Víðförli - 15.12.1997, Side 9

Víðförli - 15.12.1997, Side 9
Ætíð sýndi ungfrúin okkur mikla elsku, brosti til okkar og hló, dáðist að limaburði okkar og mælsku, sagði að við værum góðar og sætar stelpur, og leyfði okkur stundum að koma inn til sín og hlusta á plötur. Væri hún sérstaklega vel upplögð, fengum við að taka til í herberginu hennar. Það var svo á jólaföstunni þegar við vinkonurnar vorum sem oftar að leika okkur úti í hvítum kuldan- um, að Siddý kom út úr húsinu á rauðri kápu og tók stefnuna niður í bæ. Við hættum að leika okkur, stóðum þarna í stígvélum með nef- rennsli og horfðum á eftir henni þar til Edda gat ekki orða bundist og sagði kokmælt: Ég ætla að gefa henni jólagjöf. Á þessu augnbliki tók ég þá ákvörðun að gefa henni Iíka jólagjöf. Hins vegar ætlaði ég ekki að nefna það við Eddu því þá segði hún að ég væri að herma eftir henni. En vita- skuld yrði gjöfin mín glæsilegri. í skafrenningi, krapi og kulda hófst nú æðisgengin leit að gjöf handa gyðjunni. Ég hafði grenjað út tvær krónur hjá ömmu og hljóp með trylltan glampa í augum milli verslana í bænum. Ég fór í Kaupfé- lagið, Stebbabúð, Hallabúð og Laujubúð, sem seldu matvörur, í tuskubúðirnar til Geiru og Leifu, Siggu og Betu og Bergþóru Nýborg, og endaði í Dverg sem seldi bygg- ingavörur, en enga fann ég gjöfina. Að minnsta kosti ekki fyrir tvær krónur. Ég leitaði í marga daga og var hætt að sofa út af þessu. Nokkrum dögum fyrir jól var mér boðið í afmæli og amma sagði við mig að vanda: Taktu með þér vasaklút. Ég hélt nú ekki, það væri svo asnalegt, en þá sagði hún með þykkju: Dömur eru alltaf með vasaklúta. Þá kviknaði ljós. Auðvitað gæfi ég Siddý vasaklút. Hún mundi vissu- lega þurfa á honum að halda, svona til að þurrka sem færi útfyrir, þerra tárin þegar hún horfði á sorglega mynd í bíó, já, og bara svona þegar hún þyrfti að hósta. Á Þorláksmessu keypti ég svo hvítan blúnduvasaklút sem ég hafði séð hjá Bergþóru Nýborg. Hann kostaði einn og níutíu. Ég var heilan eftirmiðdag að pakka honum inn. Um kvöldið stormaði ég einbeitt að húsi Siddýjar, bankaði og ungfrú- in kom til dyra. Ég rétti henni þenn- an litla þunna flata pakka og sagði: Hérna. Hún brosti eins og jólaengill og sagði: Nei, hvað er þetta? Bara, jólagjöf, sagði ég, og hljóp niður tröppurnar. Á aðfangadagskvöldi þegar ég sat með fjölskyldu minni og opn- aði pakkana mína, varð mér hvað eftir annað hugsað til Siddýj- ar. Hvað skyldi hún hafa sagt þegar hún sá vasa- klútinn? Skyldi hún hafa orðið glöð? Eða ætli hún hafi sagt: Hva? Bara vasa- klútur? Svo órótt var mér að ég linnti ekki látum fyrr en ég fékk að hlaupa yfir í næsta hús til að heilsa upp á ung- frúna. Hún kom til dyra í dökk- grænum kjól, og áður en hún kom upp orði, því auðvitað var hún undrandi á að sjá mig þarna, spurði ég: Heyrðu, þarna, fékkstu vasa- klútinn? Enda þótt ég vissi vel að hún hafði fengið hann því ég afhenti henni hann sjálf. Og þá klapp- aði hún létt saman hönd- unum og sagði: Já og mikið óskaplega var hann smart! Svo kyssti hún mig á báða vanga. Spurði hvort ég vildi ekki koma inn. En ég vildi það ekki, ég var í svo mikilli geðshræringu að ég varð að koma mér heim. En þetta orð sem hún sagði, smart, hljómaði í eyrum mér allt kvöldið eins og englasöngur. Ég settist við borðið hjá logandi kerta- ljósum, horfði dáleidd á ljósið og hugsaði um hvað Jesús væri góður, hvað María mey væri góð, hvað ég væri góð, og ég fann hversu gott var að vera góður. Á þessu kvöldi fæddist ný tilfinn- ing innra með mér, ég fann gleðina sem fylgir því að gefa. Vasaklúturinn er minnsta og ódýrasta gjöf sem ég hef gefið um ævina. Samt hugsa ég alltaf um þennan klút þegar ég leita nú að jólagjöfum sem kosta jarðarverð, eins og skáldið sagði. Mér verður líka hugsað til ungu stúlkunnar sem átti þátt í því að veita mér þessa sönnu gleði. Hún gerði sér grein fyrir ábyrgð sinni sem átrúnaðargoð og nýtti sér hana með því að sýna okk- ur hvernig koma ætti fram við smá- fólk: Með virðingu og af fullri kurt- eisi. Við Edda vinkona hittumst á jóla- dag. Eftir að hafa horft tortryggnar á hvor aðra um stund, hófust gagn- kvæmar yfirheyrslur um jólagjafa- kaup. Kom þá í ljós að Edda hafði búið við þröngan fjárhag eins og ég þessi jól, og hafði því á endanum ákveðið að gefa gyðjunni vasaklút, sem hún síðan keypti á Þorláks- messu hjá Bergþóru Nýborg. Kristín Marja Baldursdóttir Víöförli

x

Víðförli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.