Bæjarins besta - 27.10.1999, Qupperneq 1
T¥ÆR VESTFII^IÍÆ
saga A LÆKKUÐU VERÐ9 vestfirskir ^
ÍSAFJARÐAR
KR> 4*560»- SETTIDIÓSKJU
SLYSADAGAR
_________KR. 3A20>~
BÖKHLADAN
SÍMI456 3123
Stofnað 14. núvember 1914 • Sfmi 456 4590 • Fax 456 4594 • Netfang: bb@snerpa.is • Verð kr. 200 m/vsk
3X-StáI selur blikksmiðjureksturínn
Isbllkk ehf. kaupir
- nýtt fyrirtæki í eigu Marinós Hákonarsonar og Ágústs og Flosa ehf.
3X-Stál á ísafirði hefur selt
blikksmiðjureksturinn út úr
fyrirtækinu. Kaupandi er Is-
blikk ehf. sem er að tveimur
þriðju í eigu Marinós Hákon-
arsonar blikksmíðameistara
og húsasmiðs og eiginkonu
hans, Júlíu Bjarkar Þórðar-
dóttur, en verktakafyrirtækið
Ágúst og Flosi ehf. á einn
þriðja. Ekki er enn frágengið
hvar ísblikk ehf. verður til
húsa á Isafirði í framtíðinni
en ýmsir möguleikar í skoðun,
að sögn Marinós.
„Við viljum einbeita okkur
að því sem er helsti vaxtar-
broddurinn í framleiðslunni
hjá okkur“, sagði Albert
Högnason hjá 3X-Stáli í sam-
tali við blaðið. „Við vorum
komnir í vandræði með hús-
næði. Þetta var ein leiðin í
stöðunni og við náum upp
þeirri veltu sem blikksmiðjan
gefur með því að víkka starf-
semi stálsmiðjunnar út í það
húsnæði sem hún hefur haft.
Við höfum verið mjög upp-
teknir af þeim vinnslubúnaði
sem við erum að framleiða
fyrir rækjuna og þess vegna
höfum við ef til vill ekki sinnt
blikksmiðjuhlutanum eins og
við vildum eða getað gefið
honum nógan tíma. Marinó
hefur séð um blikksmiðjuna
hjá okkur og með því að hann
kaupi hana getur hann sinnt
henni af meiri metnaði. Við
sjáum að hann getur gert mjög
góða hluti með því að reka
hana sjálfur.“
„Þetta leggst vel í okkur"
sagði Marinó Hákonarson.
„Við reynum að sinna verk-
efnum eins vel og hingað til
en reyna jafnframt að bæta
við einhverjum þáttum. Verk-
efnin hafa verið næg og ég
hef trú á að svo verði áfram.“
Fyrrum eignir Rauða hersins á Bíldudal og Tálknafirði
Fjárfestingabanki at-
vinnulífsins vill selja
Fjárfestingarbanki atvinnu-
lífsins (FBA) mun alveg á
næstunni auglýsa til sölu eign-
ir þær á Bíldudal og Tálkna-
firði sem áður voru í eigu fyr-
irtækja Ketils Helgasonar og
félaga (Rauðfeldar og Rauð-
hamars)en bankinneignaðist
þær á nauðungaruppboðum í
sumar.
Að Strandgötu 1 og 2 á
Bíldudal er um að ræða liðlega
2.000 m2 vel búið hraðfrysti-
hús með öllum helstu tækjum
til bolfiskvinnslu og tilbúið
til vinnslu, ásamt mötuneyti
og skrifstofum í ágætu standi.
Einnig er þar liðlega 730 m2
fiskimjölsverksmiðja en án
vinnsluleyfis.
Að Strandgötu 25 áTálkna-
firði er um að ræða frystihús á
þremur hæðum, um 590 m2
að grunntleti, lítt búið tækjum,
og liðlega 4.200 rúmmetra
frystiklefa sem tekur um þús-
und tonn, en hann má heita
eini alvöru frystiklefinn á
svæðinu. Engin starfsemi er í
þessum húsum á Bíldudal og
Tálknafirði um þessar mundir.
Að sögn Bærings Sæm-
undssonar hjá FBA er mats-
verð eignanna á Bíldudal um
65 milljónir en á Tálknafirði
um 35 milljónir. I samtali við
blaðið sagði hann að ýmsir
hefðu sýnt eignum þessum
áhuga. Þess má m.a. geta, að
beituinnflytjendur skortir
birgðastöð á Vestfjörðum og
virðist sá möguleiki raunhæf-
ur að frystiklefinn á Tálkna-
firði yrði notaður í því skyni
en síðan yrði beitan flutt í
minni skömmtum til kaup-
enda á svæðinu. Samkvæmt
heimildum blaðsins munu
Vestfirðingar munu nota um
90% af þeirri beitu sem flutt
er til landsins.
sigur
- en fann alltaHíhnst inni að ég væri
að gera rétt. Sjá viðtal við
Kolbrúnu Sverrisdóttur í miðopnu
- sjá spjall við Finnboga Hermannsson á
Svæðisútvarpi Vestfjarða, sem fagnaði
10 ára afmæli sínu á föstudag. Sjá bls. 4
Bílagarður ehf.
Flytur aftur
á Grænagarð
Bílasalan Bílagarður ehf. á
Isafirði, sem verið hefur til
húsa í Edinborgarhúsinu frá
því að húsnæði fyrirtækisins
við Grænagarð brann í vetur,
er í þann veginn að flytja
„heim aftur“, eins og Sævar
Hjörvarsson framkvæmda-
stjóri komst að orði.
„Við erum að innrétta þar
skrifstofu og reiknum með að
flytja eftir mánaðamótin. Það
stóð alltaf til að reyna að kom-
ast aftur heim“, sagði Sævar.
fsafjörður
Do-Re-Mi á
leið vestur?
Eigendur Do-Re-Mi-versl-
anakeðjunnar hafa hug á því
að koma á fót verslun á Isa-
firði. Do-Re-Mi-búðirnar
seljabarna- og unglingafatnað
og eru tíu talsins víða um land,
m.a. á Akureyri, Eskifirði,
Selfossi og í Vestmannaeyj-
um, auk höfuðborgarsvæðis-
ins.
Einkum hafa eigendurnir
augastað á húsnæði því að
Hafnarstræti 9 á Isafirði þar
sem Sportvöruverslunin Þjót-
ur var til skamms tíma, en
það er í eigu ísafjarðarbæjar.
Þau mál eru þó ekki frágeng-
in og ekki Ijóst hvort samn-
ingar takast um það húsnæði.
HAMRABORG
Sími: 456 3166
AO LIFA FYOIR
FRAMTÍÐINA
BOA FORTÍÐINA
ÞITT ER VALIO!
STARGATF-
TEVINTÝWO
HELDUR
ÁFRAM!
RETTUETIO
KOSTAR SITT!
A CIVIL ACTION