Bæjarins besta - 27.07.2005, Síða 1
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 250 m/vsk
Miðvikudagur 27. júlí 2005 · 30. tbl. · 22. árg.
Stóra púkamótið í knatt-
spyrnu sem haldið var á Ísa-
firði um síðustu helgi þótti
takast með eindæmum vel og
hefur verið ákveðið að endur-
taka leikinn að ári.
Jóhann Króknes Torfason,
mótsstjórnarmaður, segir
markið sett á tvöfaldan fjölda
þátttakenda að ári en þeir voru
um fimmtíu að þessu sinni.
Eins og nafnið gefur til kynna
var mótið ætlað þeim sem með
einum eða öðrum hætti hafa
komið að knattspyrnuíþrótt-
inni á Ísafirði í gegnum tíðina.
Lið Krókspúka sigraði mót-
ið en fast á hæla þeim komu
Eyrarpúkar. Dokkupúkar og
Bakkapúkar ráku lestina. Á
meðfylgjandi mynd Sigurjóns
J. Sigurðssonar sést einn elsti
þátttakandinn á mótinu, Pétur
Sigurðsson, forseti Alþýðu-
sambands Vestfjarða sem er á
74 aldursári, sem varði markið
eins og ungur væri og sýndi
oft glæsileg tilþrif. Sjá einnig
frétt og myndir á bls. 14.
Glæsileg
tilþrif á
púkamóti
Ísafjarðarbær hefur gengið
frá kaupum á hlutafé í rækju-
verksmiðjunni Miðfelli á Ísa-
firði að nafnvirði 12 milljónir
króna. Hlutaféð var skulda-
jafnað upp í ógreidd auka-
vatnsgjöld fyrri ára. Heildar-
hlutfé í Miðfelli er að nafnvirði
72 milljónir króna og á Ísa-
fjarðarbær því 16,67% hlut.
Þetta kemur fram í minnis-
blaði Þóris Sveinssonar, fjár-
málastjóra Ísafjarðarbæjar, um
málið sem bæjarráð óskaði eft-
ir. Forsagan er sú að í júní í
fyrra samþykkti bæjarstjórn að
taka þátt í fjárhagslegri endur-
skipulagningu fyrirtækisins
með því að breyta hluta af
útistandandi skuldum þess í
hlutafé og með skuldabréfi
með veði í fasteign fyrirtækis-
ins að fjárhæð 6 milljónir.
Samtals 18 milljónir króna.
Fram kemur í minnisblaðinu
að Miðfell keypti rúmlega 561
þúsund tonn af vatni af Ísa-
fjarðarbæ árið 2004 og var út-
söluverðið 8,9 milljónir króna.
Í gildi eru afsláttarkjör til fyr-
irtækja sem kaupa meira en
200 þúsund tonn á ári og nem-
ur hann 25%. Miðfelli var því
veittur 2,2 milljóna króna
afsláttur af vatninu en það er
eina fyrirtækið í sveitarfélag-
inu sem notar meira en 200
þúsund tonn á ári.
Ísafjarðarbær eignast 16,67% hlut í Miðfelli
Rækjuverksmiðja Miðfells hf., á Ísafirði.
30.PM5 6.4.2017, 09:431