Bæjarins besta - 27.10.1999, Blaðsíða 5
Vegagerð
„Sérstakt hvað vinnuandinn lijá þeim var góður.“ Þórhallur ásamt nemendunum á nám-
skeiðinu.
Leiklistarnámskeið í Edinborgarhúsinu á ísafirði
„Mjög góður og
áhugasamur hópur44
- segir Þórhallur Gunnarsson leikari sem er jafnframt
stórhrifinn af Edinborgarhúsinu
I gærkvöldi lauk stuttu en
snörpu leiklistarnámskeiði
sem haldið var í Edinborgar-
húsinu á ísafirði á vegum Litla
leikklúbbsins og Listaskóla
Rögnvaldar Olafssonar.
Kennari var Þórhallur Gunn-
arsson leikari, sem landsmenn
þekkja best úr sjónvarpsþátt-
unum Titringi sem hann ann-
aðist ásamt Súsönnu Svavars-
dóttur. Námskeiðið var tvö
kvöld í viku í þrjár vikur og
skaust Þórhallur vikulega
vestur á milli sýninga í Borg-
arleikhúsinu þar sem hann
leikur nú í tveimur uppfærsl-
um.
Þátttakendur á námskeiðinu
voru ungir að árum en samt
langflestir með leikreynslu af
einhverju tagi, svo sem í Morr-
anum, Oliver! eða sýningum
í grunnskóla og framhalds-
skóla eða með námskeið að
baki, og einhverjir jafnvel með
alla þá reynslu. Að sögn Þór-
halls var markmiðið að vinna
við leiktæknilega hluti eins
og framsögn og stöðu á leik-
sviði, bæði lil að viðhalda og
bæta við kunnáttu þeirra sem
hafa nokkra reynslu og koma
hinum óreyndari á meiri skrið.
„Þetta var mjög góður og
áhugasamur hópur ungmenna
sem ætla sér að fást við leiklist
í einhverri mynd", sagði Þór-
hallur í samtali við blaðið.
Asamt hinum tæknilegu
hlutum æfðu nemendurnir
upplestur ljóða og fluttu ör-
leikrit eftir Þorvald Þorsteins-
son. I gærkvöldi var síðan
hópi fólks boðið að koma og
fylgjast með síðustu æfing-
unni til að sjá hvar mannskap-
urinn stendur.
Þetta var óvenju stuttur tími
fyrir námskeið, þannig að
vinnubrögðin þurftu að vera
afar markviss. „En þau búa
yfirákveðinni reynslu og hafa
ákveðinn grunn þannig að í
þessu tilviki þurfti ekki að
byrja á því að „opna“ krakk-
ana og fá þá til að tjá sig. Þau
eru komin yfir það og hafa
mikið öryggi og eru opin og
skemmtileg. Það var lfka sér-
stakt hvað vinnuandinn hjá
þeim var góður. Þau komu að
hluta til úr ólíkum áttum en
þegar þau komu saman voru
þau strax orðin ein heild þar
sem hver studdi annan. Það er
mikilvægt og mér þótti gaman
að finna hvað þau sýndu hvert
öðru mikla virðingu“, sagði
Þórhallur.
„Þegar tíminn er stuttur nýt-
ist hann oft betur. Allir vita að
þetta er afmarkaður tfmi og
hann verður að nota vel.
Krakkarnir fengu heimaverk-
efni sem þau þurftu að skila
af sér og þannig var ennþá
meiri pressa á þeim. Ég held
að það sé oft betra að vinna
undir pressu heldur en að ýta
hlutunum á undan sér. Hér
þurfti að koma fyrir í einum
pakka öllu sem þurfti að skila
og ég held að það sitji betur
eftir", sagði hann. „Ég vona
að þau fái fljótlega að spreyta
sig í sýningum."
Þórhallur er stórhrifínn af
Edinborgarhúsinu. „Ég hef
verið að skoða teikningar af
því og framtíðarhugmyndir og
ég er viss um að þetta getur
orðið alveg stórglæsilegt leik-
hús og menningarhús. Ég
hygg að flestar byggðir, hvort
sem það er á höfuðborgar-
svæðinu eða annars staðar,
myndu öfunda ísfirðinga af
þessu húsi þegar það kemst í
gagnið til fulls. Það skiptir
líka miklu að þetta skuli vera
hús sem á alla þessa sögu en
ekki bara einhver steypu-
klumpur sem er skellt niður
og svo farið að leika í honum.
