Bæjarins besta - 01.09.1999, Blaðsíða 4
Fasteignaviðskipti
m
,«
to
311 m2 glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum ásamt
innbyggðum tvöföldum bílskúr. Einstaklingsíbúð á neðri
hæð. Stór og vel gróinn garður.
Verð 17 m.kr.
TRYGGVI GUÐMUNDSSON HDL
Hafnarstræti 1 - ísafírði
Simar: 456 3940 & 456 3244
Fax: 456 4547 - Netfang: tryggvi@snerpa.is
Einbýlishús / raðhús
Bakkavegur39:201 m2einbýlis-
hús á tveimur hæðum ásamt
innbyggðum bilskúr. Ahv. ca. 3,8
m.kr. Verð 12,2 m.kr.
Engjavegur 12:210 m2 einbýlis-
hús á tveimur hæðum ásamt
innbyggðum bílskúr. Áhv. 5,7
m.kr. Verð 9,5 m.kr.
Fagraholt 12: 156,7 m2einbýlis-
hús á einni hæð ásamt bflskúr.
Skipti á minni eign á Eyrinni
koma til greina. Verð 12 m.kr.
Heiðarbraut 12:221 m2einbýlis-
hús á tveimur hæðum. Má gera
að tveimur sjálfstæðum íbúðum.
Verð 10,5 m.kr.
Hjallavegur 19:242m2einb.hús
á 2 hæðum ásamt innbyggðum
bflskúr. Sér ibúð á n.h. Ymis skipti
möguleg. Áhv. ca. 5 m.kr.
Verð 10,5 m.kr.
Hlíðarvegur 14: 170,8 m2 ein-
býlishús á tveimur hæðum ásamt
risi. Húsið er mikið endurnýjað,
ekkert áhvílandi. Verð 10,5 m.kr.
Hlíðarvegur31: 130m2einbýlis-
hús á 2 hæðum ásamt bflskúr.
Húsið er nær allt uppgert að utan
sem innan. Mjög gott útsýni.
Verð 10,7 m.kr.
Hlíðarvegur 48: 146,4 m2 ein-
býlishús á þremur pöllum, mjög
fallegt útsýni, garður. Öllum
tilboðum svarað. Tilboð óskast.
Hrannargata 8a: 78,1 m2 ein-
býlishús á tveimur hæðum ásamt
eignarlóð. Mikið uppgert. Áhv.
ca. 2,8 m.kr. Verð 4,6 m.kr.
ísafjarðarvegur 4: 96,4 m2
einbýlishús á tveimur hæðum
ásamt bílskúr. Húsið er að hluta
uppgert. Áhv. ca. 1,8 m.kr.
Verð 6,5 m.kr.
Seljalandsvegur 48: 188 m2
einbýlishús á tveimur hæðum
ásamt bflskúr. Skipti á minni eign
koma til greina. Áhv. ca. 2 m.kr.
Verð 12,7 m.kr.
Silfurgata 9: 150 m2 gamalt
einbýlishús á besta stað í bænum.
Barnavænn og sólríkur garður,
mikið geymslupláss, bflastæði og
eignarlóð. Áhv. ca. 2,6 m.kr.
Verð 6,9 m.kr.
Stakkanes 4: 144 m2 raðhús á
tveimur hæðum ásamt bflskúr.
Skipti möguleg á íbúð á Eyrinni.
Áhv. ca. 3,5 m.kr.Verð9,9m.kr.
Tangagata 6a: 99.7 m2 einbýlis-
hús á tveimur hæðum. Laust
fljótlega. Öll tilboð skoðuð. Áhv.
ca. 1,5 m.kr. Verð 6,8 m.kr.
Urðarvegur 4: 136 m2 einbýlis-
hús á tveimur hæðum ásamt
bflgeymslu. Mikið endurnýjað.
Góð staðsetning. Öll tilboð skoð-
uð. Verð 9,7 m.kr.
Urðarvegur 27: 190,5 m2 einb.-
hús á 2 hæðum ásamt bílskúr,
góðum garði, svölum og sólpalli.
