Víðförli - 01.11.2005, Blaðsíða 1

Víðförli - 01.11.2005, Blaðsíða 1
VÍÐFÖRLI FRÉTTABRÉF BISKUPSSTOFU - www.kirkjan.is 24. ÁRG. 3. TBL. NÓV. 2005 Biskupsvígsla í Kenýja Meðal efnis: Helgihald heimilanna á aðventu... 2 Frá Hjálparstarfinu............... 3 Samkirkjuleg bænavika............. 3 Yfir 320 manns á landsmóti........ 5 Vatn fyrir alla................... 6 Verndum bernskuna................. 7 Biskup vísiterar í Húnaþingi...... 9 Biskupsvígsla í Kenýja............10 Frá fundi höfuðbiskupa Porvoo-kirkna..................11 Stjórnarþing Lútherska heimssambandsins...............12 Af kirkjuþingi 2005...............15 Norrænt æskulýðsmót...............17 Útgefandi: Skálholtsútgáfan, útgáfufélag Þjóðkirkjunnar, Laugavegi 31, 101 Reykjavík Ritstjórn: Steinunn A. Björnsdóttir. Netfang: frettir@ kirkjan.is Prentvinnsla: Gutenberg hf. Kristniboð og hjálparstarf Nýlega knúðu fermingarbörn dyra hjá okkur Kristínu í Biskupsgarði með söfn- unarbauk Hjálparstarfs kirkjunnar. Þau voru glaðleg í svip og fasi, fannst spennandi að fá að taka þátt í þessu verkefni, og voru ánægð með góðar viðtökur hvarvetna. Mikið var undursamlegt að heyra það. Þessi þáttur starfsins, fermingarstarfa og safnaðarstarfsins hefur virkilega fest sig í sessi og það er dýrmætt. Einn og einn talar samt af fyrirlitningu um betl. Nei, þetta er ekki betl. Þetta er tilboð um að leggja sinn skerf að mörkum, tilboð um að koma hjálp í réttar hendur. Og enn og aftur erum við minnt á undraverðan árangur og ótrúlega ávexti af kristniboði og hjálparstarfi. í september s.l. tók herra Sigurður Sigurðarson, vígslubiskup, þátt í biskupsvígslu í Pókót í Kenýu. Það var fyrsta biskupsvígsla á landssvæði og með þjóð sem fyrst heyrði af fagnaðarerindi Jesú Krists þegar íslenskir kristni- boðar hófu þar starf. Nú hlaut þar biskupsvígslu barn íslenska kristniboðsins í Pókot, William Lopeta, sem hér dvaldi fyrir nokkrum árum á vegum Hjálpar- starfs kirkjunnar og kristniboðsins og kynnti fyrir fermingarbörnum starfið á sínum heimaslóðum. Kirkjan vex á kristniboðsakrinum, og fjöldinn þrengir sér þar að til að læra um frelsarann Jesú Krist. Starf kristniboðsins og Hjálpar- starfs kirkjunnar að þróunarhjálp og fræðslu þar hefur skilað undraverðum árangri. Gleymum því ekki að fyrirbænir, fórnarlund og kærleikur íslensks almennings ber enn ríkulegan ávöxt til blessunar þúsundum í fjarlægum heimshluta. Hjartans þökk öllum þeim sem þar leggja hönd og huga að verki. Allar sóknir Þjóðkirkjunnar ættu að leggja sitt að mörkum til að styðja það kristniboð og hjálparstarf. Það ætti að verða okkur öllum hjartans mál! Karl Sigurbjörnsson www.kirkjan.is 11/2005

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.