Víðförli - 15.12.1997, Qupperneq 2
Að kveðja og heilsa
Við erum því ekki lengur ókunnug, að hátíðaryfirbragð
fylgi fyrsta sunnudegi í aðventu. Enda hefst þá hinn
formlegi undirbúningur hæstrar hátíðar við upphaf nýs
kirkjuárs.
Óvanari erum við því, að mikil hátíð og hátíðarbragur
fylgi síðasta sunnudegi kirkjuársins. Enda er boðskap-
urinn myrkur, að margra áliti, þar sem fjallað er um
efsta dóm og lok þeirrar veraldar, sem við þekkjum
eina.
Nú brá svo við á síðasta degi lið-
ins kirkjuárs, að hátíð var mikil,
gleði ríkti og fleiri vígðir menn voru
saman komnir á einn stað en fyrr
hefur þekkst. Stærsti helgidómur
landsins á Skólavörðuholti reyndist
ekki einu sinni rúm alla, sem inn-
göngu leituðu. Voru þó prestar með
prófasta sína í fararbroddi ásamt
með hinni nýju stétt djákna og
kennara guðfræðideildar auk bisk-
upaliðs og fulltrúa erlendra kirkna
annarra, staðsettir í kór og nam
fjöldinn tveimur hundruðum. Og til
þess enn frekar að rýma fyrir kirkju-
gestum voru kórar stórgóðir, þrír
talsins á pöllum innan við forkirkju
og fyrir framan kór. Voru þetta Dóm-
kórinn og Mótettukór Hallgríms-
kirkju auk barna- og ungmennakórs
Kársnesskóla í Kópavogi.
Enginn velktist í vafa um tilefni
svo fjölmennrar kirkjugöngu og há-
tíðarbrags meiri en minnst hefur
verið fyrr. Það var verið að vígja nýj-
an biskup. Og vel var við hæfi, að
lexíur dagsins minntu á fyrirheit
skaparans um að gefa lýð sínum
nýja veröld og nýjan himinn og hjá
Páli kom fram í huggunarbréfi til of-
Víðförli
Útgefandi: Skálholtsútgáfan,
útgáfufélag þjóðkirkjunnar.
Ritstjóri og ábm.: Irma Sjöfn Óskarsdóttir.
Höfundarmerktar greinar eru
á ábyrgð höfundar.
Kápumynd: Gunnar Vigfússon.
Umbrot: Skerpla.
Prentun: Steindórsprent-Gutenberg.
sótts safnaðar í Rómaborg, að þján-
ingar þeirra hyrfu sem ekkert væri
fyrir fyrirheit dýrðar, sem myndi
sannarlega rætast.
Væri því ekki óeðlilegt, að ég
tengdi í vígsluræðu minni þessi fyr-
irheit vonar bæði nýju kirkjuári sem
nýjum biskupi. Sköpun á sér sífellt
stað. Þótt Guð hafi í upphafi litið
verk sín og talið þau harla góð, læt-
ur hann ekki af því að bæta og
skapa í anda þeirra einkenna sem
honum fylgja, þar sem er hið góða,
fagra og fullkomna.
En Guð er ekki einn að verki.
Hann hefur gefið manninum ótrú-
lega mikið frelsi til þess að velja og
hafna. Nýja sköpun og nýjan himin
þiggjum við frá hinum allmáttka
Guði. En okkur er einnig fengið verk
að vinna, öllum kristnum mönnum
og þá með sérstökum hætti þeim,
sem með handayfirlagningu á
vígsludegi þiggja aukið hlutverk
umfram aðra.
Það veltur því á miklu, hvernig
kirkjan býr nýjum biskupi starfsskil-
yrði og hvernig vígðir þjónar henn-
ar raða sér í fylkingu undir forystu
hans. Einn megnar biskup lítt að
ganga til móts við nýja jörð, hvað
þá nýjan himinn. En í fulltingi því,
sem þegið er, má miklu áorka.
Við báðum því ekki aðeins fyrir
herra Karli á síðasta sunnudegi
kirkjuársins, heldur höldum áfram
þeirri iðju, hvort heldur í kirkju eða
heimahúsum, á samkomum og öðr-
um þeim stöðum, þar sem samein-
uð bæn trúaðra megnar mikils. En
svo er til allra höfðað, að þeir gangi
sjálfir fram í bænheyrslunni og láti
hana verða að raunveruleika í lífi
kirkjunnar, starfi hennar sem þjón-
ustu. Þá eru lexíur vígsludags ekki
fyrirheit í fjarlægri framtíð, heldur
verkefni næstu ára og byrjar með
því kirkjuári sem við fögnum á
fyrsta sunnudegi í aðventu.
Um leið og ég bæti enn við bæn-
um mínum vegna eftirmanns míns
og fel hann, fjölskyldu hans og fram-
tíð forsjá Guðs og að styrkur fylgi
verkum hans, þá þakka ég fyrir þann
tíma, sem mér hefur auðnast að leit-
ast svo við að rækja skyldur mínar,
sem heit á vígsludegi brýnir til.
Með þessari bæn vegna nýs bisk-
ups og kirkju íslands kveð ég les-
endur Víðförla af þeim vettvangi,
sem biskupum er helgaður og vænti
nýrrar myndar nýs biskups með
boðskap sinn í næstu blöðum. Sjálf-
ur þakka ég og gleymi eigi neinum
velgjörðum, hvorki Guðs né góðra
manna.
Ólafur Skúlason.
Friðarhátíð
Hin árlega friðarhátíð ÆSKR
verður haldin í Seltjarnarnes-
kirkju 14. desemberkl. 17:00. Um
er að rœða sameiginlega guðs-
þjónustu allra æskulýðsfélaga
kirknanna í Reykjavíkurprófasts-
dœmum. Eftir guðsþjónustuna
verður boðið upp á unglingavæn-
an kvöldverð á vœgu verði og
margs konar dagskrá fram á
kvöldið. Það er von ÆSKR að
sem flestir láti sjá sig.
Flutningur
Skrifstofa œskulýðssambands
kirkjunnar í Reykjavíkurprófasts-
dœmum (ÆSKR) flytur í húsnœði
Grensáskirkju frá og með 1. des-
ember næstkomandi. En undan-
farin ár hefur skrifstofan verið
staðsett í Hallgrímskirkju. ÆSKR
þakkar samstarf við starfsfólk
Hallgrímskirkju.
Víðförli