Víðförli - 01.11.2005, Blaðsíða 12

Víðförli - 01.11.2005, Blaðsíða 12
12 VÍÐFÖRLI 24. ÁRG. 3. TBL. Þjónusta sáttargjörðar í hrjáðu landi „Kölluð til þjónustu sáttargjörðarinnar" var yfirskrift stjórn- arþings Lútherska heimssambandsins (LH) sem haldið var í Betlehem í septemberbyrjun. Hátt á annað hundrað manns sækja stjórnarþingið ár hvert. Fundarmenn eru þau sem eiga sæti í stjórn sambandsins ásamt fulltrúum kirkna og stofnana sem aðild eiga að LH, starfsfólk LH og ráð- gjafar. Fyrir hönd Þjóðkirkjunnar á Kristín Þórunn Tómas- dóttir sæti í stjórn LH og framkvæmdastjórn. Tveir ungir Borgfirðingar, Guðmundur Björn Þorbjörns- son og Geir Konráð Theodórsson voru ráðstefnuþjónar á þinginu og sóttu þing ungs fólks úr LH sem haldið var í Jerúsalem áður en stjórnarþingið hófst. Samstaða með Palestínumönnum Staðsetningin setti svip á þingið og fengu þinggestir áþreifanlega að reyna hversu erfitt það er að ferðast í hersetnu landi þar sem múr aðskilnaðar hefur verið reistur í gegnum bæi og þorp. ( ályktun frá þinginu segir meðal annars: „Við endurtökum kröfu okkar um endi hernáms [..] Við lítum á brotthvarfið frá Gaza sem fyrsta jákvæða skrefið í því að fylgja Vegvísi til friðar." Bent var á skelfilegar afleiðingar múrsins fyrir daglegt líf í Palestínu „sóknarbörn geta ekki sótt messu, bændur komast ekki á akra, skóla- börn eru hindruð í að komast í skólana og sjúklingar, læknar og heilsugæslustarfsfólk kemst ekki á sjúkrahús eða á heilsugæslustöðvar. [..] Reynsla okkar hér knýr okkur til að hvetja allar aðildarkirkjur LH til að hvetja til friðar- og pílagrimsferða til kirknanna á þessu svæði til að fólk fái að upplifa lífskjör á palestínsku landssvæði og til að styrkja það í trúnni." Samkirkjuleg hefð og hjálparstarf styrkleiki Lútherska heimssambandið (LH) hefur unnið að stefnu- mótun síðastliðna átján mánuði og voru niðurstöður hennar kynntar. Liður í stefnumótuninni var greining á styrkleikum, veikleikum, ógnunum og tækifærum, svokölluð SVÓT greining. Meðal þess sem þar kom fram var að styrkleikar sambandsins væru meðal annars trú og hefð sem er mjög rík, sterk siðfræði, samkirkjuleg hefð og guðfræði, þjónusta og hjálparstarf. LH sér tækifæri á sviði samkirkjumála. Þar eru nýjir möguleikar, nýjir samstarfsaðilar, þverkirkjulegt starf fer vaxandi og fleira. Hins vegar skortir á samhæfða áætlana- gerð, forgangsröðun og fjáröflun og eru það veikleikar, einnig hve hægt gengur að nýta nýja tækni sem getur eflt þátttöku. í framhaldi af þessu er lagt til að stofnaður verði starfs- hópur sem í eiga sæti formenn starfsnefnda LH og verður hlutverk hans að skýra línur um samhæfingu starfs sam- bandsins. Hann á einnig að vera ráðgefandi um hvernig hægt sé að dreifa verkefnum og verksviðum sambandsins Kristín Þórunn Tómasdóttir svarar fyrirspurnum á þingfundi hjá LH og þar með kostnaði. Meðal þess sem taka þarf afstöðu til er staðsetning aðalstöðva LH í Genf, endurskoðun á kostnaði vegna þýðinga á opinber mál LH (enska, þýska og spænska), fækkun stjórnarþinga sem verði haldin á 15 -18 mánaða fresti í stað 12, möguleg samvinna aðildarkirkna og guðfræðistofnana er þeim tengjast við LH í tengslum við samkirkjulega samræðu og rannsóknarvinnu á sviði guðfræði. Samtímis þessu eru samkirkjuleg samskipti Lútherska heimssambandsins til skoðunar. Lögð er áhersla á að slík samvinna sé virk og að unnið sé markvisst til að forðast tvíverknað. Hjálparstofnanir sem tengjast LH hafa lagt fram tillögur um að stofna skrifstofu sem samhæfi þróunarstarf þeirra og fleiri hjálparstofnana, meðal annars hjálparstarfs Alkirkjuráðsins. Slík skrifstofa yrði þó aðeins ráðgefandi. Fjármunir til samkirkjulegs starfs hafa minnkað á sama tíma og ýmis tækifæri í samstarfi og tækninýtingu eru vannýtt. Markmið endurskipulagningar og stefnumótunar er að starfið verði markvissara og fjármunir betur nýttir. Þjónustan birtist á öflugan hátt Kristín Þórunn Tómasdóttir er fulltrúi Þjóðkirkjunnar í stjórn Lútherska heimssambandsins og situr einnig í fram- kvæmdaráði þess og sinnir formennsku nefndar um sam- skipti og þjónustu. „Það er afar merkilegt að koma hingað og sjá þær aðstæður sem palestínska þjóðin býr við, sérstaklega hér í Betlehem þar sem við höfum dvalið. Sem stjórnarmaður í LH finnst mér mjög gott og hvetjandi að sjá hvernig þjón-

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1510

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.