Bæjarins besta - 27.07.2005, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 20054
Líf og fjör hjá ungu knatt-
spyrnufólki í Bolungarvík
Rúmlega 200 keppendur
tóku þátt í Sparisjóðsmóti
yngri flokka í knattspyrnu
sem haldið var í Bolungar-
vík á laugardag. Þátttak-
endur komu frá flestum
þéttbýlisstöðum á Vest-
fjörðum auk keppenda frá
Blönduósi og Kópavogi.
Keppt var í sjö manna lið-
um, ýmist kynjaskiptum
eða blönduðum, auk þess
sem foreldrarnir fengu að
spreyta sig. Það var
Ungmennafélag Bolungar-
víkur sem stóð fyrir mót-
inu í samvinnu við Spari-
sjóð Bolungarvíkur, en
þess má geta að mót þetta
hefur verið haldið undir
merki Skeljungs undan-
farin ár. Veður til keppni
var gott, sól og blíða, og
nutu því viðstaddir veruna
á knattspyrnuvellinum í
Bolungarvík. Með-
fylgjandi myndir tók
Sigurjón J. Sigurðsson á
mótinu. Fleiri myndir
munu birtast í svip-
myndum á bb.is innan
tíðar.
30.PM5 6.4.2017, 09:434