Bæjarins besta


Bæjarins besta - 03.02.1999, Blaðsíða 7

Bæjarins besta - 03.02.1999, Blaðsíða 7
sér strax leyfið og fær Pál Kristjánsson frá Stapadal til að teikna og byggja fyrir sig fbúðarhús um sumarið. Eg sé fyrir mér fulltrúana í byggingarnefnd Isafjarðar, þegar þeir fá inn á borð hjá sér á útmánuðum 1935 teikningu af húsi, sem er jafn byltingarkennt í forrni og stíl eins og Sigtún hefir verið á þessum tíma, en svo nefndi Haraldur hús sitt eftir æskuheimili sínu í Eyjafirði. Lúðvíg Guðmundsson byggði hins vegar ekki á ísafirði, því að hann hélt um sama leyti til Reykjavíkur og stofnaði þar Myndlista- og handíðaskólann, sem á næstu árum varð miðstöð Ruinen“, sem útleggst: „Tímarnir breytast, hið aldna hrynur og nýtt líf blómgast á rústunum.“ I ljósi þessarar tilvitnunar er það ekki langsótt, að nýja frúin hafi viljað vera trú þessum skoðunum sínum og færa Isfirðingum nýjan stíl í byggingalistinni. Hvað var þá eðlilegra en að sækja hugmyndirnar til næsta bæjar við æskustöðvar hennar, en Dessau er einmitt skammt frá Leipzig. Sjálfur er ég ekki í neinurn vafa um, að Hertha hefír komið til íslands með arkitektabækur frá Bauhaus, sem hún hefir sýnt Páli Kristjánssyni og kynnt honum hugmyndir dvaldi í Kaupmannahöfn, Berlín og Dresden á árunum 1919-1925 og kynnti sér það nýjasta í myndlist og Jón Leifs stundaði tónlistarnám í Leipzig 1916-1921. Þessir þrír menn átlu það einnig allir sameiginlegt, að hugur þeirra stefndi ávallt til fósturlandsins; þeir vildu veita þjóð sinni hlutdeild í því, sem þeir höfðu verið að nema og því, sem þeir höfðu séð og heyrt á ferðum sínum erlendis. ...sem kynntu þjóð sinni nýja strauma ng stefnur Það hefði mátt ætla, að Haraldur Leósson hefði andsveg módernilistar á íslandi. Það væri hins vegar gaman að vita, hvernig hús hann hugðist byggja, því að ekki er ólíklegt, að hann hafi orðið fyrir áhrifum af Bauhaus-stílnum, þegar hann dvaldi í Þýzkalandi. Það er t.d. næsta líklegt, að hann hafi ráðið einhverju urn útlit og fyrirkomulag Gagnfræðaskólans, sem Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins, teiknaði í lok starfsferils Lúðvígs hér á Isafirði. Hertha Schenk ug Haraldur Leósson En hvers vegna vildi Haraldur Leósson byggja sér hús í þessurn stfl? Hann var af flestum talinn heldur fastheldinn, íhaldsmaður af gamla skólanum. Bauhaus- skólinn var aftur á móti fremur talinn hallur undir vinstrisinnaðar skoðanir og Hitler hafði bannað hann tveim árurn áður á þeirri forsendu, að hann væri boðberi kommúnistískrar hugmyndafræði. Skoðum málið svolítið betur. Haraldur kvæntist árið 1934 þýzkri konu, Herthu Schenk, kennara frá Leipzig í Þýzkalandi. Faðir hennar var próf. dr. Schenk, latínuskólarektor og rithöfundur. Hann ritaði m.a. stóra kennslubók í veraldar- sögu. sem á sínum tíma var lesin í flestum æðri skólunt í Þýzkalandi. Árið 1923 ritaði Hertha grein í tímaritið Andvara, í þýðingu Haralds, um þýzku alþýðuskólana nýju. I inngangi vitnar hún í Schiller: „Das Alte stúrzt, es ándert sich die Zeit und neues Leben blúht aus den Bauhaus-skólans. Ég hefi fyrir satt, að Páll hafi verið lítt hrifinn af þeim hug- myndum, að hafa horn- glugga á húsi og talið því flest til foráttu, enda slíkt algjörlega óþekkt á Isafirði á þessurn