Bæjarins besta - 26.04.2006, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2006 17
rífa ísfirska fótboltann upp.
Ég heyrði á dögunum í manni
fyrir vestan sem vildi sameina
félögin á svæðinu og gera
þetta af krafti. Það verður því
spennandi að sjá hvað gerist.“
Hörkulið og
stolt bæjarins
– Fylgir því ekki mikið stolt
að vera yngsti fótboltaþjálfar-
inn í efstu deild?
„Jú, það er mjög gaman, en
ég á fullt erindi þarna og þetta
er bara viðurkenning fyrir vel
unnin störf. Það var aðeins á
undan áætlun að fara í efstu
deild en ég átti möguleika á
því að þjálfa lið í þriðju og
annarri deild í haust. Auk þess
að taka annan flokk hjá stórum
liðum á höfuðborgarsvæðinu.
En ég var búinn að ýta því
öllu frá mér þegar tækifærið
bauðst hjá Grindavík og það
var ekki auðveld ákvörðun að
ganga frá samningi sem var á
borðinu frá HK en þetta var
bara eitthvað sem mér fannst
ég ekki geta hafnað og sama
hvað gerist þarna mun það
bara þroska mig bæði sem fag-
mann og persónu. Mér fannst
það mjög spennandi. Það er
mikil hefð fyrir fótbolta í
Grindavík, mikið fjármagn og
frábær umgjörð. Það er búið
að vera mjög gaman að starfa
hérna. Og svo er þetta hörkulið
en það vantar aðeins grunninn.
Þetta er hálfatvinnumannalið
og mikið af aðkomumönnum
sem eru fengnir hingað til þess
að spila í bland við heima-
menn. Liðið er stolt bæjarins
ásamt körfuboltaliðinu. Þetta
er það sem bæ eins og Ísafjörð
vantar. Allir krakkarnir eiga
sér fyrirmyndir og maður sér
þau upplifa það sem maður
sjálfur gerði sem krakki þegar
þau koma á æfingar og fylgjast
með leikmönnunum með að-
dáunaraugum.
Ég hef einnig verið að þjálfa
hjá Knattspyrnuakademíu Ís-
lands með Arnóri Guðjohn-
sen, Eyjólfi Sverris og fleiri
köppum og farið með þeim til
Egilsstaða og Húsavíkur og
fleiri staða. Manni finnst
andrúmsloftið á þeim stöðum
vera allt annað en á Ísafirði
þegar ég hef komið þangað
síðustu ár. Húsavík er minni
bær en Ísafjörður og er með
lið sem var að falla úr fyrstu
deild niður í aðra. Þeir eru
með lið nærri eingöngu byggt
af heimamönnum og þó eru
þeir einni deild fyrir ofan
okkur.
Það vantar kraftinn í starfið
fyrir vestan, en til þess þarf
bærinn, fyrirtækin, og fjöl-
miðlar að vinna saman. Fót-
boltinn væri ekki svona stór í
heiminum ef hann fengi ekki
alla þessa umfjöllun. Eins og
AC Milan hefur aldrei farið
neitt á undirbúningstímabilinu
fyrr en undanfarin tvö til þrjú
ár og þá hefur það eingöngu
verið vegna útbreiðslustarfs.
Þeir fara þá til Asíu og Banda-
ríkjanna til að kynna starfið
og selja íþróttina.“
– Hefurðu tíma fyrir önnur
áhugamál?
„Í rauninni er ekki tími fyrir
önnur áhugamál. Þegar maður
á frídag þá fer maður að horfa
á andstæðinga spila eða horfa
á aðra leiki. Ég hreyfi mig
mjög mikið en þá hleyp ég
eða skokka og yfirleitt horfi
ég þá á fótbolta í sjónvarpinu
um leið. Maður hefur séð
krakka sem voru í sama ár-
gangi eða bekkjunum í kring
fara mjög illa vegna ýmissa
ástæðna og er því mjög þakk-
látur að hafa haft eitthvað til
þess að halda manni við efnið.
Það eru um fimm ár síðan ég
hætti að drekka og ég hef reynt
að helga mig þeim gildum sem
ég hef í lífinu.
Það er allt hægt ef viljinn er
fyrir hendi. Ég er ágætt dæmi
um það, ég fæðist í Súðavík
og fer svo til AC Milan í heim-
sókn sem margar milljónir láta
sig dreyma um. Það er enginn
of lítill til þess að láta drauma
sína rætast.“
– Einhver orð að lokum?
„Ég vil hvetja Ísfirðinga og
Bolvíkinga til að sameina
krafta sína sem Vestfirðinga.
Ég vil hvetja BB til þess að
fjalla meira um leikina og bæ-
inn til þess að stuðla að góðu
íþróttalífi og einnig að hvetja
börn og unglinga til að setja
sér markmið og finna leiðir til
að vinna að þeim, þá munu
þau uppskera ríkulega. Svo
vil ég óska Ísfirðingum alls
hins besta á vellinum í sumar
og ekki yrði leiðinlegt að
koma vestur og spila við þá í
bikarnum“, segir Magni Fann-
berg sem á sér stóra drauma.
Magni fór einnig á æfingar með Franco Baresi sem er einn þekktasti
leikmaður í heimi og hefur unnið nánast allt sem hægt er að vinna. Hann er
fyrrverandi fyrirliði ítalska landsliðsins og gömul kempa hjá AC Milan.
Bræðurnir Jón og Magni Fannberg Magnússynir.
17.PM5 5.4.2017, 10:2417