Víðförli - 15.12.1997, Page 4

Víðförli - 15.12.1997, Page 4
* * * Barn er fætt Guð sat á hásæti sínu á himnum og beið. Hann beið eftir að jólin kæmu, hinu fyrstu jól í sögu heimsins. Á þessari nóttu átti Guðs sonur að fæðast á jörðu. Guð beið hans. Þá komu fjórir erki- englar fljúgandi fram til hásætis hans. Þetta voru Gabríel, Rafael, Uriel og Mikael. Englarnir s e m frá sköpun heimsins höfðu verið Guðs nánustu samstarfsmenn. Mikael, nafnið hans þýðir „hver er sem Guð“, hafði verið óþreytandi andstæðingur djöfulsins frá byrj- un. Hann gekk fram fram fyrir auglit Guðs og segir: „Herra, hættu við fyr- irætlan þín. Þetta mun aldrei fara vel. Þú veist hvernig manneskjurnar eru f lágan stall var laöður hanna í löndum Austur-Evrópu tíðkast það að hafa til skrauts um- búnað fæðingar freisarans og er þessu stillt upp á áberandi stað. í upphafi aðventu er skrautið tekið fram og því komið fyrir, nema barninu í jötunni. Jatan stendur auð og er það hlutverk barnanna að búa um barnið í jötunni á sem bestan hátt. Það felst í því að þau eru hvött til að hjálpa til á allan hátt. Góðu verkin þeirra eru síðan verðlaunuð með strái í jötu Jesúbarnsins. Eftir því sem þau eru betri því mýkri verður hvíla Jesúbarnsins þegar kemur að heilögum jólum og þá er styttan af barninu lögð í jötuna. Það er ómögulegt að bæta þær. Það eru liðin svo mörg ár frá sköpun heimsins og ekkert hefur breyst til hins betra.“ Guð horfði á þjón sinn og sagði blíðlega: „Ég veit það og þess vegna ætla ég að senda son minn til jarðar. Hann á að lifa eins og maður meðal manna. Hann á að fæðast eins og þeir og lifa og deyja eins og aðrar manneskjur til að börn jarðarinnar skilji að mér þykir vænt um þau eins og börnin mín þrátt fyrir allan þeirra ófullkom- leika. Þau munu trúa og skilja í tím- ans rás að ég sleppi þeim aldrei, hvorki í lífi né dauða. Þegar ég læt minn eigin son fæðast eins og eitt af þeim og þegar þau sjá hann sem venjulegt, hjálparvana ungabarn þá hljóta þau að skilja að ég elska þau. Þetta er von mín“ — og andlit Guðs ljómaði þegar hann sagði þetta. „Þetta er von mín að þegar mann- eskjurnar sjá son minn og fagna fæð- ingu hans þá skynji þær hversu und- ursamlegt lífið er og að hið óskiljan- lega og undarlega er ekki að dauðinn finnst í heiminum. Hið undursam- lega er að lífið er til.“ „Heyrið!" sagði Guð ... og hljóm- urinn af gráti nýfædds barns barst frá jörðunni upp til himins. Erkienglarnir hneigðu sig djúpt frammi fyrir hásæti Guðs og flugu síðan á braut en Guð eins og talaði við sjálfan sig og sagði: „Barn er oss fætt, sonur er oss gefinn ..." Amen. (Þýtt úr bókinni Paradis porten e. Gunda Jörgensen) Víðförli

x

Víðförli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.