tíma. Síðan féllst hann á hugmyndina og notaði hana síðan árið eftir, þegar hann teiknaði kenn- arabústaðina við Urðarveg. Þannig tel ég, að fúnkisstíll- inn í húsagerð haft flutzt hingað til Isafjarðar. Þrír íslendingar... Ég sagði, að Haraldur Leósson hafi verið talinn heldur fastheldinn maður. En hvað áttu þeir sameigin- legt, Haraldur Leósson, Finnur Jónsson og Jón Leifs? Ég skal reyna að svara því. Þeir vort. allir aldamótamenn, fæddir seinast á 19. öldinni. Haraldur var Eyfirðingur, fæddur 1884, Finnur Skaftfellingur, fæddur 1892 og Jón Leifs Húnvetningur, fæddur 1899. Fornmenning þjóðarinnar var þeirn öllum í blóð borin. Þeir voru allir mótaðir af íslenzkri sveita- menningu og í eðli sínu þjóðernissinnar, en þeir áttu það allir sameiginlegt, að vera opnir fyrir hvers konar nýjungum á sínu sviði. Allir héldu þeir utan í byrjun aldarinnar til að leita að nýjum stefnum og straum- urn, hver á sínu sviði. Haraldur hélt utan 1921 til að auka við þekkingu sína á sviði kennslufræði og bókmennta. Hann stundaði framhaldsnám í Kaup- mannahöfn og Leipzig 1921-22, í Noregi 1922-23 og Þýzkalandi, Sviss og Ítalíu 1928. Finnur Jónsson kosið að fara hefðbundnar leiðir og reisa sér hús í nýklassískum stfl, eins og algengast var á ísaftrði á þessum árum. En því var á annan veg farið. Eins og komið hefir fram, var hann opinn fyrir öllum nýjungum og kaus því að fylgja konu sinni í því, að byggja framtíðarheimili sitt í fúnkisstfl, sem þá var það nýjasta í byggingalistinni í heiminum. Með því braut hann blað í byggingarsögu bæjarins og innleiddi byggingastíl, sem átti eftir að hafa veruleg áhrif hér í bæ á næstu árum. Það varð svo hlutskipti Finns Jóns- sonar að kveikja áhuga yngri myndlistarmanna á íslandi fyrir óhefðbundinni myndlist og Jón Leifs flutti með sér nýja strauma inn í tónlistarlíf þjóðarinnar. Hjálmar H. Ragnarsson segir um tónsmíðar Jóns Leifs, að þegar hann sneri aftur til Islands í stríðslok, hafi allur stíll hans og tónsmíðaaðferðir verið komnar í lítt hagganlegar skorður, sem mótuðust af skilningi hans á eigindum íslenzku þjóðlaganna. Og heldur áfram: „Mörgum kann að fínnast, að tónlist Jóns Leifs sé oft á tíðum ofureinföld og jafnvel barnsleg... Jón fór ekki troðnar slóðir og fyrir það má tónlist hans ekki gjalda.“ M.ö.o. - hann kaus einfald- leikann eins og Haraldur og Finnur. Það varð þannig hlutverk þeirra þremenn- inganna að kynna þjóð sinni nýja strauma og stefnur í húsagerðarlist, myndlist og tónlist, sem hún hafði lítil kynni haft af áður. Þetta litla hús hefur menningarsögulegt gildi Við getum þakkað Haraldi Leóssyni og hans ágætu konu, frú Herthu, fyrir það, að hér á ísafirði er nú varðveitt eitt bezta eintak módernismans í húsagerð- arlist, sem til er í landinu. Og þau hjón kunnu svo sannarlega að nýta sér þá kosti, sem hann bauð upp á. Ég var nágranni þeirra hjóna um árabil, og ég sé gömlu hjónin ennþá fyrir mér, þegar þau færðu sig út á stofuþakið um leið og sólin fór að skína á suntrin. Syni þeirra, Hans W. Haraldssyni, getum við þakkað, að hafa ekki fallið í þá freistni, þegar hann lét einangra og klæða húsið að utan, að byggja yfir þakið í leiðinni, eins og margir ráðlögðu og flestir hafa gert í Reykjavík. Fyrir vikið er varðveitt á ísafirði