Skipti á minni eign mögul.
Verð 13,5 m.kr.
4-6 herb. íbúðir
Hafnarstræti 6: 158 m2 6 her-
bergja íbúð á 3ju hæð í fjölbýli.
Skipti á minni eign möguleg. Áhv.
4,5 m.kr. Verð 6,8 m.kr.
Hjallavegur8:128,5 m24raherb.
ibúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi.
Laus fljótlega. Áhv. hagstæð lán
ca. 2.8 m.kr. Verð 6,9 m.kr.
Seljalandsvegur67:116,2m24ra
herbergja íbúð á efri hæð í
tvíbýlishúsi. Ibúðin endurnýjuð
að hluta. Áhv. ca. 4,2 m.kr.
Verð 7,2 m.kr.
Sólgata 5: 102 m2 6 herbergja
íbúð á tveimur hæðup í norður-
enda í tvíbýlishúsi. Áhv. ca. 3,5
m.kr. Verð 5 m.kr.
Stórholt 13: 123 m2 4ra herb.
íbúð á 3ju hæð í fjölbýli ásamt
bflskúr. Ibúðin er mikið uppgerð.
Áhv. ca. 567 þ.kr.
Verð 7,9 ni.kr.
Stórholt 13: 123 m2 4ra herb.
íbúð á 2. hæð í fjölbýli ásamt
bflskúr. Ibúðin er mikið uppgerð.
Verð 6,9 m.kr.
Túngata 12: 98,9 m2 4ra her-
bergja ibúð á efri hæð í þríbýlis-
húsi. Áhv. ca. 3,7 m.kr.
Verð 7,2 m.kr.
3ja herb. íbúðir
Pólgata 6: 70 m2 íbúð á 1. hæð
til hægri í fjölbýlishúsi. Áhv. ca.
2.3 m.kr. Verð 4,1 m.kr.
Silfurgata 11: 74,1 m2 íbúð á
tveimur hæðum í uppgerðu
fjölbýli. Ibúðin er mikið upp-
gerð. Áhv. ca. 1,5 m.kr.
Verð 5,5 m.kr.
Sólgata 8: 80 m2 íbúð á neðri
hæð í þríbýlishúsi í góðu standi
Áhv. ca. 3 m.kr. Verð 5,8 m.kr.
Stórholt 9: 80,9 m2 góð íbúð á
1. hæð í fjölbýlishúsi ásamt sér
geymslu og sameign. Áhv. ca.
2.4 m.kr. Verð 5,3 m.kr.
Stórholt 11: 80 m2 íbúð í góðu
standi á 3. hæð til hægri í
fjölbýlishúsi ásamt sérgeymslu.
Laus strax Áhv. ca. 2,5 m.kr.
Verð 5,6 m.kr.
2ja herb. íbúðir
Aðalstræti 20: 94 m2 íbúð á 4.
hæð til hægri í fjölbýlishúsi
ásamt sérgeymslu. Áhv. ca. 1,7
m.kr. Verð 5,9 m.kr.
Hlíðarvegur 27:49,9 m2 íbúð á
neðri hæð í tvíbýlishúsi. Áhv.
ca. 555 þús.kr. Tilboð óskast.
Hlíf II, Torfnesi: 50,4 m2 íbúð
á2. hæðíDvalarheimili aldraðra.
Áhv. ca. 3,9 m.kr. Verð 6,1 m.kr.
Mjallargata 1: 67,9 m2 íbúð í
góðu standi á 2. hæð í fjölbýlis-
húsi. Áhv. ca. 3,6 m.kr.
Verð 6,5 m.kr.
Túngata 18: 53,4 m2 íbúð á 1.
hæð í nýlega uppgerðu fjölbýlis-
húsi ásamt sér geymslu.
Verð 4,9 m.kr.
Túngata 18: 53,4 m2 íbúð á 3ju
hæð í nýlega uppgerðu fjöbýlis-
húsi ásamt sér geymslu. Skoða
öll tilboð. Tilboð óskast.
