Bæjarins besta - 21.08.1996, Síða 11
LJOTT
LÝGUR
SKISAGAN
31 * "t"
ntinm áf
jjJmiwmonwM,
nswmmumm oo
Im'mJpjjMoúiL
Tvö rússnesk skip
15. ágúst landaði í ísafjarðarhöfn rússneska skipið Odincova 105 tonnum af rækju frá
Nýfundnalandi. Daginn eftir landaði einnig rússkneskt skip, Narimanovsk, en ekki er búið að
landa úr því ennþá, en aflinn mun fara til vinnslu í íshúsfélagi Isfirðinga. Oskar Halldórsson kom
inn 15. ágúst með 23 tonn af rækju, en hann er hættur og verið er að selja hann. 17. ágúst kom
Gissur ÁR með 46 tonn af frosinni rækju sem fór til vinnslu í Básafell.
Freyöís afíahæst
Einn línubátur, Völusteinn, landaði í síðustu viku í Bolungarvíkurhöfnl,8 tonni í 2 róðrum. 26
færabátar lönduðu 55.9 tonnum í 68 róðrum. Freydís var hæst með 7,6 tonn. Þrír dragnótabátar
lönduðu 22 tonni í 7 róðrum. Mímir varð aflahæstur með 13 tonn í 2 róðrum. Þrír netabátar voru
með 17 tonn í 18 róðrum. Sigurgeir Sigurðsson varð aflahæstur með 9,6 tonn í 7 róðrum.
Beitningavélarbáturinn Vinur var með 26,6 tonn í einum róðri. Þrír úthafsrækjubátar, Haförn, Emma og Stakkur, lönduðu í
síðustu viku. Haföm landaði 12. ágúst 27 tonnum í einum róðri, Emma landaði 26 tonnum og Stakkur landaði 22,9 tonnum.
Danski loðnubáturinn Sjpbris landaði 207 tonnum 12. ágúst, og Elliði landaði sama dag 374 tonnum af loðnu. Jón Sigurðsson
landaði 13. ágúst 101 tonni af loðnu, og Þórshamar landaði 13. og 15. ágúst 333 tonnum af loðnu. Háberg landaði síðan 16. ágúst
135 tonnum af loðnu.
Ekkert var landað í Súð^vík í síðustu viku.
Amar G. Hinriksson hdl.
Silfurtorgi 1 • ísafirði • Sími: 456 4144 • Fax: 456 4243
Fasteignaviðskipti
ÍSAFJÖRÐUR:
Adalstræti 15: 3ja herbergja íbúð á 2. hæð. Laus fljótlega.
Miðtún 31: 190 m2 endaraðhús á 2 hæðum. Tilboð óskast.
Fjarðarstræti 13: Neðri hæð ásamt íbúðarherbergi í kjallara og bílskúr.
Verð 6.100.000,- Hagstæð greiðslukjör.
Mjallargata 6: Norðurendi 2x40m2 4 herbergja ásamt tvöföldum bílskúr.
Laus. Verð: 3.800.000,-
Mánagata 6: Efri hæð 155m2 5-6 herbergja. Laus fljótlega. Verð:
6.300.000,-
Urðarvegur 60: Glæsilegt raðhús, alls rúmlega 200m2, ásamt bílskúr.
Skipti á minni eign á eyrinni koma til greina. Tilboð.
Silfurgata I 1: 3ja herbergja íbúð á I. hæð. Verð: 4.000.000,-
Stakkanes 6: Rúmlega I40m2 raðhús ásamt bílskúr og sólstofu. Verð
I 1.500.000,-
Strandgata7: Nýuppgerttvílyfteinbýlishús úrtimbri. Verð: 7.500.000,-
Dalbraut 10: I I5m2einbýlishúsásamtbílskúr. SkiptiáíbúðíHafnarfirði
koma til greina. Verð: 7.800.000,-
Ljósaland 6: 2xl26mz einbýlishús. Hagstæð lán.
Verð: 7.500.000,-
Pólgata 4: 5 herbergja íbúð á 3. hæð. Verð: 3.600.000,-
Urðarvegur 60: Glæsilegt raðhús ásamt bílskúr.
BOLUNGARVIK
Holtabrún 6: 230m2 einbýlishús á tveimur hæðum ásamt innbyggðum
bílskúr. Verð: 10.000.000.
Disarland 8: Tvílyft einbýlishús með innbyggðum bílskúr, samtals 290m2.
Mjög gott útsýni. Tilboð.
Hafnargata 46: Tæplega 120m2 íbúð á efri hæð ásamt innbyggðum
bílskúr á neðri hæð. Laus. Verð: 1.000.000,-
Miðstræti 6: Gamalt einbýlishús úr timbri. Selst ódýrt.
Hlíðarstræti 7: I I0m2 einbýlishús ásamt tvöföldum bílskúr. Verð:
7.200.000,-
Holtagata 9: Lítið og snyrtilegt einbýlishús úr timbri. Húsið er laust.
