Víðförli - 15.12.1997, Side 15
námskeiðshalds. Ýmis góð ráð lágu í
loftinu, s.s. persónuleg bréf og helst
handskrifuð. Annars staðar frá var
bent á að það sem væri vel gert og
vandað í fræðslumálum kirkjunnar
auglýsti sig sjálft. Svo var bent á að
gott væri að finna markhópa til að
beina spjótunum að. Hróbjartur
benti á að við værum í raun að vinna
að markmiðum rétt eins og markaðs-
fræðin. Markaðssetja vöru sem fólk
sæktist eftir. Annar punktur sem kom
fram undir þessum dagskrárlið var
að fólk sækist eftir upplifun í tengsl-
um við fullorðinsfræðslu. Sem dæmi
var nefnt að ekki þýddi að fjalla um
helgigripi og táknmál kirkjunnar og
sýna fólki það á myndum og glærum.
Það ætti að fara með fólk í kirkju þar
sem hægt væri að sjá hlutina í réttu
samhengi og upplifa stemmningu
þeirra, „fara síðan til baka og gera
eitthvað, upplifa“, eins og einn þátt-
takandi orðaði það.
Þórhallur Heimisson, prestur í
Hafnarfjarðarkirkju, var næstur fræð-
ara og fjallaði hans erindi um samtal
sem aðferð. Hann hóf mál sitt á að
lýsa þeirri frægu kvikmyndasenu
þegar hinn brjóstumkennanlegi Mr.
Bean fer í kirkju. Þátturinn sýnir
hvernig hann berst við leiða og allt
er meira og minna óskiljanlegt, siðir
jafnt sem prédikun. Streð hans við
helgihaldið gengur svo langt að hann
veltist um á gólfinu. Kannski má lýsa
prédikuninni í því samhengi sem
Þórhallur setti hana að presturinn
talar og við skiljum ekki neitt. Kirkjan
hefur sannarlega verk að vinna.
Benti Þórhallur í því samhengi á
nýaldarfræðin sem blómstruðu hér á
landi sem annars staðar. Fólk væri að
leita og við yrðum því að kynna okk-
ur á opinskáan hátt þessi fræði til að
vera tilbúin til samtals. Standa föst á
okkar grunni, en vera opin og þora
að spyrja, þora að svara af hrein-
skilni án þess að hnika í neinu frá
kenningunni. Þórhalli var tíðrætt um
X-kynslóðina sem leitaði stíft og
reyndi að fá svar við tilvistarlegum
spurningum sínum. Til þessarar kyn-
slóðar þarf kirkjan að horfa og útbúa
fræðslu sem höfðar til hennar.
í umræðunum sem komu í kjölfar
erindis Þórhalls var bent á að
kannski væri þessi umrædda X-kyn-
slóð sú kynslóð sem hefði farið á mis
við barnastarf. Menn voru almennt
Skálholtsútgáfan var með kynningu á útgáfu sinni á málþinginu. Edda Möller, fram-
kvœmdastjóri útgáfunnar, og prestarnir Gunnar Hauksson og Sigurður Kr. Sigurðsson.
Flosi Magnússon, prófastur í Barðastrandarprófastsdœmi, og Jón Pálsson,
framkvœmdastjðri Bibltufélagsins.
sammála um þann punkt að við sem
kirkja yrðum að þora að mæta sam-
ferðafólki okkar í umburðarlyndi en
standa þó alltaf fast á okkar grunni.
í lok málþingsins var kynnt starf
sem fram fer innan kirkjunnar og
leikmannahreyfinga til að efla
fræðslu og meðvitund fólks um trú
og gildi hennar. Þess ber einnig að
geta að í öðrum sal safnaðarheimilis-
ins var kynning á útgáfustarfsemi
kirkjunnar og K.F.U.M og K. Einnig
var þar efni sem fræðslu- og þjón-
ustudeild kirkjunnar hefur í boði til
hjálpar við fullorðinsfræðslu.
Irma Sjöfn
Laus embætti
Laust er til umsóknar embœtti prests í Hallgrímsprestakalli, Reykjavík-
urprófastsdœmi vestra.
Einnig er laust til umsóknar embœtti sóknarprests í Skagastrandar-
prestakalli í Húnavatnsprófstsdæmi. Embœtti prests á Skagaströnd fylgja
umráð og afnot afgjaldsskylds prestseturs, sbr. 8. gr. laga nr. 62/1990 og
lög nr. 137/1993 og starfsreglur prestsetrasjóðs. Drög að haldsbréfi, þ.e.
umráða- og afnotasamningi um prestsetrið, liggja frammi á Biskupsstofu
þar sem veittar eru allar nánari upplýsingar um réttindi og skyldur um-
ráðamanns.
Bæði embœttin eru veitt til fimm ára. Um launkjör fer skv. ákvörðun
kjaranefndar, en að öðru leyti gilda lög um réttindi og skyldur starfs-
manna ríkisins, nr. 70/1996.
Umsóknarfrestur er til 20. desember 1997 og sendist umsóknir biskupi
íslands, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.
Víðförli