Bæjarins besta - 01.09.1999, Blaðsíða 9
Finnur Ingólfsson, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra á skján-
um frá Suðureyri.
Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra og aðstoðar-
maður hans, Jakoh Falur
Garðarsson.
Starfsstöðvar íslenskrar miðlunai á
„Stór stund
sem Vestfirrt
og Dýrfirð
r
- sagði forseti Islands, herra
Ólafur Ragnar Grímsson
Forseti íslands, herra Ól-
afur Ragnar Grímsson, lýsti
því ytir „sem Vestfirðingur
og Dýrfirðingur“, að það
væri „stór stund að geta tek-
ið þátt í [...] að ýta þessum
nýja áfanga í atvinnulífi
Vestfjarða úr vör", þegar
hann opnaði vinnustaði Is-
lenskrar miðlunar ehf. á
Þingeyri og Suðureyri við
hátíðlega athöfn sl. föstu-
dag. Forsetinn minnti á
fyrstu opinberu heimsókn
sína og frú Guðrúnar Katr-
ínar Þorbergsdóttur eftir að
hann tók við embætti fyrir
liðlega þremur árum, en þá
heimsóttu þau hjónin Þing-
eyri og vitjuðu æskuslóða
Ólafs Ragnars. Við það
tækifæri lét forsetinn þau
orð falla, sem sérstaka at-
hygli vöktu, að framtíð
hinna dreifðu byggða lægi í
tölvutækninni.
Starfsstöðvarnar tvær
voru opnaðar samtímis og
var forseti Islands staddur á
Þingeyri en á Suðureyri var
Finnur Ingólfsson, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra. í höf-
uðstöðvum Islenskrar miðl-
unar í Reykjavík var Sturla
Böðvarsson, samgönguráð-
herra, sem fer með fjar-
skiptamál, og ræddust þeir all-
ir við gegnum samskiptabún-
að fyrirtækisins, eftir að for-
setinn hafði sett hann í gang.
Samgönguráðherra tók
undir orð forseta íslands og
sagði m.a.: „Þettaer stór stund
fyrirokkurungu drenginasem
einu sinni vorum í sjávar-
byggðunum. Maður hefði
varla trúað því þegar maður
var að alast upp í litlu þorpi
að eiga eftir að taka þátt í
þessu.“
35 ný störf í ísafjarðarbæ
Þegar þriðji vinnustaður
Islenskrarmiðlunarílsafjarð-
arbæ verður opnaður á Isafirði
innan skamms munu urn 35
ný störf hafa skapast í bæjar-
félaginu við tilkomu fyrirtæk-
isins. Meðal verkefna starfs-
fólks Islenskrar miðlunar á
Vestfjörðum eru sölu- og
markaðsmál, gerð markaðs-
kannana og skráning gagna.
Fyrirtækið hefur m.a. gert
samkomulag við Pricewater-
houseCoopers urn gerð mark-
aðskannana og stendur nú í
viðræðum við ýmis fyrirtæki
og stofnanir um verkefni sem
að mestu verða unnin á lands-
byggðinni.
landið. „Nú hefur verið upp-
lýst af hálfu Landssímans í
viðræðum við mig, að það
muni verða gerð breyting á
gjaldskránni. Það er auðvitað
gert vegna þess að gagnaflutn-
ingarnir eru að stóraukast.
Landssíminn vill bregðast við
því og þess vegna hefur verið
ákveðið af hálfu Landssímans
Eyþór Arnalds, framkvœmdastjóri Islandssíma, fœr sér
sneið af hátíðartertu. Þœr voru fjórar í röð og mynduðu
töluna 1800, sem er upplýsinganúmer Islandssíma og Is-
lenskrar miðlunar.
að í næsta mánuði. fyrir I. gönguráðherra.
október, muni gjaldskráin
lækka verulega“, sagði sam- (Jýtt UPPlýSÍIigailÚmer
Halldór Kristmannsson, for-
stöðumaður íslenskrar miðl-
unar á Vestfjörðum.