Verð: 3.800.000,-
Traðarland 10: Einbýlishús ásamt bílskúr. Verð: 7.200.000,-
Skólastígur 20: I40m2 á 2. hæð í parhúsi. Verð: 1.600.000,-
Stigahlíð2 og4:2jaog 3jaherb. íbúðír. Verð 1.500.000,- til 3.000.000,-
Völusteinstræti 4: 2x126m2 einbýlishús. Skipti á minni eign koma til
greina. Verð: 9.500.000,-
Þuríðarbraut 9: 120m2 einbýlishús m. bílskúr. Verð: 5.000.000,-
Vitastígur I I: Neðri hæð. 82m2 3ja herbergja íbúð. Verð: 3.200.000,-
Sunnuholt I: Eitt glæsilegasta einbýlishúsið í bænum.
277m2 ásamt 40m2 bílskúr. Verð 15.500.000,-
TÁLKNAFJÖRÐUR:
Móatún 6: 160m2 einbýlishús ásamt tvöföldum bílskúr. Húsið er laust.
Tilboð óskast.
Stjórnarfundur Fjórðungssjúkrahússins og
Heilsugæslustöðvarinnar á ísafirði
Ekkí unnt að tryggja neyðarþjónustu
Veðurhorfur
næstu dagn
Horfur á f immtudag: Hæg breytileg eða austlæg
átt. Léttskýjað verður um mest allt land, en
þokuslæðingur með norður- og austurströndinni.
Hiti 12 tiM8 stig að deginum, en 2 til 7 stig yfir
nóttina.
Horfur á föstudag: Hæg austan- og norðaustan-
átt. Áfram þurrt og víðast hvar bjartviðri. Fremur
hlýtt í veðri, einkum sunnanlands og vestan.
Horfur á laugardag og sunnudag: Lítur út fyrir
norðan- og norðaustanátt með rigningu og kólnandi
veðri austan- og norðaustan til á landinu, en annars
staðar verður þurrt og hiti 11 til 14 stig að deginum.
Á stjórnarfundi Fjórðungs-
sjúkrahússins og Heilsugæslu-
stöðvarinnaráísafirði 15.ágúst
s.l., var eftirfarandi ályktun
samþykkt:
Stjórn Fjórðungssjúkrahúss-
ins og Heilsugæslustöðvar-
innar á ísafirði lýsir yfir
miklum áhyggjum vegna þess
ástands sem skapast hefur á
heilbrigðisstofnunum í landinu
í kjölfar uppsagna heilsugæslu-
lækna. Stjórnin telur að það
álag sem skapast hefur á allt
starfsfólk Heilsugæslustöðv-
arinnar á Isafirði sé óhóflegt
og ekki verði unnt að tryggja
neyðarþjónustu læknis öllu
lengur. Stjórn krefst þess að
samningsaðilar leiti allra ráða
til að ná samningum hið fyrsta.
F.h. stjórnar FSÍIHSÍ
Guðjón S. Brjánsson
framkvœmdastjóri.
Bæjaríns besta
Auglýsingasíminn
er 456 4560
Óhóflegt álag á hjúkrunar-
og heilsugæslufólki
Á fundi stjórnar Sjúkrahúss og heilsugæslustöóvar Bolungarvíkur
sem haldinn var síðastliðinn föstudag, var samþykkt eftirfarandi
bókun: „Stjórn Sjúkrahúss og heilsugæslustöðvar Bolungarvíkur
lýsiryfir þungum áhyggjum vegna stöðu heilsugæslumála. Mikió
og óhóflegtálag erá hjúkrunar- og heilsugæslufólki. Ljósterað við
ríkjandi aðstæður er mikil hætta á aó ekki verói hægt að sínna
neyðarþjónustu öllu lengur. Stjórnin skorar því á deiluaðila að
ganga nú þegar til samninga svo tryggt verði aö landsmenn njóti
áfram sem hingað til góðrar og öruggrar heilbrigóisþjónustu."
Stjórnarskipti hjá
Togaraútgeróinni
Á aðalfundi Togaraútgerðar ísafjarðar hf„ sem haldin var fyrir
stuttu var kjörin ný stjórn félagsins. í nýju stjórninni eiga sæti þeir
Bjarni Bjarnason og Gunnar Birgisson fyrir hönd Olíufélagsins hf„
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri ísafjarðarbæjar fyrir hönd
bæjarsjóðs ísafjarðar, Pétur Sigurósson, forseti Alþýðusambands
Vestfjarða, fyrir hönd Verðalýðsfélagsins Baldurs og Kristján G,
Jóhannsson fyrir hönd Gunnvarar hf. Hluthafar í Togaraútgerð
ísagarðar hf„ eru 62 að tölu er heildarhlutafé fyrirtækisins rúmar
56,2 milljónir króna.
