Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.04.1999, Síða 6

Bæjarins besta - 28.04.1999, Síða 6
Bókasafn Bolungarvíkur 3.765 gestir á síðasta ári Á fundi bókasafns- og menningarráðs Bolungar- víkur sem haldinn var fyrir stuttu kynnti Kristín Magn- úsdóttir, bókavörður, árs- skýrslu safnsins fyrir árið 1998 auk þess sem farið var yfir fjárhagsáætlun safnsins fyrir árið í ár. I máli Kristínar kom fram að 3.765 gestir hefðu heim- sótt safnið á síðasta ári. Utlán á bókum voru 8.344, átta á hljóðbókum og 37 á myndböndum auk þess sem seld voru 20 æviskírteini og 50 skólaskírteini að safninu. Þá greindi Kristín frá því að safninu hefði borist 234 bækur að gjöf auk fjölda tímarita. Meðal gjafa sem safnið hefur fengið upp á síðkastið má nefna niðjatal Friðriku Elíasdóttur og Sigurðar Bókasafn Bolungarvíkur er til liúsa í Grunnskóla Bol- ungarvíkur Péturssonar sem Sigurvin Guðbjartsson gaf. Þá gaf Dóra M. Elíasdóttir 20 kilj- ur, Ásdís Hrólfsdóttir gaf 12 bækur, 12 kiljur og 20 barnabækur, ættingjar Jens Níelssonar gáfu 199 bækur og 118 barnabækur og Ás- gerður Jónasdóttir gaf 34 kiljur. ísafjarðarhöfn Sléttanes með 50 inillj- óna króna aflaverðmæti Guðmundur E/narsson, ótrú/egur af/amaður á smábát í Bo/ungarvík Sléttanes ÍS landaði um 180 tonnum af frosnum af- urðum í ísafjarðarhöfn á þriðjudag að verðmæti um 50 milljónir krónaog Guð- mundur Péturs kom með 20 tonn af rækju. Á mánudag landaði Stak- fell 30 tonnum af rækju, Stefn- irlandaði 80tonnum afblönd- uðum afla og Páll Pálsson kom með 90 tonn af blönduð- um afla. Páll Pálsson landaði einnig í síðustu viku og kom þá með 25 tonn. Þá landaði Stefnir35 tonnum, Guðmundur Péturs 20 tonnum og Hjörleifur 35 tonnum en hann var að koma úr sinni síðustu veiðiferðfyrir Hraðfrystihúsið hf. í Hnífsdal. Á mánudag í þessari viku lauk síðan rækjuveiði í Isa- fjarðardjúpi. Sléttanes IS. Fiskar á viö stór- an vertíðarbát Það mætti ætla að Guð- mundur Einarsson í Bol- ungarvík hafi hirt með sér aflasæld Guggunnar þegar hann hætti á henni og fór að gera út smábát í Víkinni. Guðmundur er nú skipstjóri á átta tonna krókabát, Guð- mundi Einarssyni 1S, sem heitir reyndar ekki í höfuðið á skipstjóranum, heldur eftir afa hans. Aflinn á síðasta ári var liðlega 660 tonn og afla- verðmætið nær 60 milljónir króna. Stórir vertíðarbátar gætu gert sig nokkuð ánægða með það. Sá smá- bátur sem næstur kemur Guðmundi Einarssyni IS á síðasta ári var með um 43 milljón króna aflaverðmæti. Guðmundur rær við annan mann og sækir fast eins og löngum hel'ur verið títt um Guðmundur Einarsson. Bolvíkinga. Auk þess er hann fiskimaður af Guðs náð, að því er kunnugir segja. Hann var lengi á Guð- björginni. byrjaði sem háseti en var kominn upp í að leysa af sem skipstjóri þegar Sam- herji fékk togarann. Þá ákvað Guðmundur að venda sínu kvæði í kross og gerast eiginn herra. I samtali við Fiskifréttir segist Guðmundur geta þakkað Samherjafrændum að hann tók þetta skref, því að annars er hann ekkert viss um að hann hafi látið verða af því að hætta á Guðbjörgu. Afli Guðmundar Einars- sonar á síðasta ári skiptist þannig, að ýsa var rúm 200 tonn, stembítur um 100 tonn en hitt var að mestu þorskur. Einkum lagði hann sig eftir ýsunni og stembítnum. Hópur manna úr ísafjarð- arbæ á fjórum jeppum og átta vélsleðum fór á sumar- daginn fyrsta upp á Hrafns- eyrarheiði og síðan sem leið lá yfir Glámu og eftir há- lendinu allt til Nauteyrar við Isafjarðardjúp. Það voru reyndar fímm jeppar sem lögðu upp en einn þeirra bilaði fljótlega. Á leiðinni upp á hálendið voru bílarnir heldur fljótari í förum en sleðarnir en það snerist við þegar upp var komið og var því allur gangur á samfloti. Veður var fagurt og himinn heiður og blár. Mannskapur- inn gisti síðan á Nauteyri um nóttina. Sumir héldu ferðinni áfram norður á bóginn en aðrir sneru til baka daginn eftir og óku þá Djúpið, enda var þá komin þoka og skafrenningur á fjöllum. Á föstudagsmorgun hugð- ust þeir sem eftir voru fara yfir Drangajökul en vegna mikillar þoku var snúið aftur að sinni. Á laugardagsmorgun fóru hins vegar vélsleðarnir og tveir jeppar upp á jökul og Áningarstaður ói fjöllum á sumardaginn fyrsta. Ökumenn bílanna íferðinni voru brœðurnir Barði og Úlfar Önundarsynir, Jónas H. Hauksson og Magnús Helgason, en alls voru ellefu manns íjeppunum. Myndirnar tók einn leiðangursmanna, Sigurður Mar Óskarsson. í Hrafnfjörð og var stefnan hætti, að einn sleðamanna baki. Ekki var talið óhætt að til að sækjahann í Hrafnfjörð. sett á Hornbjarg, en vegna fékk slæman hnykk og var í flytjamanninníbíleðaásleða Betur fór en á horfðist og þoku og óhapps var horfið frá fyrstu talið að hann væri og var björgunarbáturinn reyndistmaðurinnóbrotinnen því. Óhappið varð með þeim jafnvel brotinn neðarlega í Gunnar Friðriksson fenginn illa marinn. ísafjörður Sundfelags- insVestra Gíslamót Sundfélags- ins Vestra var haldið fyrir stuttu í Sundhöll ísafjarð- ar. Að þessu sinni kepptu krakkar frá Ungmennafé- lagi Bolungarvíkur og Gretti á Flateyri. Veittir voru bikarar fyrir þrjú stigahæstu sund í ald- ursflokki og hlutu eftir- taldir stigabikar: Svala Sigurgeirsdóttir UMFB í flokki meyja, Hjalti Rún- ar Oddsson Vestra í flokki sveina, Linda Guðmunds- dóttir Vestra í telpna- flokki, Lára Bettý Harð- ardóttir Vestra í stúlkna- flokki og Heiðar Mari- nósson Vestra í pilta- flokki. Hjalti Rúnar setti Isa- fjarðarmet í 400 metra skriðsundi sveina á tím- anum 5:19.83 auk þess sem hann setti ísafjarðar- met í 50 metra baksundi sveina á tímanum 5:30.90. 6 MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 1999

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.