í Edinborgarhúsinu hefur ver-
ið unnið mikið sjálfboðastarf
og það gefur því einnig gildi.
Á hinn bóginn virðist mér að
þau sem að þessu standa
mættu alveg fá meiri stuðning
og stundum meiri athygli.
Þetta er rétt eins og með
íþróttaliðin. Þau þurfa sinn
stuðning og sína áhorfendur.
Þannig verður líka samkennd-
in í bænum meiri“, sagði hann.
„Maður finnur að ungt fólk
úti á landi horfir á sjónvarps-
fréttir þar sem alið er á þeirri
tilfinningu að það sé alltaf svo
óskaplega mikið um að vera í
Reykjavík. En það er bara
ekkert meira. Þar eru oft m i n n i
möguleikar á félagsstarfi en
úti á landi. Þú gætir spurt mig
hvað ég hafí farið oft í bíó
síðustu mánuðina, eða á
kaffihúsin í Reykjavík. Það er
búin til dálítil goðsögn hvað
það eigi allt að vera gaman
fyrir sunnan, því að „allt er
þar“. En það erbara ekki þann-
ig. Mér finnst þetta dálítið
dapurlegt, sérstaklega fyrir
ungt fólk úti á landi, því að
það verður kannski til þess að
það kunni síður að meta sína
heimabyggð og það sem hún
hefur að bjóða."
Þórhallur Gunnarsson leik-
urum þessarmundir ítveimur
sýningumíBorgarleikhúsinu,
Vorið vaknar og Pétri Pan.
Jafnframt er hann að æfa í
Vetrarævintýri eftir Shake-
speare og eftir það taka við
æfíngar í Djöflum, leikgerð
eftir skáldsögu Dostojefskís
sem komið hefur út á íslensku
undir nafninu Hinir óðu.
Fyrsta árið eftir útskrift
starfaði Þórhallur hjá Leik-
félagi Akureyrar, stofnaði síð-
an Hafnarfjarðarleikhúsið
ásamt fleirum en var upp úr
því fastráðinn hjá Borgarleik-
húsinu. Titringsþættirnir með
Súsönnu eru að baki en fram-
undan hjá Þórhalli er nýr þátt-
ur á nýrri stöð, Skjá einum,
og þá ekki með Súsönnu held-
ur annarri kjarnakonu, Völu
Matt. Því miður er Skjár einn
bundinn við suðvesturhornið.
ISAFJARÐARBÆR
STAÐARVERKSTJORI SUÐUREYRI
Bæjarstjórinn íísafjarðarbæ óskar eftir
að ráða staðarverkstjóra á Suðureyri
frá og með 1. desember nk. að telja.
Meginviðfangsefni staðarverkstjóra
eru umsjón með verklegum fram-
kvæmdum og daglegur rekstur
áhaldahúss staðarins og störf því
tengd. Einnig annast staðarverkstjór-
inn vigtun fyrir hafnarsjóð, umferðar-
stjórn um höfnina ásamt móttöku báta
og skipa.
Skriflegum umsóknum skal skila á
bæjarskrifstofu Isafjarðarbæjar fyrir
15. nóvember nk.
Nánari upplýsingar veitir bæjarverk-
fræðingur eða bæjarverkstjóri í síma
456 3722 og 456 3443.
Bœjarverkfrœðingui:
Bæjarverkstjóri.
Vinnuvélanámskeið!
Vantar þig réttindi á vinnuvélar? Vantar
þig aukna atvinnumöguleika? Viltu vinnu-
vélanámskeið sem gefur rétt til prófs á allar
gerðir og allar stærðir vinnuvéla?
Námskeið fyrirstjórnendurvinnuvéla (kvöld
og helgar) hefst væntanlega á ísafirði 12.
nóvember.