A tvinnuhúsnæði
Aðalstræti 20b: 215 m2 versl-
unar- og þjónustuhúsnæði í
miðbænum. Tilheyrandi 166m2
eignarlóð. Verð 16,7 m.kr.
Austurvegur 1: 103,4 m2skrif-
stofuhúsnæði á 3. hæð. Fallegt
útsýni. Laust fljótlega.
Verð 5,5 m.kr.
Mjallargata 5:200 m2 verslunar
húsnæði á neðri hæð og gisti-
heimili á efri hæð. Áhvflandi 3
m.kr. Verð 7,5 m.kr.
Fasteignir í
þessari
augiýsinj>u eru
aðeins sýnisiiorn
ai' söiuskránni.
Allar frekari
upplýsingar eru
veittar á skrifslofunni
að Hafnarstræti í,
3. hæð.
Fjórír vestfirskir rœðismenn eríendra ríkja. F.v. Fylkir Ágústsson rœðismaður Danmerkur á ísafirði, Jón Friðgeir Ein-
arsson rœðismaður Finnlands í Bolungarvík, Sverrir Hestnes rœðismaður Noregs á ísafirði og Þorsteinn Jóhannesson
rœðismaður Þýskalands á Isafirði.
Sendiherra Þýskalands og eiginkona hans á ferð um Vestfírði
Sendiherrahjónin Marianne og Reinhart Ehni ásamt rœðis-
manni Þýskalands á Isafirði, Þorsteini Jóhannessyni og
eiginkonu hans Friðnýju Jóhannesdótturfyrirframan Turn-
húsið í Neðstakaupstað.
Þýsku sendiherrahjónin á
Islandi, Marianne og Reinhart
Ehni, efndu sl. fimmtudags-
kvöld til samsætis með dálitl-
um hópi boðsgesta í Tjöru-
húsinu á ísafirði. Þá voru þau
í þann veginn að ljúka viku-
löngu sumarleyfisferðalagi
sínu á Vestfjörðum. Að mót-
tökunni lokinni ræddi Bæj-
arins besta við sendiherrann
um ferð þeirra hjóna hér vestra
og kynni þeirra af landi og
þjóð.
Að sögn sendiherrans var
þetta annað skiptið sem hann
kemur til Isafjarðar. Fyrir
þremur árum kom hann í
embættiserindum ásamt eig-
inkonu sinni til þess að hitta
ræðismann Þýskalands á Isa-
firði, Þorstein Jóhannesson yf-
irlækni, og setja hann inn í
nýtt og breytt hlutverk heið-
ursræðismanns samkvæmt út-
nefningu forseta Sambands-
lýðveldisins Þýskalands. „Að
því sinni átti ég ekki annars
kost en koma flugleiðis og
standa stutt við hjá Þorsteini
og eiginkonu hans. Þá ákvað
ég hins vegar að koma aftur
vestur, ferðast í ró og næði á
eigin bíl umVestfirði ogkynn-
ast svæðinu og fólkinu sem
hér býr. Nú var ég að koma
þeirri ákvörðun í verk.“
Sendiherrann lét afar vel af
ferð þeirra hjóna hér vestra.
„Við tókum ferjuna yfir
Breiðafjörð og áttum fyrst við-
komu í Flókalundi. Síðan
þræddum við firði og víkur,
kontum á Látrabjarg, heim-
sóttum safnið á Hnjóti og
skoðuðum Patreksfjörð og
Tálknafjörð. Við komum á
Hrafnseyri og skoðuðum þar
hið mikla safn til minningar
um Jón Sigurðsson, sjálf-
stæðishetju Islendinga, og áð-
um á Þingeyri og Flateyri á
leið okkar til ísafjarðar. Núna
erum við búin að eiga mjög
notalega stund í Tjöruhúsinu
með vinum okkar hér á ísa-
firði.“
Það vekur sérstaka athygli,
hversu fróður og nákvæmur
sendiherrann er þegar hann
ræðir um staðhætti og örnefni
á Vestfjörðum. Þegar hann
talar um kynni sín af Vest-
fjörðum virðist Ijóst, að orð
hans eru ekki neitt yfirborðs-
hjal heldur koma frá hjartanu.
