Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.07.2005, Page 8

Bæjarins besta - 27.07.2005, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 20058 Tekur við kyndlinum með jákvæðu hugarfari – rætt við Albertínu Elíasdóttur, nýjan forstöðumann Gamla apóteksins á ÍsafirðiFyrir skömmu tók Albertína Friðbjörg Elí- asdóttir við stöðu forstöðumanns kaffi- og menningarhússins Gamla apóteksins á Ísa- firði af Halldóri Hlöðverssyni. Starfið mun taka nokkrum breytingum undir stjórn nýs forstöðumanns, en Ísafjarðarbær og Upplýs- ingaskrifstofa Evrópusambandsins fyrir ungt fólk (Eurodesk) undirrituðu nýlega samninga um að Gamla apótekið miðli upp- lýsingum til íslenskra ungmenna um Evr- ópusambandið og tækifæri fyrir ungt fólk innan þess. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Albertína öðlast mikla reynslu á ýmsum sviðum. Meðal ann- ars hefur hún starfað hjá Skóla- og fjölskylduskrifstofu Ísa- fjarðarbæjar og var í framboði til Aþingis í síðustu kosning- um. – Hafðirðu strax hug á því að sækja um þegar staða for- stöðumanns Gamla apóteksins var auglýst? „Nei, reyndar var ég tvístíg- andi þar sem ég hafði fengið inntöku í mastersnám í af- brotafræði í Englandi. En mig langaði til að spreyta mig á þessu starfi og vera áfram á Ísafirði hjá fjölskyldu og vin- um.“ – Taldirðu þig örugga um að fá starfið? „Ég taldi mig eiga mögu- leika þar sem ég hef menntun og reynslu sem hæfir starfinu. En ég var mjög óviss hvort ég fengi það enda var mjög hæft fólk sem sótti einnig um.“ – Hvað er það sem heillar þig við þetta starf? „Að fá tækifæri til að starfa með unglingum og hjálpa þeim að vinna úr hugmyndum sínum. Einnig er þessi Evr- óputenging mjög áhugaverð. Mörg tækifæri felast í verk- efninu Eurodesk (Evróvísir) fyrir norðanverða Vestfirði og landið í heild. Í raun er það einstakt tækifæri fyrir Ísafjarð- arbæ að upplýsingamiðstöðin sé á Ísafirði. Þarna höfum við beinan aðgang að upplýsing- um um Evrópusambandið sem ekki hefur verið til staðar áður, nema þá í gegnum Reykjavík. Því höfum við nú betra færi á því að nálgast styrki og önnur tækifæri sem eru í boði fyrir ungt fólk. Þetta er gríðarlega mikið starf og ég verð seint verkefna- laus, en um leið er það mjög spennandi. Ég hlakka til þegar Gamla apótekið verður opnað í haust þegar skólarnir byrja. Sumarið fer í að endurskipu- leggja starfið og undirbúa Evróvísi. Við erum meðal ann- ars að vinna að heimasíðu á íslensku, þar sem fram koma ýmsar upplýsingar sem tengj- ast Evróvísi. Í gegnum þessa síðu, eurodesk.org, er hægt að fá alls konar upplýsingar. Tök- um sem dæmi að mann langi til að fara á námskeið á Ítalíu. Þá gæti maður fengið allar helstu upplýsingar á þessari síðu – hvar er hægt að skrá sig, hvaða námskeið eru í boði, hvar hægt sé að búa og svo framvegis. Og ef ekki eru næg- ar upplýsingar að finna á síð- unni er hægt að hafa samband við mig og þá veiti ég ítarlegri upplýsingar. Einnig ef fólk hefur einhverjar spurningar sem varða Evrópusambandið og ungt fólk, þá er líklega ein- faldast að hafa bara samband við Gamla apótekið og við að- stoðum við að leita svara. Eurodesk-skrifstofur eru í 31 Evrópulandi og þeim er alltaf að fjölga. Verkefnið var stofnað í Skotlandi fyrir 15 árum og þá var það eingöngu fyrir Skota. Þeim fannst ekki vera tiltækar nægar upplýs- ingar um hvað Evrópusam- bandið hefði að bjóða ungu fólki, fengu styrk frá ESB og stofnuðu upplýsingaskrif- stofu. Verkefnið þótti svo sniðugt að það breiddist um allt Stóra-Bretland og í dag eru skrifstofur í nánast öllum löndum Evrópu. Hérlendis hefur engin slík skrifstofa verið til staðar frá því að hún var starfrækt hjá Hinu húsinu í Reykjavík en hætt var með hana fyrir um tveimur árum. Höfuðstöðvar verkefnisins á Íslandi verða því nú á Ísafirði og svo verða tengiliðir víða um land. Við vonumst til að geta hafið kynn- ingarherferð um landið í haust. Umsjón með Evróvísi er aðeins einn liður í starfi mínu. Núna fer mikill tími í undir- búning þess en það verður síð- an hluti af daglegri rútínu með hefðbundnu starfi Gamla apó- teksins sem vonandi verður enn öflugra en það hefur verið. Ég held að starfið muni verða feikilega skemmtilegt að kljást við en einnig gríðarlega erfitt. Segja má að ég beri ótta- blandna virðingu fyrir þessu verkefni en ég er meðvituð um það og tel mig vel til búna að takast á við það. Ég mun gera mitt besta. Hér hefur verið unnið mjög gott starf og ég tek við kyndlinum með því hugarfari að gera enn betur.“ Á fundi með fram- kvæmdastjórn ESB „Mér var boðið starfið, ég þáði það og daginn eftir byrj- aði ég að vinna. Nokkrum dög- um seinna fór ég á námskeið í Frakklandi um sjálfboðaliða- þjónustu Evrópusambandsins. Gamla apótekið hefur verið samþykkt sem móttökuverk- efni. Við megum því taka við sjálfboðaliðum til að vinna ýmis störf á svæðinu og stefn- um á að gera það í vetur. Sjálf- boðaliðaþjónusta ESB er fyrir fólk á aldrinum 18-25 ára sem getur farið og unnið sem sjálf- boðaliðar í Evrópu. Ferða- kostnaður og uppihald er borg- að og einnig fá þau vasapen- ing. Til dæmis var vinkona mín að vinna á barnaheimili í Rúmeníu og fannst það alveg meiriháttar. „Ungt fólk í Evr- ópu“ sem er styrkjaáætlun á vegum ESB sér um þessa þjón- ustu og svo landsskrifstofan í Hinu húsinu í Reykjavík. Um er að ræða 6-12 mánaða tíma- bil sem hægt er að fara en einnig boðið upp á styttri tíma fyrir fatlaða og aðra sem eru í erfiðum aðstæðum. Þetta er ekkert einskorðað við þá sem hafa auðveldar aðstæður til þess heldur getur það verið skemmtilegt tækifæri fyrir þá sem eiga við einhvers konar vandamál að stríða. Hægt er að nálgast allar upplýsingar um þetta verkefni hjá Ungu fólki í Evrópu og auðvitað í Gamla apótekinu. Að þessu námskeiði loknu 30.PM5 6.4.2017, 09:438

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.