Bæjarins besta - 26.04.2006, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 15
Ólína Þorvarðardóttir
skólameistari Menntaskólans
á Ísafirði heldur nemendum
skólans kveðjuhóf á sal á
morgun. Ólína lætur af starfi
skólameistara 31. júlí nk. og
af því tilefni efnir hún til dag-
skrár með nemendum daginn
fyrir dimmission. Ólína mun
flytja nemendum kveðjuorð
og auk þess munu nemendur
flytja tónlist og sýna dans.
Veitingar verða í umsjón 3.
árs nema en í boði verða kök-
ur, kaffi og gos. Óski nem-
endur eftir því að koma fleiri
atriðum á dagskrána er það
velkomið og er þeim sem það
vilja bent á að hafa samband
við skólameistara eða aðstoð-
arskólameistara fyrir morgun-
daginn. Frá þessu er greint á
vef MÍ. – gudrun@bb.is
Ólína heldur
nemendum
kveðjuhóf
Leikfélag Hólmavíkur
frumsýndi á skírdag leikritið
Fiskar á þurru landi eftir Árna
Ibsen. Sýningin hefur hlotið
prýðilegar viðtökur en að því
er kemur fram á fréttavefnum
strandir.is hefði aðsókn þó
mátt vera betri. Nú er leikfé-
lagið farið á flakk og til stend-
ur að sýna í Víkurbæ í Bol-
ungarvík 29. apríl nk. og í
félagsheimilinu á Þingeyri 30.
apríl. Báðar sýningarnar hefj-
ast kl. 20 og miða má panta í
síma 865-3838.
Fjórir leikendur taka þátt í
sýningunni, tveir karlar og
tvær konur og leikstjóri verks-
ins er Kolbrún Erna Péturs-
dóttir. Á leiklistarvefnum leik-
list.is segir um söguþráðinn:
„Þegar „uppi“ nokkur þarf út
á land með kúgaða kærustu
sína kynnist hann annarri þjóð
en hann hélt að byggi í land-
inu.“ Þetta er gamanleikur og
gerist í nútímanum.
Fiskar á þurru landi í
Bolungarvík og á Þingeyri
Ísafjarðarbær tekur ekki
þátt í degi umhverfisins í ár
Ísafjarðarbær mun ekki taka
þátt í degi umhverfisins sem
er nk. þriðjudag og er í ár
tileinkaður endurnýtingu.
Umhverfisráðuneytið hvatti
sveitarfélög til þess að minn-
ast dagsins t.d. með því að
fræða íbúa um möguleika til
endurvinnslu og framtíðarsýn
í úrgangsmálum eða að halda
upp á daginn með uppákom-
um sem hvetja til þess að íbúar
hugi að umhverfi sínu al-
mennt, en að sögn Rúnars Óla
Karlssonar umhverfismála-
fulltrúa Ísafjarðarbæjar var
hvorki mannskapur né tími til
að skipuleggja atburði.
Á degi umhverfisins mun
umhverfisráðherra að venju
veita Kuðunginn, viðurkenn-
ingu ráðuneytisins, til fyrir-
tækis sem skarað hefur fram
úr á sviði umhverfismála á sl.
ári. Dagur umhverfisins er
fæðingardagur Sveins Páls-
sonar fyrsta íslenska náttúru-
fræðingsins og þess manns
sem einna fyrstur hvatti til að-
gerða gegn skógareyðingu á
Íslandi og orðaði þá hugsun
sem nú kallast sjálfbær þróun.
– gudrun@bb.is
Ferðaþjónustan Reykjanesi
Sumarið lítur vel út
Útlitið fyrir sumarið hjá
Ferðaþjónustunni Reykja-
nesi er ágætt að sögn Jóns
Arnars Gestssonar staðar-
haldara. „Þetta lítur bara
ágætlega út, lofar góðu eins
og maður segir. Það eru
komnar töluverðar pantanir
og svo er alltaf þrusutraffík
af fólki sem er ekki með
pantað“, segir Jón. Hann
segir sumarvertíðina standa
frá byrjun júní og fram í
miðjan ágúst en einnig sé
traffík um helgar á veturna,
sem áætlað er að leggja á
Reykjanesi og þverun Mjóa-
fjarðar svarar Jón því til að
umferðin muni aukast og
það hljóti að vera af hinu
góða. „Þá verður styttra að
fara og betra að komast
hingað, við verðum þá ekki
lengur úr alfaraleið“, segir
Jón. Þeim sem áhuga hafa á
að kynna sér aðstæður og
gistimöguleika á Reykjanesi
er bent á heimasíðu ferða-
þjónustunnar www.rnes.is.
– gudrun@bb.is
þá séu árshátíðarferðir o.fl.
Aðspurður um hvað hann
telji að breytist við nýjan veg
Tveir Ísfirðingar og fyrr-
um BÍ-liðar gengu til liðs
við Hött á Egilsstöðum
fyrir skömmu og vegnar
mjög vel. Þeir eru Halldór
Ingi Skarphéðinsson sem
sinn er stöðu markmanns
og Ásgeir Guðmundsson
sem er bakvörður.
„Ég fékk símtal og þá
vantaði Hött heppilegan
markmann og Ásgeir, sem
hafði gengið til liðs við þá
á undan, hafði mælt með
mér. Þetta leggst mjög vel
í okkur en félagið útvegaði
okkur bæði íbúð og vinnu“,
segir Halldór Ingi. Víst er
að ófáir ísfirskir fótbolta-
áhugamenn eigi eftir að
fylgjast vel með gengi pilt-
anna hinu megin á landinu.
– thelma@bb.is
Tveir Ísfirð-
ingar til liðs
við Hött
Ljósmyndarinn Páll Ön-
undarson frá Flateyri hefur
nú opnað sína eigin ljós-
myndasíðu. Páll hefur
löngum verið iðinn við
ljósmyndun á alls kyns við-
burðum hér vestra, en jafn-
vel líka annars staðar, og
hefur hann meðal annars
tekið myndir fyrir bb.is og
Bæjarins besta.
Slóðin á síðuna er
pallio.net. Meðal nýlegra
ljósmyndasyrpa sem má
skoða eru myndir frá Aldrei
fór ég suður og Skíðavik-
unni 2006, auk grímuballs
á Flateyri og margs fleira.
– eirikur@bb.is
Palli opnar
ljósmyndasíðu
17.PM5 5.4.2017, 10:2415