Víðförli - 15.07.1982, Blaðsíða 1

Víðförli - 15.07.1982, Blaðsíða 1
KmmGARBLAÐ Lítið Guðs hús Frændur vorir, Danir, leysa vandamál nýbyggðar með því að lána þangað svokallaðar „vandrekirker", eða farandkirkjur, þar til söfnuðirnirhafa eignast eigin kirkjur. Hér ert.d. verið að flytja hluta farandkirkju, sem staðsett var í Kokkedal, og erför- inni heitið til Gullestrup í Herning-héraði. í baksýn sést nýja kirkjan í Kokkedal, sem var vígð í janúar sl. Sjá nánar frásögn á bls. 7 Samstarf er nauðsynlegt Kirkja, sem starfar i landi, þar sem íbúarnir eru læsir, þarf málgagn. Hún þarf prentað mál til að koma boðskap sínum á framfæri. Þetta hafa menn sannarlega vitað á íslandi enda var Guðbrandur bisk- up fljótur til á sinni tíð. Síðan hefur verið gefin út fjöldi bóka og blaða „til að fremja Guðsríki" en síðustu ára- tugina þó hlutfallslega minna en áður, þegar þjóðin var fátækari. Kirkjuritið, sem er meðal eldri tíma- rita íslenskra, nær fimmtugu, hefur lengi látið að sér kveða, en aðeins ársfjórðungslega. Oft hefur verið um það rætt hversu ákjósanlegt það væri að kirkjan eign- aðist málgagn við hlið Kirkjuritsins (sem reyndar er gefið út af Presta- félaginu). Kæmi það málgagn oftar út, þannig að það og Kirkjuritið bættu hvort annað upp varðandi efnistök og efnisval. Hefur oft verið vitnað til Kirkjublaðsins, sem út kom um skeið undir forystu núverandi biskups. Eitt meginverkefna Kirkjuráð fékk Útgáfunni Skálholti nokkur meginverkefni, er hún var stofnuð. Eitt þeirra var útgáfa málgagns. Víst er það mikil bjartsýni að hefja blaðaútgáfu á tímum þegar blöð berj- ast í bökkum og blaðadauði ógnar víða. Því hafa verið gerðar allmiklar kannanir á vegum Skálholts, hversu farsællegast megi standa að slíkri út- gáfu, hvers konar blað sé mest þörf fyrir og hvers konar efnisval. Áformað er að halda úr hlaði í haust ef allt verður með felldu. Því hefur þú í höndum tilraunaeintak, kynningarblað, sem gefur þér hug- mynd um, form og innihald þess málgagns sem brátt hefur göngu sína. Að sjálfsögðu er óskað eftir að fá viðbrögð frá sem flestum, til að tryggja að farin verði rétt leið. Það sem Skálholt hefur í huga er að gefa út mánaðarblað, væntanlega hálfsmánaðarblað með tíð og tíma, sem ekki síst ætti það hlutverk að flytja safnaðarfólki freítir, uppbyggi- legar og athyglisverðar hugleiðingar og börnum yrði ekki gleymt. Á baksíðu yrðu erlendar fréttir, en einstakir söfnuðir gætu einnig látið prenta þar þeirra í stað upplýsingar og fréttaefni fyrir sig, þannig að blað- ið þjónaði líka hlutverki safnaðar- blaðs. Ýmsir prestar sem rætt hefur verið við, telja að slíkt fyrirkomulag gerði þeim fært að halda úti safnaðar- blaði. Samstarf við söfnuðina Skálholt telur að þetta sé affarasæl- asta aðferðin og mun leita eftir því við söfnuðina, að þeir verði sam- starfaaðilar um útgáfuna, annað hvort með því að kaupa og dreifa ákveðnum eintakafjölda til safnað- arfólksins, ókeypis eða afla áskrif- enda. Einn sóknarprestur gat þess að hann gæti notað blaðið til að auglýsa messur sínar og kostað til þess fé sem ella færi í útvarpsauglýsingar. Annar sagði að hann hefði varla að- stæður til þess að nýta baksíðuna fyrir fréttabréf safnaðarins, en hon- um þætti vænt um að geta afhent starfsmönnum safnaðarins slíkt blað. Hefði það t.d. efni við hæfi ungra foreldra, mætti tengja það skírnarfræðslunni. Hugmyndir eru margar og vissu- lega óskar Skálholt að heyra þær sem flestar. Þessu kynningarblaði er að- eins dreift á prestastefnunni á Hól- um og í þeim tilgangi að leita eftir skoðunum og hugmyndum presta landsins í þessu mikilvæga máli.

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.