„Náttúrufar hér vestra er afar
stórbrotið og hefur haft mikil
áhrif á okkur hjónin. Við höf-
urn víða farið í gönguferðir
og varið miklum tíma til að
skoða okkur um. Það er
ákaflega athyglisvert að kynn-
ast hér bæjum og þorpum og
skoða hafnirnar og fiskiðnað-
inn. Að ógleymdum jarðgöng-
unum. Fyrir þremur árum ók-
um við með Þorsteini vini
okkar yfir Breiðadalsheiði en
nú fórum við um göngin undir
hana. Það er athyglisvert,
hversu nú er orðið miklu fljót-
legra og greiðara að komast
milli fjarða. Svæðið líkt og
skreppur saman við tilkomu
ganganna, bæirnir og þorpin
tengjast betur og þar með
styrkist atvinnulífið."
Reinhart Ehni tók við stöðu
sendiherra á Islandi í júnímán-
uði 1996. „Ég leyfi mér að
geta þess“, segir hann, „að ég
mun hafa verið síðasti erlendi
sendiherrann sem afhenti frú
Vigdísi Finnbogadóttur þáver-
andi forseta Islands trúnaðar-
bréf sitt. Nú er dvölin orðin
meira en þrjú ár og nýlega var
ég spurður hversu lengi ég
myndi verða á Islandi. Ég
svaraði: Eins lengi og kostur
er! Eiginkona mín, Marianne,
sagði við mig fyrir skömmu:
Við förum ekki héðan aftur!
En auðvitað er það undir þýsk-
um stjórnvöldum komið. Við
hjónin vonum að þau vilji hafa
okkur hér sem allra lengst.“
Þegar sendiherrann er
spurður hvort hann hafi haft
einhver tengsl við ísland eða
sérstök kynni af landinu áður
en hann tók við sendiherra-
starfinu, segir hann: „í skóla
á ungum aldri komst ég í náin
kynni við norræn fræði, las
eddukvæði og íslenskar forn-
sögur og lærði þá fyrstu orðin
og setningarnar á fornís-
lensku. Þegar ég síðan fékk
þau boð frá þýskum stjórn-
völdum að gerast sendiherra
á fslandi, en þá var ég við
störf í Lundúnunt, þá gladdist
ég mjög, enda vakti það góðar
minningar frá námsárum mín-
um. Ég var þess vegna fljótur
að svara: Mér er það rnikil
ánægja að fara til íslands.“
Sendiherrann er upprunn-
inn í Schwaben-héraði í Suð-
ur-Þýskalandi - „eins og
heyra má á mállýskublæ
mínum“, segir hann. Það má
því ætla, að samræður sendi-
herrans við Þorstein ræðis-
mann og Friðnýju konu hans
hljómi nokkuð á annan veg
en getur að heyra t.d. í þáttun-
um um Derrick, en þau hjónin
bjuggu um langt árabil við
nám og læknisstörf í Sváfa-
landi, eins og það var nefnt á
íslensku á fyrri tíð. Sendiherr-
ann var lengi búsettur í höfuð-
borginni Bonn við Rínarfljót,
rétt suður af Köln, en um þess-
ar mundir stendur einmitt yfir
flutningur á stjórnarstofnun-
um þýska ríkisins frá Bonn
austur til Berlínar. Um jóla-
leytið má ætla að flutningi
allra ráðuneyta verði lokið og
þegar árið 2000 gengur í garð
verður Berlín í reynd orðin
höfuðborg Þýskalands á ný.
Þýsku sendiherrahjónin
fóru frá ísafirði á föstudag
áleiðis til Dalvíkur. Þar hugð-
ust þau vera yfir helgina í boði
vinafólks og jafnvel að bregða
sér í hvalaskoðunarferð.
Lærði fyrstu orðin og setn-
ingarnar á forníslensku á
ungum aldri
4
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999