Bæjarins besta - 15.12.1999, Blaðsíða 5
Bæjarins besta
r
Rúnar Oli Karlsson, atvinnu- og staðardagskrárfulltrúi skrifar
r
Natturuvernd í I saijarðarbæ
I Bæjarins besta 17. nóv. sl.
var kynnt verkefnið Staðar-
dagskrá 21, sem Isafjarðarbær
er að vinna að ásamt þrjátíu
sveitarfélögum á landinu.
Náttúru vernd er eitt af þeim
málum sem tekin hafa verið
fyrir í þessu verkefni. Hér
verða í stuttu máli kynntar
helstu niðurstöður um stöðu
náttúruverndar í sveitarfélag-
inu.
Hvað er
náttúruvernd?
Isafjarðarbær er víðlent
sveitarfélag með fjölbreyttri
náttúru og á svæðinu eru mörg
náttúrufyrirbæri sem verða að
teljast merkileg. Náttúru vernd
er að standa vörð um einhvers
konar heild sem við köllum
náttúru. Það er reyndar óljóst
hvað átt er við með „náttúru"
og oft er spurt hvort óspillt
náttúra sé til. Venjulegasta
nálgunin á náttúruvernd er að
viðhalda einhverju seni er
óbreytt. Önnur nálgun á nátt-
úruvernd er að endurheimta
fyrri landgæði. Þar er land-
græðsla oftast aðalatriðið, en
núna t.d. endurheimt votlend-
is. Þriðja nálgunin er að bæta
landið og þar fara skógræktar-
menn fremstir í flokki.
Isafjarðarbær er strjálbýlt
svæði og við slíkar aðstæður
er náttúruvernd yfirleitt ekki
vandamál. Mörg svæði eru
meira og minna sjálffriðuð og
landrými svo mikið að litlar
framkvæmdir breyta litlu sem
engu um heildina.
Þetta ástand hefur þó
ákveðnar hættur í för með sér.
Menn verða andvaralausir og
einstaklingar geta farið sínu
fram eins og þeir vilja. Fram-
tíðarsýn og stefnumörkun
vantar al veg. Þetta ástand býð-
ur upp á slys í náttúruverndar-
málum.
Náttúruverndarráð gefur út
náttúruminjaskrá og eru all-
mörg svæði innan Isafjarðar-
bæjar í þeirri skrá og falla
innan nokkurra flokka, sem
hér skal vikið að.
Náttúruminjar
Náttúruminjar eru einungis
skráð fyrirbæri, eins konar
ábendingarNáttúruverndar og
hafa ekkert lagalegt verndar-
gildi. I Isafjarðarbæ eru níu
staðir eða svæði á náttúru-
minjaskrá: Skaginn milliArn-
arfjarðar og Dýrafjarðar; Ket-
ilseyri í Dýrafirði; Lambadals-
fjall og Botn í Dýrafirði;
Holtsengi og Vöð í Önundar-
firði; Botn íSúgandafirði; fjör-
ur í botni Skutulsfjarðar; Arn-
arnes; Kaldalón; og Snæ-
fjallahreppurhinn forni (Nátt-
úruminjaskrá, 7. útgáfa 1996).
Náttúruvætti
Náttúruvætti eru skilgreind
sem einstæð fyrirbæri og háð
verndun. Dynjandi íArnarfirði
var friðlýstur sem náttúruvætti
árið 1981 og er það eina á
Vestfjörðum. A landinu öllu
eru náttúruvætti innan við tutt-
ugu.
Friðlönd
Friðlönd eru landsvæði,
„sem mikilvægt er að varð-
Rúnar Óli Karlsson.
veita vegna landslags, gróður-
fars eða dýralífs" (Náttúru-
minjaskrá, 1996, bls. 6).
Markmið friðlýsinga eru mis-
munandi, sem og reglur sem
um svæðin gilda. Hornstrand-
ir og nágrenni urðu friðland
1975 og var friðlýsingin end-
urskoðuð 1985. Stærð svæð-
isins er um 58 þúsund hektar-
ar.
Núverandi staða
Hornstrandafriðland hefur
mikla sérstöðu í Isafjarðarbæ,
þar sem það er stjórnunarlega
aðskilið frá öðrum svæðum.
Friðlandið er í umsjá Náttúru-
verndar ríkisins og Horn-
strandanefnd er til ráðgjafar,
en þar á enginn heimamaður
sæti. Miklar umræður hafa
verið um uppbyggingu ferða-
þjónustu og hvað teljist eðli-
legt viðhald húsa og hvort tak-
marka eigi byggingu sumar-
húsaviðákveðinnstíl. íheild-
ina séð er mikilvægt að ísa-
fjarðarbær taki yfir umsjón
svæðisins, t.d. í samvinnu við
Náttúrustofu Vestfjarða. Það
er mikilvægt lil að náttúru-
vernd sé í farsælum jarðvegi,
að öflun þekkingar sé í nánu
sambandi við heimaaðila.
ísafjarðarbær stóð fyrir
málþingi um málefni Horn-
stranda síðastliðið vor. Út-
drættir úr öllum erindum
liggja fyrir (sjá heimasíðu
Náttúrustofu Vestfjarða,
www.snerpa.is/nv) og verið er
að vinna að útgáfu erindanna
á Náttúrustofu Vestfjarða.
