Bæjarins besta - 28.04.1999, Síða 9
Félagar í Upp og Niður klúbbnum ásamt mökum á Silfurtorgi á Isafirði.
Upp og Niöur-klúbburinn á ísafiröi
Aðalfundurinn
stóð í óra daga
UN-gengið er einn af
merkustu og virðulegustu
veiðiklúbbum landsins og
orðinn meira en aldarfjórð-
ungs gamall. Klúbburinn
hélt aðalfund sinn á ísafirði í
síðustu viku og stóð hann í
fjóra daga eða allt fram á
sunnudag. Einn félags-
manna frá öndverðu er
ísfirðingurinn Pétur H.R.
Sigurðsson. Aðalfundinn
„sátu“ einnig makar klúbb-
félaga, en á fundinum var
reyndar meira ferðast um
nágrennið en setið, enda var
veður gott til slíks, sólskin
og blíða. Hins vegar er veð-
ur af því tagi ekki vinsælt í
veiðiferðum.
„Veiðilendur" UN-
gengisins eru í Miðfjarðará
og hefur klúbburinn m.a.
það hlutverk að „opna“ ána
á hverju ári. Félagsmenn eru
tíu og má þar auk Péturs
H.R. nefna Friðbert Pálsson
frá Suðureyri sem löngum
hefur verið kenndur við
Háskólabíó, Tómas Zoéga,
Bjarna í Brauðbæ og Ragnar
Örn Pétursson í Keflavík.
Félagsmenn geta ekki
gengið úr klúbbnum nema
þeir framvísi staðfestu
dánarvottorði og nýir eru
ekki teknir inn nema í stað
þeirra sem hverfa þannig á
braut.
Skammstöfunin UN í
nafni klúbbsins stendur fyrir
Upp og Niður, eins og tákn-
að er með örvum í merki
hans. Nafnið varð til eitt
sinn þegar félagarnir veiddu
óvenjumarga niðurgöngu-
laxa á opnunardögunum í
Miðfjarðará. Einnig og ekki
síður getur það vísað til
þess, að veiðimenn, þótt
snjallir séu, verða að taka
því að árangurinn í veiði-
ferðum sé upp og niður.
Það er í minnum haft,
þegar Pétur H.R. og Ragnar
Örn fengu eitt sinn smá-
flugvél til að skutla sér frá
fsafirði, en þar hafði Ragnar
verið staddur að dæma
knattspyrnuleik. Þeir sem
áður voru komnir áttu sér
einskis ills von þegar vélin
smaug yfir höfðum þeirra
áður en hún lenti á Króks-
staðamelum. Pétur lét svo
um mælt af þessu tilefni, að
besta leiðin til að skyggna
veiðistaðina væri að gera
það úr flugvél.
HÁÞRÝSTIÞVOTTUR EYKUR
ENDINGU MÁENINGAR UM 30%!
Vestfiröingar athugið!
Garðamúr ehf.
annast háþrýstiþvott
á húsum, bátum ásamt
örðum hlutum sem þurfa
á háþrýstiþvotti að halda.
Styrkleiki frá
250 bar til 600 bar.
Getum boðið upp á
votsandblástur sem
tekur alla málningu
af stein eða stáli.
Mikið tap á rekstrí Hfí Djúpbátsins GERUM VERÐTILBOÐ!
Líklegt að áhöfnin takí
skipið á leigu í sumar
Samningar eru í gangi milli
Hf. Djúpbátsins og nokkurra
skipverja á Fagranesinu um
að þeir taki skipið á leigu og
reki það sjálfir í sumar. Af
hálfu fyrirtækisins er frágang-
ur samninganna í höndum
Björns Jóhannessonar lög-
fræðings. Ekki virðast líkur á
öðru en endar náist saman í
þeim viðræðum nú um mán-
aðamótin og skipverjarnir hafi
Fagranesið á leigu í sumar og
reki það frá 1. júní og fram á
haust.
Að þeim tíma liðnum er
hins vegar fullkomin óvissa
um framtíð skipsins, að sögn
Kristins J. Jónssonar, stjórn-
arformanns Hf. Djúpbátsins.
Að óbreyttum forsendum er
ekki grundvöllur fyrir áfram-
haldandi rekstri og er það í
fullu samræmi við það sem
Kristinn Jón hefur sagt allt
frá því að hann tók við stjórn-
arformennsku á síðasta ári.
Helst mun vera horft til þess
að verðandi þingmenn Vest-
firðinga muni í sumar geta
ráðið fram úr vanda fyrirtæk-
isins með einhverjum hætti.
Þeir sem hyggjast taka
Fagranesið á leigu í sumar
eru þeir Hjalti M. Hjaltason
skipstjóri ásamt stýrimanni og
vélstjóra skipsins.
Skuldir Hf. Djúpbátsins
umfram eignir eru talsverðar,
en það segir ekki alla sögu
því að ríkið sér um afborganir
af skipinu sjálfu. Rekstrar-
skuldir fyrirtækisins eru hins
vegar allt of miklar, að sögn
Kristins Jóns. Rekstrartekjur
fyrirtækisins voru á síðasta
ári voru 31 milljón króna en
rekstrargjöld 59 milljónir.
Upp í það tap kernur rekstrar-
styrkur upp á 11 milljónir á
síðasta ári.
Nokkuð erbúið að hagræða
í rekstri frá því í fyrra og hægt
að gera enn betur á því sviði,
en að sögn Kristins Jóns mun
það ekki duga til.
„Að óbreyttu getum við
ekki stefnt að neinu öðru en
hætta rekstri nú í vor.“
Höfum til sölu allt
efni til múrframkvæmda:
• Alhliða múrefni
• Flísar
• Hellur og fleira
Símar 861 1442 og 862 6844
MIÐVIKUDAGUR 28. APRIL 1999 9