Sjóprófum
vegna Æsu
frestaó
Sjópróf vegna kúfiskskipsins
Æsu ÍS-87, sem sökk í Arnarfirði
undir lok síðasta mánaðar,
hófust hjá Héraðsdómi Vest-
fjarða á fimmtudag í síðustu viku. Þrjú vitni komu fyrir réttinn en
enn er eftir að leióa tvö vitni fyrir dómara, eitt á ísafirði og eitt í
Reykjavík og var því sjóprófum frestaó. Málið mun verða sent til
framhaldsmeðferðar hjá Ríkissaksóknara, Rannsóknarnefnd sjóslysa
og Siglingamálstofnun ríkisíns þegar sjóprófum lýkur.
Nýir rekstraraóilar
á Vagninum
Nýir aðilar hafa tekið við rekstri veitíngahússins Vagnsins á
Flateyri. Þetta eru þau Þórður Jónsson og Lára Thorarensen, sem
rekið hafa veitingahús á Hvammstanga. Húsnæðið keyptu þau
Þórður og Lára af Byggðasafni Vestfjarða og hafa þau endurbætt
það mikið frá því gengið var frá kaupunum. Hinir nýju eigendur
bjóða upp á ýmsa smárétti auk aðalrétti, bæði í hádeginu og á
kvöldin og um helgar stendur til að halda uppi lífi og fjöri með
dansleikjahaldi, leiksýningum og fleiru. Þá ráðgera hinir nýju
eigendur aó reka gistiheimili í húsnæðinu.
Ný bók eftir Eyvind
Eyvindur P. Eiríksson, rithöfundur, var að senda frá sér nýja bók.
Bókin nefnist P-Árbók II, en áður kom út P-Árbók I árið 1988. P-
árbók II er eins og fyrri bókin samansafn af Ijóóum, smásögum og
hinumýmsu hugleiðingum. Eyvindur hefurskrifað mikió i blöð og
tímarit undanfarin ár og einnig fengist við kennslu. Síóastliðinn
vetur kenndi hann til aó mynda við Framhaldsskóla Vestfjarða.
Eyvindur gaf út sína fyrstu Ijóðabók áriðl974, en til viðbótar því
hafa komið út tvær unglingabækur, tvö Ijóðakver, og leikrit er nú
í vinnslu hjá útvarpinu. Eitt þekktasta verk Eyvindar er skáldsagan
Múkkinn, en hún er um sjómenn og sjómennsku.
Boívíkingar í úrslit?
Bolvíkingar unnu Tindastól frá Sauðárkróki 2:1 í undan-
úrslitakeppni í 4. deild í fótbolta. Þetta var fyrri leikur liðanna, en
seinni leikurinn fór fram á Sauðárkróki í gær, þriðjudag. BÍ tapaði
fyrri leik sínum gegn Haukum, en seinni leikurinn var spilaður í
gærkveldi, þriójudagskvöld, og því ekki unnt að fá úrsiitin áóur en
blaðið fór í prentun. ísfiróingar þurftu að vinna leikinn með þriggja
marka mun til aö komast áfram í úrslitakeppnina.
Tólf tiíboð bárust
Vinna vió að steypa gangstéttir og hellulagnir í nýrri Súóavík
hófst á mánudag að afloknu útboói þar sem tólf verktakar sóttu
um aó fá verkið. Kostnaóaráætlun vegna verksins hljóðaði upp á
18,5 milljónir króna en lægsta tilboó kom frá Hellu- og varmalögnum
sf„ sem bauð 15,3 milljónir króna í verkið.
Aðrir tilbeiðendur voru Trésmiðjan hf„ í Hnífsdal með kr.
21.990.000.-, Sigurjón og Sveinbjörn sf„ Bolungarvík með kr.
20.773.450.-, Jakob R. Guðmundsson meó kr. 18.360.000.-,
Guðlaugur Valgeirsson með kr. 19.129.500.-, og B.J. Verktakar
sem buóu kr. 17.914.000. Garðaprýði hf„ bauð kr. 18.393.000 í
verkið, Guðlaugur Einarsson, Sauðárkróki kr. 26.078.000.-, Ingileifur
Jónsson kr. 17.805.000.-, ísberg sf„ Reykjavík, kr. 17.805.000.-,
Ræktunarmiðstöðin sf„ Hvergarði, kr. 21.676.000.-, og Garðhúsið
hf„ í Reylgavík bauð kr. 19.672.000. í verkió.
Áætluö verklok eru um miójan september en þá er ráðgert að
allri gatnageró þ.m.t. malbikun, verói lokið í hinni nýju Súðavík.
Vió opnun tilboóa geróu Trésmiðjan hf„ í Hnífsdal og Sigurjón og
Sveinbjörn sf„ í Bolungarvík, athugasemdir við verktímann sem
þeir töldu of stuttan.
MIÐVIKUDAGUFt 21. ÁGÚST 1996 11