Sum svæði á náttúruminja-
skrá eru gríðarstór, eins og
Snæfjallahreppur og skaginn
milli Arnarfjarðar og Dýra-
fjarðar. Að setja stór svæði á
náttúruminjaskrá með skýr-
ingunni „fjölbreytt landslag"
hlýtur að teljast vafasamt í
rneira lagi.
Undirstaða raunhæfra
markmiða og áætlana í nátt-
úruverndarmálum byggist á
góðri þekkingu. Núverandi
staða þekkingar á náttúrufari
í Isafjarðarbæ er brotakennd.
Náttúrustofa Vestfjarða stund-
ar rannsóknir á náttúru Vest-
fjarða í samvinnu við ýmsa
aðila eftir því sem aðstæður
leyfa hverju sinni. í Isafjarð-
arbæ ber hæst rannsóknir á
náttúru Hornstranda, en líka
hefur verið unnið að verkefn-
um varðandi frummat á um-
hverfisáhrifum.
Stefnumörkun
skortir
Þau vandamál sem við
stöndum frammi fyrir í nátt-
úruvernd eru vandamál vegna
þess að stefnumörkun skortir
til að taka á málum sem upp
geta kornið. Má þar nefna
vegagerð, skógrækt, land-
græðslu, námuvinnslu, virkj-
anir, byggingu sumarbústaða,
landnýtingu og hlunnindi og
ferðamennsku. Það stingur
kannski í stúf að nefna skóg-
rækt og landgræðslu sem um-
hverfisvandamál. Hvort
tveggja getur samt orðið
vandamál ef unnið er skipu-
lagslaust. I þessu vantar
stefnumörkun eins og svo
rnörgu öðru. Með gerð Stað-
ardagskrá fyrir sveitarfélagið
er stigið skref í þá átt.
- Rúnar Óli Karlsson,
atvinnu- og staðardagskrár-
fulltrúi (með aðstoð starfs-
hóps Staðardagskrár 21 og
sérstaklega Þorleifs
Eiríkssonar, forstöðumanns
Náttúrustofu Vestfjarða).
Nýttlén
tekið í
notkun
BB hefurtekið í notkun nýtt
lén á Internetinu, bb.is. Með
tilkomu þess breytist netfang
ritstjórnar úr bb@snerpa.is í
bb@bb.is.
Netfang prentsmiðjunnar
verður hprent@bb.is í stað
hprent@snerpa.is. Stafræn út-
gáfa blaðsins verður á vefslóð-
inni http://www.bb.is/
Stafræn útgáfa blaðsins hef-
ur legið niðri frá því í maí á
þessu ári vegna tæknilegra or-
saka en verður tekin upp að
nýju um næstu áramót. Unnið
er að endurhönnun heimasíð-
unnar sem verður með nýju
og glæsilegu sniði og er það
verk í höndumVeigars Jökuls-
sonar kerfisstjóra hjá Snerpu.
Vestfirðir
Snerpa
bíður
átekta
„Við munum bíða eftir nið-
urstöðum Samkeppnisstofn-
unar í þessum málum og að
minnsta kosti á meðan þær
liggja ekki fyrir sjáum við ekki
ástæðu til að bregðast neitt
sérstaklega við þessu“, sagði
Jón Arnar Gestsson hjá inter-
netþjónustunni Snerpu á Isa-
firði í samtali við blaðið.
Eins og fram hefur komið
býður Islandssími í félagi við
íslandsbanka ókeypis netað-
gang og í framhaldi af því
ákvað Landssímann í félagi
við Landsbanka og Búnaðar-
banka að bjóða einnig ókeypis
aðgang að netinu.
Kærumál til Samkeppnis-
stofnunarútaf þessum tilboð-
um ganga á víxl. Islandssími
hefur kært Landssímann fyrir
að misnota markaðsráðandi
aðstöðu sína og samtök endur-
söluaðila netþjónustu hafa
vísað máli Íslandssíma til
stofnunarinnar.
Fæðingar á FSÍ
Yfir sextíu
börn frá
áramótum
Liðlega sextíu börn hafa lit-
ið dagsins ljós á fæðingar-
deildinni á ísafirði það sem af
er þessu ári. Ekki liggur enn
fyrirfrekari tölfræði varðandi
borgarana ungu, enda er slíkt
tekið saman um áramót.
Hitt er þó víst, að tölur um
margvíslegt þjóðerni barn-
anna verða nokkuð athyglis-
verðar þegar þær liggja fyrir
og ólíkar því sem tíðkaðist
hér fyrr á árum.
Tilkynning um að stofnanir í Stjórnsýsluhúsinu
aðrar en Landssíminn, verða lokaðar
á Aðfangadag, 24. desember
og Gamlársdag, 31. desember
Breyttur opnunartími
30. desember hjá eftirtöldum:
íslandsbanki hf. Opið kl. 09:15 - 18:00
Sýsluskrifstofan Opið kl. 09:00 - 17:00
Bæjarskrifstofurnar Opið kl. 09:00 - 17:00
Mánudaginn 3. janúiar 2000 verður Islands-
banki hf lokaður vegna áramótauppgjörs.
MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 1999
5