Bæjarins besta - 27.07.2005, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 2005 3
Sparisjóður Vestfirðinga minnir
á sankastalakeppnina í Holti í
Önundarfirði, laugardaginn 30.
júlí kl. 14:00. Allir velkomnir!
Vegleg
verðlaun
í boði!
Kristjánsbikarinn í knatt-
spyrnu var afhentur í fyrsta
sinn sigurliði Krókspúka á
Stóra púkamótinu á Ísafirði
sem fram fór um síðustu helgi.
Um er að ræða farandbikar
sem kemur í hlut sigurvegara
á púkamóti hverju sinni, en
eins og fram hefur komið
hyggja menn ótrauðir á stærra
og fjölmennara mót að ári.
Kristjánsbikarinn er gefinn af
Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru
hf. í Hnífsdal til minningar
um Kristján heitinn Jónasson,
sem var á sínum tíma einn af
haukunum í horni knattspyrn-
unnar á Ísafirði.
Stóra púkamótið í knatt-
spyrnu er ætlað öllum þeim
sem á einhvern hátt hafa komið
að störfum fyrir knattspyrnu-
íþróttina á Ísafirði. Allir eru
jafngildir hvort sem þeir hafa
verið leikmenn, þjálfarar,
stjórnarmenn eða dómarar, svo
einhver störf séu nefnd í kring-
um þessa íþrótt. Hins vegar
þurfa þeir a.m.k. að vera á
þrítugasta ári til að vera gjald-
gengir til keppni samkvæmt
reglum mótsins.
Fjöldi reyndra knattspyrnu-
kempa kom saman á gervigras-
vellinum á Ísafirði um síðustu
helgi til að taka þátt á fyrsta
púkamótinu, sem þótti heppn-
ast vonum framar.
– kristinn@bb.is
Kristjánsbikarinn af-
hentur í fyrsta sinn
Sigurlið Krókspúka með Kristjánsbikarinn. Mynd: Þorsteinn J. Tómasson.
Samkvæmt útboðsskilmál-
um vegna sjúkraflugs er ekki
gert ráð fyrir að flugvél verði
staðsett á Ísafirði yfir vetrar-
mánuðina eins og verið hefur
undanfarin ár. Gert er ráð fyrir
að miðstöð sjúkraflugs verði á
Akureyri. Þessi breyting er
gerð í samráði við starfsfólk
Heilbrigðisstofnunar Ísafjarð-
arbæjar að sögn starfsmanns
Heilbrigðisráðuneytisins.
Þessi tilhögun er í mótsögn
við nýgerðan Vaxtarsamning
Vestfjarða. Ríkiskaup hefur
fyrir hönd heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins
og Tryggingastofnunar ríkis-
ins auglýst útboð á sjúkra-
flugsþjónustu á Íslandi. Í út-
boðinu er landinu skipt í tvö
útboðssvæði, norðursvæði og
Vestmannaeyjasvæði. Hægt er
að bjóða í svæðin óháð hvort
öðru miðað við þau skilyrði
sem sett eru fram í útboðslýs-
ingu.
Samkvæmt útboðslýsingu
afmarkast norðursvæði af
beinni línu sem er dregin frá
botni Þorskafjarðar að botni
Hrútafjarðar, síðan að Hvera-
völlum, þá að Nýjadal og þar
næst að Höfn í Hornafirði og
allt svæðið fyrir norðan þá línu
er norðursvæði, þar með talin
Höfn í Hornafirði.
Í útboðslýsingu er skýrt tek-
ið fram að aðalmiðstöð sjúkra-
flugs skuli vera á Akureyri. „ Í
því felst að þar verður séð fyrir
sérstakri fylgd fagaðila og við-
búnaður sjúkrahússins við það
miðaður að unnt verði að taka
við sjúklingum úr sjúkraflugi“,
eins og segir í útboðsskilmál-
um. Af þessu má ráða að sjúkl-
ingar verði í auknum mæli
fluttir frá Vestfjörðum til
Akureyrar en ekki til Reykja-
víkur eins og nú er. Þó er sá
varnagli sleginn að „ sjúkl-
ingur skal fluttur til þess
sjúkrahúss (heilbrigðisstofn-
unar) sem tilgreind er í beiðni
heilbrigðisstarfsmanns um
sjúkraflug nema aðstæður
krefjist annars“, eins og segir
í útboðinu.
Frá því að Flugfélagið Ernir
hætti rekstri á Ísafirði hefur
ávallt verið staðsett sjúkra-
flugvél ásamt flugmönnum á
Ísafirði yfir vetrarmánuðina.
Nú verður þar breyting á því í
útboðsskilmálum segir „ norð-
ursvæði skal vera þjónað frá
Akureyri“ og er því ekki gert
ráð fyrir að hér verði staðsett
flugvél eins og áður.
Bætt flugþjónusta á Ísafirði
hefur um langan aldur verið
ofarlega á óskalista áhuga-
manna um eflingu byggðar á
Vestfjörðum. Skemmst er að
minnast nýgerðs Vaxtarsamn-
ings Vestfjarða. Í þeim samn-
ingi segir orðrétt: „Efla flug-
samgöngur á Vestfjörðum
með aukinni starfsemi flugfé-
lags eða útibús þess, allt árið
um kring. Miðstöð flugfélags-
ins yrði á Ísafirði.“ Þá segir:
„Markmiðið er að fá til Ísa-
fjarðar flugfélag eða útibú
þess, með starfsemi á svæðinu
allt árið um kring. Tengd yrðu
saman verkefni í sjúkra- og
ætlunarflugi á Vestfjörðum og
verkefni fyrir grænlensku
heimastjórnina.“ Í samningn-
um segir að ábyrgð á fram-
kvæmd þessarar tillögu beri
heilbrigðisráðuneyti og sam-
gönguráðuneyti „ í tengslum
við útboð ríkisins á sjúkra- og
áætlunarflugi árið 2005“ þ.e.
þess útboðs sem nú hefur verið
auglýst. Er því ljóst að ekki
hefur verið tekið tillit til þessa
ákvæðis í samningnum.
Sveinn Magnússon skrif-
stofustjóri í heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytinu staðfesti
í samtali við blaðið að ekki
væri gert ráð fyrir staðsetningu
sjúkraflugvélar á Ísafirði.
Hann segir að á Akureyri verði
staðsett fullkomin sjúkraflug-
vél sem hægt verði að manna
læknum og sjúkraliði og með
því verði hægt að veita betri
þjónustu en verið hefur.
Sveinn segir þessa breytingu
gerða í fullu samráði og með
samþykki starfsfólks Heil-
brigðisstofnunar Ísafjarðar-
bæjar.
Ekki náðist í Þröst Óskars-
son framkvæmdastjóra Heil-
brigðisstofnunarinnar við
vinnslu þessarar fréttar. Sam-
kvæmt útboðsskilmálum skal
hið nýja skipulag í sjúkraflugi
taka gildi 1. janúar 2006 og er
samningstíminn fimm ár með
möguleika á framlengingu til
tveggja ára. Gæti því umrædd
breyting, nái hún fram að
ganga, gilt til ársins 2013.
– hj@bb.is
Sjúkraflugi á Vestfjörðum sinnt frá Akureyri
Séð yfir Ísafjarðarflugvöll. Ljósmynd: Grétar Sigurðsson.
30.PM5 6.4.2017, 09:433