Við athöfnina á Þingeyri
sl. föstudag kynntu einnig
þeir Einar K. Guðfinnsson,
alþingismaður Vestfirð-
inga, og Eyþór Arnalds,
framkvæmdastjóri íslands-
síma, nýtt upplýsinganúm-
er Islandssíma, númerið
1800. Þar verða veittar upp-
lýsingar um íslensk og er-
lend símanúmer og við-
skiptavinum gefið sam-
band við þau ef óskað er.
Einnig verður í síma 1800
hægt að fá upplýsingar um
fyrirtæki og starfsemi
þeirra. í tilefni þessa var á
borðum á Þingeyri sérstök
hátíðarterta í fjórum hlut-
um, mynduð af tölustöfun-
um í hinu nýja upplýsinga-
númeri.
Forseti Islands og aðrir gestir hlýða á rœðu samgönguráðherra á myndsímaskjá.
Rœðuflutningur milli landshluta. Þeir Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður, Pál! Kr.
Pálsson, stjórnarformaður Islandssíma, Eyþór Arnalds, framkvœmdastjóri Islandssíma,
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður ísfirðinga og Svavar Kristjánsson, framkvœmda-
stjóri íslenskrar miðlunar, staddir á Þingeyri, hlýða á rœðu Sturlu Böðvarssonar, sam-
gönguráðherra sem staddur var í Reykjavík.
Árni Aðalbjarnarson, bakarameistari í Gamla bakaríinu á Isafirði, leggur síðustu hönd
á skreytingu 1800-tertunnar.
Fjölmargir möguleikar
Fjarfundabúnaðurinn sem
settur hefur verið upp í starfs-
stöðvum Islenskrar miðlunar
býður marga kosti í fjarnámi.
Ökuskóli Suðurlands hefur
þegar gert samkomulag við
Islenska miðlun um að halda
námskeið til aukinna ökurétt-
inda í gegnum búnað fyrir-
tækisins. Kennari í Reykjavík
mun þá kenna þátttakendum
á Vestfjörðum og annars stað-
ar á landinu samtímis í full-
komnu rnynd- og hljóðsam-
bandi. Iðntæknistofnun hefur
einnig sýnt mikinn áhuga á
því að fá aðgang að búnaðin-
um og stefnir að því að halda
námskeið á landsbyggðinni í
gegnurn hann.
Rekstur þjónustuvera verð-
ur snar þáttur í starfsemi Is-
lenskrar miðlunar á lands-
byggðinni. M.a. hefur fyrir-
tækið gert samning við Is-
landssíma um að taka að sér
alla svarþjónustu og rekstur
þjónustuvers. í því felst að
þjálfaðir starfsmenn Islenskr-
ar miðlunar annast símsvörun
og veita ýmsar upplýsingar
og þjónustu á vegurn Islands-
síma. Unnt er að reka þjón-
ustuver eða upplýsingaveitu
af þessu tagi fyrir fyrirtæki
með margvíslega starfsemi,
t.d. banka og aðrar þjónustu-
stofnanir.
Þjúnustugjöldin
verða stúrlækkuð
Það vakti nokkurn ugg
þegar það komst í hámæl i fyrir
fáum vikum, hversu mikill
munur er á þeim þjónustu-
gjöldum sem Islenskri miðlun
er gert að greiða Landssím-
anum fyrir notkun á gagna-
flutningslínum á landsbyggð-
inni og þeim taxta sem er á
höfuðborgarsvæðinu. A fjar-
fundinum sl. föstudag sagði
samgönguráðherra, að hann
hefði af þessurn sökum átt
viðræður við forsvarsmenn
Landssímans og Póst- og fjar-
skiptastofnunar um það,
hvernig hægt væri að koma til
móts við notendur úti um
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 9