Víðförli - 15.07.1982, Blaðsíða 5
,, Undarlegt að vita af eðl-
unum inni í íbúðinni“
— segja hjónin sem dvelja í Suður-Súdan á vegiun
Mjálparstofnunar kirkjunnar
Hjónin Samúel Jón Ólaísson og Ingibjörg Júlíusdóttir með son sinn Samúel
Jón.
„Við erum mjög ánægð með þessi
fyrstu kynm. Þó er svolítið undarlegt
að vita af eðlunum hér inni í íbúðinni.
En þær virðast smjúga alls staðar inn
og eru gestir í flestum húsum hér.“
Þannig lýsa þau Samúel Ólafsson
viðskiptafræðingur og Ingibjörg Júl-
íusdóttir hjúkrunarfræðingur fyrstu
kynnum sínum af því fjarlæga landi
Súdan, í bréfi til Hjálparstofnunar
kirkjunnar. Þau hjónin héldu sem
kunnugt er utan ásamt fjórum börn-
um sínum í byrjun maí og starfa nú að
þróunarverkefni í Suður-Súdan, á
vegum Hjálparstofnunar.
En við skulum fá að fylgja þeim
eftir á ferðalaginu til Súdan: „Flugið
frá Nairobi til Juba og Torit var stór-
kostlegt og sá vítt og breitt um allar
jarðir. Alskýjað var yfir Nairobi, en
létti fljótlega til svo Kenya og
Uganda breiddu úr sér fyrir neðan -
og síðan Súdan. Maður gerir sér bet-
ur grein fyrir vegalengdum hér eftir
þessa ferð."
Og síðan segir hann: „Hitinnhefur
vanist bærilega og eðlur og skordýr
eru orðin hluti af tilverunni, óhjá-
kvæmilgur og nánast eðlilegur.
Héi ^r stöðugt reynt að gera okkur
dölina sem besta. Við förum í heim-
boð og tökum þátt í félagslífinu. Sl.
föstudag fórum við á andakt hjá Jan
Otto Kvalheim og var fjölmennt þar.
Þá fórum við til messu í Borevajak-
þorpi hér í næsta nágrenni. Við sát-
um þar í „tukul" í nærri tvo tíma og
hlýddum á messuna, flutta bæði á
ensku og Suður-Súdan-arabísku. Var
það kristnihald allt frábrugðið því
sem gerist undir jökli; „tukulið opið
til allra átta og kirkjugestir sumir að
rjátla ýmist innan kirkju eða utan . . .
Innfæddir eru upp til hópa vin-
gjarnlegir og nota hvert tækifæri til
að eiga orðastað við okkur."
Samúel hefur meðal annars heim-
sótt svæði það sem flóttamenn frá
Uganda byggja: „Þeir eru nú um
60.000," skrifarhann, „og bendir allt
til þess að þeir séu sestir að til fram-
búðar. Fólk þetta er yfirleitt vel
menntað og vinnusamt og hefur þeg-
ar hafist handa um ræktun og hús-
byggingar. Telja kunnugir að þetta
fólk verði innan skamms með því
best setta hér í Suður-Súdan. Þó eru
blikur á lofti og hætta á vandræðum
ef heldur áfram að fjölga svo sem ver-
ið hefur ..."
Punktar
Fyrir nokkru voru haldnar svo-
kallaðar námsstefnur um
áfengismál. Að þeim stóðu Hjálp-
arstofnun kirkjunnar, SÁÁ,
Áfengisvarnarráð og Hazeiden-
hópurinn. Hingað til lands var
fenginn séra Melvin Schroeder,
sem er ráðgjafi á meðferðardeild
fyrir aðstandendur drykkju-
sjúkra á Hazeldenstofnuninni í
Bandaríkjunum. Þessar náms-
stefnur voru einkum ætlaðar
prestum, félagsráðgjöfum, sál-
fræðingum, læknum og öðrum
þeim, sem áhuga hafa eða starfa
við áfengisvarnir. Námsstefn-
urnar voru vel sóttar og þóttu
takast vel í alla sta$i. Auk þess
hélt sr. Melvin Schroeder opna
almenna fyrirlestra um áfengis-
mál, bæði í Reykjavík og í Vest-
mannaeyjum. Mjög margir sóttu
þessa fyrilestra og margir lögðu
spurningar fyrir fyrirlesarann.
Á ári fatlaðra 1981 ákváðu Hjálp-
arstofnun kirkjunnar og Lions-
hreyfingin að standa að söfnun
fyrir fatlaða. í byrjun apríl hófust
viðræðufundir við fulltrúa Sjálfs-
bjargar, landssambands fatlaðra
um það á hvern hátt best væri að
mæta þeirra þörfum. Niðurstað-
an varð sú, að safnað skyldi fé til
stofnunar Styrktarsjóðs Sjálfs-
bjargar. Reglugerð um sjóð
þennan var sett og kemur fram í
henni tilgangur sjóðsins. Árang-
ur söfnunarinnar varð mjög
góður, ekki síst ef tekið er tillittil
þess, hve skamman tíma hún
stóð, þ.e. eina helgi. Alls söfnuð-
ust 400.000 krónur.
•
Á árinu hefur verið unnið að upp-
byggingu myndefnis fyrir Hjálp-
arstofnun af ýmsu tagi. Nokkr-
um erfiðleikum er bundið að
kaupa hingað nýjar kvikmyndir.
Það er of dýrt fyrirtæki. Af þeim
sökum höfum við reynt að semja
við systurstofnanirnar á Norður-
löndum um lán á myndum, sem
við síðan fáum að setja á
myndbönd. Nokkur árangur hef-
ur náðst í þessu hér á árinu og
koma video-tæki stofnunarinnar
að góðum notum. Á þennan hátt
haf a 4 kvikmyndir bæst í saf nið á
árinu.
3 slide-myndaseríur hafa verið
gerðar á árinu. Fjalla þær um
Kamputseu, þróunarverkefnið í
S.-Súdan og hjálparstarfið í Pól-
iandi. Á næstu vikum er áætlað
að gefa út upplýsingablað, sem
kynnir fræðsluefnið, sem til er
hjá stofnuninni.