Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.08.1996, Page 5

Bæjarins besta - 21.08.1996, Page 5
Mikill hamagangur var í böruburðinum Landshlutamót unglingadeilda Slysavarnafélags íslands á Vestfjörðum var haldið þann 10. ágúst að Dynjandisvogi í Arnarfirði. Um 50 unglingar frá Vestfjörðum á aldrinum 13-18 ára tóku þátt í mótinu. Að sögn Halldórs Ola Hjálmarssonar, Björgunarsveitinni Tindum, þá er þetta í fyrsta skipti sem haldið er landshlutamót. „Það hafa alltaf verið haldin landsmót unglinga einu sinni á ári, en þetta var orðið svo stórt og dýrt að ákveðið var að halda landsmótin og landshlutamót til skiptis, þ.e. annað hvort ár." Mætt var á svæðið á föstudagskvöldið og síðan byrjaði mótið kl. 9 á laugardagsmorgninum. Krökkunum var skipt í fjóra hópa á fjórar stöðvar, þ.e. slöngubáta, kajaka, sig, og fluglínutæki/ snjóflóðalína, og var hver hópur í um l'A tíma á hverri stöð. Keppt var í böruburði, kveikt var í varðeldi, grillað og ýmislegt fleira var gert til skemmtunar. Unglingastarfið er mjög mikilvægur hluti af starfi Slysavamafélagsins. Nauðsynlegt er að þjálfa upp yngra fólkið til að taka við af þeim eldri, en sumar sveitir hafa komist í vandræði er allir í björgunarsveitinni hafa verið komnir á eldri ár og engin endurnýjun átt sér stað. Það eru um 35 unglingadeildir á landinu, og að sögn Hjálmars er verið að ráða sérstakan starfsmann hjá Slysavarnafélaginu sem mun einungis starfa við að sinna þeim. Frá því að unglingadeildirnar byrjuðu, hafa þær haft sinn eigin fulltrúa í stjórn Slysavarnafélagsins, en um þessar mundir eru þær mesti vaxtabroddurinn í félaginu. Svangir mótsgestir gæða sér á griiiuðum pyisum. r: íR f i Æ ^JJll ’ ii*f tnúurgerð Suws Sunnudaginn 18. ágúst síðastliðinn, á 210 ára afmæli Reykjavíkur, var haldin hátíð í hinum nýja ísafjarðarbæ. Tilefni þeirrar hátíðar var vígsla Skrúðs á Núpi í Dýrafiröi. Garðurinn, sem var hugmynd og hugsjón séra Sigtryggs Guðlaugssonar á Núpi hefur verið endurgerður í upprunalegri mynd. Nú eru liðin 90 ár frá því séra Sigtryggur hófst handa og braut land til ræktunar Skrúðs og 87 ár frá því höfundur hans gaf garðinum nafnið, sem ráðið hefur almennri nafngift slíkra garða. Þeir eru kallaðir skrúðgarðar. Af mikilli eljusemi þeirra hjóna, hans og seinni eiginkonunnar, Hjaltlínu Margrétar Guðjónsdóttur, varð gai ðurinn undravert afrek á norðanverðum Vestfjörðum. Fáir munu í upphafi hafa liaft trú á því að svo vel tækist til sem raun ber vitni. í nærri heilan áratug hafði garðurinn verið látinn sjá um sig sjálfur þegar framkvæmdanefnd tók sig til 1992 og hóf endurreisnina sem heppnast hefur prýðilega. Margir hafa lagt hönd á plóginn. Fjárveitingavaldið, alþingi, hefur stutt framkvæmdina og undir forystu skólastjóra Garðyrkjuskóla ríkisins hafa nemendur hans komið vel að verki. Sóma séra Sigtryggs og frú Hjaltlínu hefur verið gætt. Menntamála- ráðherra, Björn Bjarnason, skýrði frá því að ríkisstjórnin hefði fallist á að gefa ísafjarðarbæ Skrúð. Vissulega er það svo að gjöf sér æ til gjalda. Isafjarðarbæ er einnig vandi á höndum næstu árin að koma böndum á fjármál sveitarfélagsins. En hvers virði er þessi garður kunna margir að spyrja? Enginn deilir um þýðingu starfa séra Sigtryggs fyrir menntun á Vestfjörðum. Hann ruddi brautina af stórhug í anda lýðskólastefnu Grundtvigs. Og fleiri fylgdu honum. Að Núpi var rekinn alþýðuskóli og síðar héraðsskóli til 1992. Framtíð þessa menntaseturs er óviss eins og stendur. Ræktunarstefna stofnandans í bókstaflegum skilningi, eins og hún birtist í garðinum, er minnisvarði um framsýni og sýnir okkur nútímamönnum hvers Vestfirðingar eru megnugir þegar viljinn er fyrir hendi. Einmitt þess vegna er nauðsynlegt að standa vörð um Skrúð og einnig þá menntunarhugsjón sem þar bjó að baki. Táknrænt gildi þessa staðar er mikið. Vilji stofnandans stóð til þess að aðrir tækju upp merkið. I lífsbaráttunni er nauðsynlegt að gefa gaum ræktun hugar og menningar, jafnt og gróðurs. Hið síðastnefnda er í samræmi við sívaxandi áhuga fólks l'yrir umhverfi sínu. Hið fyrrnefnda er okkur Vestfirðingum nauðsynlegt, ætlum við á annað borð að halda okkar hlut í fræðslumálum. Auk þess er ávallt nauðsynlegt að festa ekki svo hug mannsins við lífsbaráttuna að önnur gildi gleymist. Samspil allra þessara þátta er farsælasta leiðin. Opinber heimsókn forseta íslanús CTálMMID Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, er á leið í hinar gömlu ísafjarðarsýslur í opinbera heimsókn. Hún verður jafnframt sú fyrsta sem nýkjörinn forseti tekst á hendur. Væntanlega kemur hann um mánaðamót, nánar tiltekið 30. ágúst og lýkur henni 2. september næstkomandi. Ólafur Ragnar Grímsson er Vestfirðingur, fæddur og uppalinn á ísaftrði og með sterkar rætur þar og á Þingeyri. Það er vel við hæfi að fyrsta heimsóknin skuli einmitt vera í Isafjarðarbæ, Bolungarvík og Súðavík. En þessi sveitarfélög taka nú yfir landsvæðið sem áður tilheyrði Isafjarðarsýslum, þótt skiki af Norðursýslunni tilheyri nú Strandamönnum. Saga Vesfirðinga er samofin sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Glæsilegasti fulltrúi hennar, Jón Sigurðsson, fæddist á Hrafnseyri, þar sem nú er verið að endurbyggja fæðingarbæ hans. Síðar varð hann þingmaður Isfirðinga á endurreistu Alþingi 1845 og átti þar sæti til dánardags 1879. En Isfirðingar sóttu fram á síðustu öld og þessari í verslun og viðskiptum. Endurreisn togaraútgerðar rís hæst á Isafirði og í Isafjarðarsýslum á áttunda áratug þessarar aldar. Fyrsti ráðherra Islands kom frá Isafirði, Hannes Hafstein sýslumaður. Svo mætti lengi telja, enda hafa margir Vestfirðingar og Isfirðingar í víðasta skilningi þess orðs, setið í ríkisstjórnum og haft áhrif í þjóðfélaginu. Heimsókn forseta er fagnað. -Stakkur. MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1996 5

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.