ósvikið eintak af Bauhaus-húsi. Við erum að varðveita lítinn hluta af heimsmenningunni. Af því getum við verið stolt. Það er einlæg ósk mín, að komandi Haraldur Leósson kennari á Isafirði. Hann var opinn fyrir öllum nýjungum og kaus því að fylgja konu sinni íþví, að byggja framtíðarheimili sitt í fúnkisstíl, sem þá var það nýjasta í byggingalistinni í heiminum. Með því braut hann blað í byggingarsögu bœjarins og innleiddi byggingastíl, sem átti eftir að hafa veruleg áhrifhér í Hertha Schenk Leósson. „Tímarnir breytast, liið aldna hrynur og nýtt líf blómgast á rústunum.“ I Ijósi þessarar tilvitnunar er það ekki langsótt, að nýja frúin hafi viljað vera trú þessum skoðunum sínum ogfæra Isfirðingum nýjan stíl í byggingalistinni. Páll Kristjánsson bygg- ingameistari frá Stapadal við Arnarfjörð teiknaði og byggði húsið fyrir Herthu og Harald. Sonur hans og sonarsonur gerðust báðir arkitektar og hafa báðir teiknað skólabyggingar á Isafirði. Mynd: Héraðsskjalasafnið. kynslóðir geri sér grein fyrir, að þetta litla hús við Seljalandsveginn á Isafirði hefir menningarsögulegt gildi. Því miður hafa verið unnin svo mörg skemmdar- verk á þessu sviði á liðnum árurn, að það er full ástæða til að vera á varðbergi í þessum efnurn. Hans IV. Haraldsson. Honum getum við þakkað, að hafa ekki fallið íþá freistni, þegar hann lét einangra og klœða húsið að utan, að byggja yfir þakið í leiðinni, eins og margir ráðlögðu og jlestir liafa gert í Reykjavík. Fyrir vikið er varðveitt á Isafirði ósvikið eintak af Bauhaus- húsi. Jón Páll Halldórsson, fyrrum framkvœmdastjóri á Isafirði, er formaður Sögufélags Isfirðinga. Með góðfúslegu leyfi hans er grein þessi tekin saman úr ítarlegu erindi um fúnkis- stílinn í byggingalist á Isafirði, sem hannflutti á fundi í Rótarýklúbbi lsafjarðar 3. desember sl. Mótaskrá Skíóafélags ísfiróinga í vetur Átta alpagreinamót á dagskrá Fyrsta alpagreinamótið sem haldið er á vegum Skíðafélags ísfirðinga fer frarn á laugardag. Þar er urn að ræða svigmót fyrir 13 ára og eldri þar sem keppt er um Grænagarðsbikarinn. Helgina 13.-14. febrúar fer fram bikarmót í svigi og stórsvigi 15-16 ára og full- orðinna og dagana 27. og 28. febrúar fer frarn Vest- fjarðamótið í svigi 9-12 ára. Dagana 6. og 7. mars fer fram brettamót fyrir 13 ára og eldri, dagana 13. og 14. mars fer fram Vestfjarða- mótið í stórsvigi 9-14 ára sem og leikjabraut fyrir 6-8 ára krakka. Dagana 29. mars til 1. aprfl fer frarn Skíðamót íslands í svigi og stórsvigi 15-16 ára og fullorðinna og 17.-18. apríl fer fram Vest- fjarðamót í stórsvigi 15 ára og eldri. Síðasta alpagreina- mót vetrarins á Isafirði fer einnig fram dagana 17. og 18. apríl en þar er um að ræða Básafellsmótið í stórsvigi 12 ára og yngri. Af göngumótum má nefna Vestfjarðamótið í öllum ald- ursflokkunt sem fram fer 27. febrúar, Silfurtorgsgönguna sem fram fer í byrjun mars, SFÍ-gönguna sem fram fer 6. mars, Bensínstöðvarmót sem fram fer 27. mars og Skíðamót Islands sem frarn fer dagana 29. mars til 1. apríl. Þrjú síð- ustu mót vetrarins á ísafirði í norrænum greinum eru Hótel- mót og SFÍ-ganga sent fram fara 17. aprfl og Fossa- vatnsgangan sem fram fer 1. maí. MIÐVIKUDAGUR 3. FEBRUAR 1999 7

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.