Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2001, Síða 3
Þriðja árið í röð halda samkynhneigðir Hinsegin
daga hátíðlega í Reykjavík. Eftir mikinn og vand-
aðan undirbúning þar sem við höfum lært af
reynslu fyrri ára, fjölmenna allir sem vilja sýna
samstöðu með málstað samkynhneigðra í fjör-
mikla og skrautlega Gay Pride-göngu niður Laugaveginn og á glæsilega
útitónleika á Ingólfstorgi sem vonandi uppfylla þær væntingar sem
vöknuðu á síðasta ári þegar nær tíu þúsund manns fylktu liði á götum
borgarinnar
Alþjóðleg yfirskrift hátíðahaldanna í ár er „Fögnum fjölbreytni".
Samfélag samkynhneigðra er marglitur hópur, rétt eins og litirnir sem
mætast í regnboganum, og um leið minnir yfirskriftin á fjölbreytileika
samfélagsins í heild. Laugardaginn I I. ágúst næstkomandi fögnum við
margbreytileikanum sem mætir okkur, fögnum því að þótt við séum
ólík höfum við bæði vit og vilja til þess að efla sýnileika okkar og stoltar
Fögnum
fjölbneylni!
ingu og sögu, þau eiga fjölskyldur og vini sem
vilja deila gleði og stolti með þeim sem náð hafa
lengra en samkynhneigt fólk flestra annarra ríkja
í mannréttindabaráttu sinni.
Hinsegin dagar í Reykjavi1< eru að verða
hefðbundinn þáttur í borgarlífinu. Samt er hátíðin ný í hvert sinn. I ár
munu allir þeir slást í hópinn sem voru fjarri góðu gamni í fýrra.Vonandi
taka þeir með sér systkini sín og foreldra, afa og ömmun ættingja og vini.
Leit okkar að frelsi, stolti og mannvirðingu er nefnilega ekkert einkamál
samkynhneigðra, hún er mál allrar þjóðarinnar og alls þess heims sem
lætur sig mannlega hamingju varða. Á Gay Pride hátíðinni í ágúst
sameinast allir undir regnbogafánanum sem táknar allt litrófið í marg-
breytilegri menningu samkynhneigðra. Þótt litirnir séu margir mynda
þeir saman einn skínandi regnboga.
tilfinningar. Með hátíðahöldunum minnum við bæði sjálf okkur og aðra Samstarfsnefnd
um
þegna þessa lands á það að lesbíur og hommar á íslandi eiga sér menn-
Hinsegin'claga 2001 í Reykjavik.
mr
■