Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.07.2005, Qupperneq 6

Bæjarins besta - 27.07.2005, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 20056 ritstjórnargrein Minnumst ábyrðgar okkar ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ orðrétt af netinu visir.is – Egill Helgason Nýríkidæmið Útgefandi: H-prent ehf., kt. 600690-1169, Sólgötu 9, 400 Ísafjörður, sími 456 4560, fax 456 4564 · Ritstjóri: Sigurjón J. Sigurðsson, sími 892 5362, bb@bb.is · Fréttastjóri: Hálfdán Bjarki Hálfdánsson, sími 863 7655, halfdan@bb.is – Blaðamenn: Halldór Jónsson, sími 892 2132 hj@bb.is – Thelma Hjaltadóttir, sími 849 8699, thelma@bb.is · Ritstjóri netútgáfu: Sigurjón J. Sigurðsson · Ljósmyndari: Halldór Sveinbjörnsson, sími 894 6125, halldor@bb.is · Ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson og Halldór Svein- björnsson · Lausasöluverð er kr. 250 eintakið með vsk. Áskriftarverð er kr. 215 eintakið. Veittur er afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega. Einnig sé greitt með greiðslukorti. ISSN 1670 - 021X „Gunnar Smári Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson hafa tekið að sér að vera guðspjallamenn nýju peningamannanna. Báðir skrifa þeir greinar í Fréttablaðið um helgina. Gunnar Smári er í raun alltaf að skrifa sömu greinina; að hér hafi allt verið ömurlegt áður en nýju bisnessmennirnir komu til að frelsa okkur. Lífið var leiðinlegt, fásinnið þrúgandi, stjórnvöld kúguðu okkur, fjölmiðlarnir voru handónýtir. Sigmundur Ernir skrifar um kjark og djörfung þessara manna – já, hvað þeir eru frábærir. Samfélagið sé rekið áfram af áræði. Hann ber þetta saman við hina stöðnuðu og letilegu Norðurlandabúa. Hann er sammála Gunnari Smára um að það sé gaman að búa í svona landi. DV hrósaði Björgólfi Thor Björgólfssyni sérstaklega fyrir að kaupa einkaþotu til að geta verið oftar með syni sínum. Sagði að aðrir feður ættu að taka hann sér til fyrirmyndar. Margir hljóta að fyllast af samviskubiti yfir þessu. En Björgólfur gæti auðvitað gengið lengra og hætt að vinna með öllu til að vera með barninu. Hann er líklega einn af fáum mönnum á Íslandi sem hefur efni á því.“ Árviss fylgifiskur sumarsins er umræðan um þjóðvegina, sem aldrei eru nægilega breiðir og beinir til að menn geti óheft- ir knúið stöðugt aflmeiri farartæki í líkingu við fyrirmyndir frá kappakstursbrautum og tölvuleikjum þar sem andstætt við veruleikann er alltaf hægt að byrja upp á nýtt þegar í óefni er komið; einbreiðu brýrnar, sem því miður birtast bílstjórum mörgum hverjum eins og langþráð endamark í langhlaupi sem viðkomandi verður, hvað sem allri skynsemi líður, að komast í gegnum á undan keppinautnum. Þegar allt kemur til alls eru vegirnir, sem vissulega mættu vera breiðari og beinni á köflum, og einbreiðu brýrnar, sem auðvitað ættu helst ekki að vera til, ekki helstu orskavaldar óhappa og slysa frekar en bifreiðin, sem í dag er óumdeilanlega þarfasti þjónninn og bíður heima á hlaði líkt og forverinn fyrr- um eftir því að húsbóndanum þóknist burtreiðin. Bifreiðin er ekki hættuleg fyrr en sá er sestur undir stýri, sem lítur á hana sem leikfang eða annað þaðan af verra og hættumeira og vegirnir verða þá fyrst of mjóir og brýrnar hættulegar, þegar hraði ökutækisins er kominn langt yfir öll mörk og skynsemi ekilsins er fokin út í veður og vind, hafi hún þá verið einhver fyrir. Þegar svo er komið er bifreiðin orðin hættulegt vopn, sem ómögulegt er að sjá fyrir afleiðingar af misnotkun. Framúrakstur er nokkuð sem á stundum verður ekki hjá komist. Ástríða mikils fjölda ökumanna, sem telja það nánast heilaga skyldu sína að yfirfæra hérahlutverkið af hlaupabraut- inni yfir á þjóðveginn, er á allt öðru plani og verður á engan hátt tengd hugtökunum þörf eða öryggi. Verslunarmannahelgin, ein mesta umferðarhelgi sumarsins, er rétt handan við hornið. Ef allt væri með felldu ætti umferðin um þessa helgi ekki að auka okkur ugg í brjósti öðrum dögum fremur. Aðgátar á vegum úti er alltaf þörf, þarf ekki verslunar- mannahelgi til. ,,Lát mig minnast ábyrgðar minnar er ég ek þessari bifreið“ er hluti bænar sem stundum er kölluð bílabænin. Þess vegna: Hvað sem líður bugðótta veginum og einbreiðu brúnni eða öðr- um þeim farartálmum sem á vegi okkar kunna