Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.07.2005, Page 2

Bæjarins besta - 27.07.2005, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 20052 Eigendur þýska ferðaþjónustufyrirtækisins Vögler’s Angelreisen og tveir ritstjórar sjóstangaveiðitímarita koma til Vestfjarða Á annað hundrað manns á biðlista eftir sjóstangaveiði frá Vestfjörðum Eigendur þýska ferðaþjón- ustufyrirtækisins Vögler’s Angelreisen og tveir ritstjórar sjóstangaveiðitímarita koma til Vestfjarða í lok júlí og munu gera kynningarmyndband um umhverfið. Tilgangurinn er að kynna sjóstangaveiðiferðir sem einkahlutafélagið Fjord Fishing ehf. mun bjóða í sam- starfi við Angelreisen. „Þeir eru að koma til að vega og meta aðstæður til sjó- stangaveiðiferða frá Tálkna- firði og Súðavík en einnig munu þeir kanna aðstæður á mörgum öðrum stöðum á Vestfjörðum. Um leið verður gert kynningarmyndband en nú þegar er farið að kynna ferðirnar þó formleg markaðs- setning sé ekki hafin“, segir Ólafur Sveinn Jóhannesson, framkvæmdastjóri Fjord Fish- ing. Gestirnir gista á Tálknafirði í fjóra daga og síðan í Súðavík í aðra fjóra og gera um leið úttekt á stöðunum. Sala á ferð- um til þessara tveggja staða hefst í haust en nú þegar hafa 200 manns skráð sig á biðlista. „Þó sala sé ekki hafin bendir það greinilega til að áhugi sé fyrir hendi fyrst svo margir eru komnir á biðlista,“ segir Ólafur. Áætlað er að fyrstu hóparnir komi vorið 2006. Einkahlutafélagið Fjord Fishing ehf. sem var stofnað á Ísafirði mun bjóða ferðirnar í samstarfi við Angelreisen. Markmiðið er að þróa þjónustu og vöru sem hafi sérstöðu á markaðnum bæði á Íslandi og í Evrópu. Unnið verður að því á næstu fimm árum að byggja upp þjónustueiningar í um fimm sveitarfélögum á svæðinu sem standast allar kröfur viðskipta- vinanna. Skilyrði fyrir því að verkefnið gangi upp er meðal annars að sveitarfélög á Vest- fjörðum sameinist um að byggja upp samhæfðar eining- ar á svæðinu. – thelma@bb.is Sjóstangveiðimenn koma til löndunar í Bolungarvík. Ljósm: Birgir Þór Halldórsson. Metþátttaka í Kambsmótinu í golfi sem haldið var á Tungudalsvelli á laugardag Gunnlaugur og Magdalena Þóris sigruðu Gunnlaugur Jónasson, úr Golfklúbbi Ísafjarðar, varð hlutskarpastur kylfinga í karla- flokki án forgjafar á opna Kambsmótinu í golfi sem haldið var á golfvellinum í Tungudal á laugardag. Gylfi Sigurðsson (GÍ) varð annar í karlaflokki á 76 höggum og næstur kom Gunnar Geir Gúst- afsson (GV) á 77 höggum. Sigurvegarinn í kvenna- flokki án forgjafar, Magdalena S. Þórisdóttir (GS), fór völlinn á 86 höggum. Næstar komu Hrafnhildur Eysteinsdóttir (GK) á 97 höggum og Arn- heiður Jónsdóttir (GKG) á 104 höggum. Að teknu tilliti til forgjafar varð Gylfi Sigurðsson hlut- skarpastur á 66 höggum, Gunnlaugur Jónasson varð annar á 68 höggum og Sverrir Halldórsson (GÍ) varð þriðji á 69 höggum. Í kvennaflokki sigraði Magdalena S. Þóris- dóttir að teknu tilliti til forgjaf- ar á 75 höggum. Bjarney Guð- mundsdóttir (GÍ) varð önnur á 78 höggum og Hjördís Bjarna- dóttir (GH) varð þriðja á 79 höggum. Nándarverðlaun á 6. braut hlaut Davíð Gunnlaugsson (GKJ). Nándarverðlaun á 15. braut hlaut Gunnar Geir Gúst- afsson (GV). Á 7. braut hlaut Jóhann Króknes Torfason (GÍ) nándarverðlaun og Loftur Gísli Jóhannsson (GÍ) hlaut nándarverðlaun á 16. braut. Gylfi Sigurðsson átti fæst pútt, eða 23, og lengsta upphafs- höggið á 13. braut átti Sigurður Fannar Grétarsson (GÍ). Kambsmótið var afar fjöl- mennt en 104 kylfingar tóku þátt sem er met hjá Golfklúbbi Ísafjarðar. Veitt voru vegleg verðlaun og þótti umgjörð keppnishaldsins með glæsi- legasta móti. – kristinn@bb.is Verðlaunahafar á mótinu. Ljósm: Páll Önundarson. Þakið ætlaði að rifna af húsinu... að lokum Hljómsveitin Grafík spil- aði á balli í Félagsheim- ilinu í Hnífsdal á laugar- dagskvöld í fyrsta sinn frá árinu 1987, eftir því sem næst verður komist. Hljóm- sveitin kom saman að nýju til tónleikahalds í fyrra- sumar en þykir ekki síður góð til að leika undir dansi og kom saman til þess á Nasa í Reykjavík fyrr á ár- inu. Má segja að hringnum hafi verið lokað nú þegar hljómsveitin hefur komið saman að nýju á sínu forna höfuðbóli í Hnífsdal. Óhætt er að fullyrða að miklar væntingar hafi verið bund- nar við þetta sögulega ball og voru þær uppfylltar og gott betur, að lokum. Andrea Gylfadóttir og Helgi Björnsson í ham. Mynd: Þorsteinn J. Tómasson. Lundaveiði í Vigur í Ísa- fjarðardjúpi hefur verið dræm það sem af er sumri að sögn Salvars Baldurssonar, bónda í Félagsbúinu. „Mér hefur fund- ist mun minna af lunda á eyj- unni en undanfarin ár og veiðin gengið frekar illa.“ Þá hefur vætutíð sumarsins dregið úr heimsóknum ferðamanna en Salvar segir að nú sé að rætast úr því. Að auki verður hey- skapur seinna á ferðinni í ár en Salvar segir þó ekki hægt að draga miklar ályktanir af því þar sem tíðin í fyrra hafi verið óvenju góð. Þannig er niðurstaðan að bændur eigi enn mikið undir duttlungum náttúrunnar, jafn- vel þó bætt hafi verið við nýj- um búgreinum eins og ferða- þjónustu. Vigur þykir forvitni- legur áfangastaður og þangað sækja bæði innlendir og er- lendir gestir. „Fólk kemur að- allega í eyjuna til að skoða náttúruna en gamli bærinn, myllan og lundinn vekja ávallt mikla athygli“, sagði Salvar. Lundaveiðin dræm í Vigur Vigur í Ísafjarðardjúpi. 30.PM5 6.4.2017, 09:432

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.