlympíuleikunum. Dóttirin lét þó bíða eftir sér í níu daga, og aðeins munaði tveimur dögum á því að Guðmundur næði að vera viðstaddur fæðinguna. ..Maður sat og beið ofan á allt annað, og ég var farinn að hugsa sem svo að ég hefði betur átt að vera heima og vera viðstaddur fæðingu míns eigin barns heldur en að standa í svona vitleysu, en svona fór þetta." MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1996 3

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.