Víðförli - 15.12.1997, Qupperneq 8

Víðförli - 15.12.1997, Qupperneq 8
Við vígslu Skúla, sonar Ólafs og Ebbu, fyrr á þessu ári. ásamt úrvinnslu frá þeim. Þarna nefnir Olafur sem dæmi kirkjuráðs- fundi sem haldnir séu allt að tvisvar til þrisvar í mánuði. Ráðið sé nokk- urs konar ríkisstjórn kirkjunnar og biskup þá forsætisráðherrann. Mikil ábyrgð hvíli á störfum þess og sagð- ist Ólafur vera þakklátur fyrir hversu starfið með kirkjuráði hafi verið far- sælt og aldrei hafi komið upp neinn alvarlegur ágreiningur þó vitanlega hafi menn ekki alltaf verið sammála. Það sama á við um samstarfsfólkið á biskupsstofu. Þau hafi verið eins og einn maður. Svo vitnað sé í orð Ólafs: „Þegar mest næddi um mig þá átti ég hvergi eins vísan stuðning og kærleika eins og hjá þessu sam- starfsfólki og það segir töluvert.“ Það var samdóma álit biskups- hjónanna að miklar breytingar eigi sér stað innan íslensku kirkjunnar og ekki verði séð fyrir endann á þeim. Það sé líka áberandi á þessum umbrotatímum að oft sé söfnuður- inn persónugerður í sóknarprestin- um. Eins sé þetta þegar kemur að biskupi. Þjóðkirkjan sé persónugerð í biskupnum og ef einhverjum er í nöp við biskupinn þá sé þeim sama líka í nöp við kirkjuna. Það má svo líka segja að ef einhverjum er í nöp við kirkjuna þá er nærtækast að skella skuldinni á persónu biskups- ins. Ebba minnist líka að oft sé það fólk sem lítið veit um allt það starf sem á sér stað í kirkjunni sem gagn- rýni harðast. Þau hafi setið fundi með fólki sem talar um að lítið starf sé í kirkjunum. Þegar farið er að segja fólki frá öllu því sem er í boði í safnaðarstarfinu þá verði það hissa. Ólafur segist oft líta til baka þessa dagana og sjái þá atriði sem gleðji eins og hafa ásamt Glúmi Gylfasyni organista lagt áherslu á stofnun barnakóra innan safnaða kirkjunnar. Þegar Glúmur bar þetta undir hann þá fannst honum þetta vera góð leið til að laða fleiri að kirkjunni því vís- asta leiðin að hjarta fullorðinna er í gegnum börnin. í dag er þetta víða orðinn áberandi hluti af safnaðar- starfinu og auðgar það. Það er margt hægt að rifja upp og hér hefur aðeins verið farið á hunda- vaði yfir starfsævi þeirra í þjónustu kirkjunnar. Ólafur og Ebba segja að fyrst og fremst sé það handleiðsla Guðs, traustið til hans og trúin sem hefur borið uppi líf þeirra í starfi þeirra fyrir kirkjuna. Vasaklútaj ól í næsta húsi við okkur Eddu vinkonu bjó töfrandi ungfrú sem nefnd var Siddý, en þetta var á þeim tímum þegar gælunöfn tiikomumikilla kvenna enduðu á ypsiloníi. og Siddý þessi, sem hafði augnsvip Eiísabetar Taylor og hreyfingar Audrey Heburn, er nátengd einum bestu jólum sem ég hef lifað. Ekki man ég lengur hvað Siddý hafði fyrir stafni á daginn, en ein- hvers staðar mun hún þó hafa unnið því hún flögraði niður tröppurnar á morgnana og upp þær aftur er halla tók degi. Stundum flögraði hún þær líka niður á fögrum haustkvöldum og endaði þá oft inni í gljáfægðum bjúikk sem beið hennar fyrir utan. Með þessu flögri Siddýjar fylgd- umst við vinkonurnar af máttlausri aðdáun, og oft um helgar þegar ung- frúin átti frí og þurfti að naglalakka sig, fengum við að fara ofan í sjoppu fyrir hana til að kaupa kókflösku. Ef við vorum heppnar og fengum af- gang, gátum við skipt með okkur verkum þannig, að Edda rétti henni kókflöskuna og ég henni afganginn, en ef hún lét okkur hafa akkúrat fyr- ir flöskunni, rifumst við um það bak við sjoppu hver ætti að rétta henni flöskuna. Oftast fóru málin á þann veg að við réttum henni hana báðar, Edda hélt um stútinn, ég um botn- inn. Víðförli

x

Víðförli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.