að verða, þá er það ábyrgð okkar, sem sitjum undir stýri, sem mestu máli skiptir. Sé hún í fyrirrúmi eru hverfandi líkur á að tilhlökkunin og brosið við upphaf ferðar endi með sorg og brostnum vonum. Bæjarins besta óskar öllum vegfarendum fararheilla um verslunarmannahelgina og góðrar heimkomu. s.h. Nokkur fjölgun varð á skiln- aðarmálum í umdæmi sýslu- mannsins á Ísafirði á síðasta ári, en sambúðarslitum fækk- aði. Faðernis- og meðlagsmál- um fjölgaði verulega, einnig forsjár- og meðlagsmálum, sem og málum vegna mennt- unarframlags. Þetta kemur fram í nýútkominni ársskýrslu sýslumannsins á Ísafirði. Fram kemur að sifjamál krefjist tíma og vandvirkni enda séu miklir hagsmunir í húfi og mál oft vandmeðfarinn. Ef litið er yfir tölurnar má sjá að 21 nýtt skilnaðarmál var tekið til með- ferðar á árinu 2004. Það eru jafnmörg mál og voru tekin til meðferðar árið 2002 en árið 2003 komu aðeins 16 ný mál til meðferðar. Einungis 8 ný mál vegna sambúðarslita komu til meðferðar sýslu- manns sambanborið við 17 árið 2003 og 10 árið 2002. Átján ný faðernis- og með- lagsmál komu til kasta sýslu- mannsins árið 2004 saman- borið við 10 árið 2003 og 12 árið 2002. Þá komu 16 ný al- menn meðlagsmál inn á borð sýslumanns en þau voru 6 árið 2003 og 10 árið 2002. Loks tók sýslumaður 13 ný forsjár- og meðlagsmál til umfjöllunar samanborið við 8 árið 2003 og 6 árið 2002. Þannig fjölgar meðlagsmálum í heildina úr 28 árið 2002 og 24 árið 2003 í 47 árið 2004. Nýjum umgengnismálum fjölgaði einnig úr 6 árið 2002 og 9 árið 2003 í 12 árið 2004. Ný mál vegna menntunarfram- lags voru 7 og fjölgar úr 6 árið 2002 og 4 árið 2003. Málum samkvæmt 62 gr. barnalaga um framlög vegna ferminga og fleira fækkar úr 10 árið 2002 og 9 árið 2003 í 5 á árinu 2004. – kristinn@bb.is Faðernis- og meðlagsmálum fjölgar Þegar er búið að steypa annan grunn tveggja iðnaðar- húsa sem Vestfirskir verktakar byggja fyrir Súðavíkurhrepp, á Langeyri skammt innan við íbúabyggðina í Súðavík. Garð- ar Sigurgeirsson hjá Vestfirsk- um verktökum segir ætlunina að hefjast handa við næsta grunn á morgun og hann verði líklega steyptur eftir verslun- armannahelgi. Verkinu á að vera lokið 1. október og segir Garðar að það eigi að standast. „Þetta eru stálgrindarhús og það er búið að lofa okkur afhendingu á grindunum fljót- lega eftir verslunarmanna- helgi. Síðan koma einingarnar eitthvað seinna en við byrjum líklega að reisa húsin um miðjan mánuðinn. Það ætti að verða mikil breyting á ásýnd Langeyrarinnar þegar þessi hús verða kominn“, sagði Garðar Sigurgeirsson, hjá Vestfirskum verktökum. Iðnaðarsvæði hefur verið skipulagt á Langeyri og byggir hreppurinn húsin til að hýsa starfsemi frumkvöðla. – kristinn@bb.is Byrjað að steypa grunna iðnaðarhúsa á Langeyri Glöggir vegfarendur urðu varir við hóp leðurklæddra manna og kvenna sem þeystu um Ísafjörð á nágrenni á sí- gildum mótorhjólum á föstu- dag. Þar voru á ferð liðsmenn Vélhjólafjelagsins gamlingj- ana en það er félagskapur þeirra sem eiga mótorhjól sem eru 25 ára eða eldri. Rúmur tugur félagsmanna kom vestur til að mæta á aðalfund gaml- ingjanna. Margir líta á mótor- hjólareið eingöngu sem karla- sport en sú er ekki reyndin í gamlingjunum. Formaður fé- lagsins er Dagrún Jónsdóttir. Hún segir hefð fyrir því hjá gamlingjunum að hittast á mis- munandi stöðum og helst reyni þeir að fara erlendis a.m.k. annað hvert ár. Ísafjörður hafi orðið fyrir valinu að þessu sinni því þar búi einn félags- maðurinn, Þorbergur Kjart- ansson. Félagsmenn í gamlingjun- um eru rúmlega 40 en Dagrún segir þá eiga samtals í kringum 100 sígild mótorhjól. Nokkrir félagsmenn sem stilltu sér upp fyrir ljósmyndara blaðsins á föstudag voru á breskum Tri- umph, B.S.A. og Norton hjól- um og Harley Davidson. Þau yngstu eru árgerð 1975 en það elsta árgerð 1955. Dagrún segir marga félagsmenn eiga eldri hjól en það séu sparigripir og síður notaðir til ferðalaga. Vélhjóladrunur bergmála á milli fjallanna í Skutulsfirði Vígalegir „gamlingjar“ með Eyrarfjall í baksýn. Því miður fylgja vélarhljóðin ekki með myndinni. Frá vinstri: Einar „Marlboro“, Dagrún Jónsdóttir, Birgir Jónsson, Þorbergur Kjartansson og Gylfi Úranusson. 30.PM5 6.4.2017, 09:436

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.