Tímatafla: 12. nóv. kl. 14:30-21:00,
13. nóv. kl. 09:00-17:00, 14. nóv. kl.
09:00-17:00, 15. nóv. 18:00-23:00,
16. nóv. kl. 18:00-23:00, 17. nóv. kl.
18:00-23:00, 18. nóv. kl. 18:00-23:00,
19. nóv. kl. 14:30-21:00, 20. nóv. kl.
09:00-17:00, 21. nóv. kl. 09:00-17:00.
Upplýsingargefur Svavar Svavarsson, lög-
giltur öku- og vinnuvélakennari, alla virka
daga kl. 09:00-18:00 og 23:00-24:00 og
frá kl. 17:00-23:00 um helgar í síma 898
3903.
Nýi ökuskólirm
í samvinnu við Farskóla Vestfjarða
Sýslumaðurinn
í Bolungarvík
Skrifstofumaður
Laus ertil umsóknar hálfstaða skrifstofu-
manns við embættið. Vinnutími er eftir há-
degi og þyrfti umsækjandi að geta hafið
störfsem fyrst. Reynsla af skrifstofustörfum
og einhver tölvukunnátta æskileg.
Skriflegum umsóknum skalskilað til undir-
ritaðs, sem jafnframt veitir nánari upplýs-
ingar, eigi síðar en 12. nóvember nk.
Öllum umsóknum verður svarað.
Bolungarvík, 25. október 1999,
Sýslumaðurinn í Bolungarvík,
Jónas Guðmundsson.
Myllan með
lægsta tilboð
Myllan ehf. á Egilsstöðum
átti lægsta tilboð í uppbygg-
ingu vegar milli Laufskálagils
og Eyrarhlíðar í ísafírði í Isa-
fjarðardjúpi en tilboð í verkið
voru opnuð fyrir stuttu.
Átta fyrirtæki buðu í verkið,
en tilboð Myllunar ehf. nam
tæplega 138 milljónum króna.
KostnaðaráætlunVegagerðar-
innar hljóðaði upp á tæplega
166 milljónir króna. Helm-
ingur tilboðanna var undir
kostnaðaráætlun.
Rækjuveiðar
650 tonna
kvóti til
bráðabirgða
Hafrannsóknastofnun hefur
lagt til að ísafjarðardjúp verði
opnað fyrir rækjuveiðum að
Jökulfjörðum undanskildum,
á 650 tonna bráðabirgðakvóta,
sem verði endurskoðaður síð-
ar.
I rannsóknum stofnunarinn-
ar hefur komið fram að yfirleitt
sé rækjan minni á helstu veiði-
svæðum nema í Isafjarðar-
djúpi. Því hefur Hafrannsókn-
astofnun ákveðið að veiðar á
innfjarðarrækju verði ekki
leyfðar á Húnaflóa og Skjálf-
anda í vetur og í Skagafirði að
svo stöddu.
Innfjarðarrækjukvóti í Öx-
arfirði verður minnkaður um
helming úr 1.000 tonnum í
500 tonn.
Jarðgðngin
r
Ok utan í
gangavegg
Umferðarslys varð í Breiða-
dalslegg jarðganganna um kl.
22:30 á mánudagskvöld þegar
bifreið, sem var á leið til Flat-
eyrar, var ekið utan í ganga-
vegg. Það var ökumaður bif-
reiðar sem kom þar að sem
tilkynnti um slysið.
Ökumaðurinn, sem ók utan
í gangavegginn, var fluttur á
Fjórðungssjúkrahúsið á Isa-
firði. Meiðsl hans munu ekki
vera talin alvarleg. Maðurinn
er grunaður um ölvun við
akstur. Flytja þurfti bifreiðina
með kranabíl af vettvangi.
Vestfirðir
Umferðar-
óhöpp í
hálkunni
Tvö umferðaróhöpp urðu í
gær sem rekja má til hálku.
Á tíunda tímanum fór bif-
reið út af veginum við Fremri-
Ós við Bolungarvík og endaði
inn á túni og rétt fyrir kl. 11
lenti bifreið framan á annarri
bifreið við Botn í Súganda-
firði. Engin slys urðu á fólki.
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1999 5