Bæjarins besta


Bæjarins besta - 27.07.2005, Page 10

Bæjarins besta - 27.07.2005, Page 10
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 200510 Björn og Ingunn ásamt börnum sínum Baldri og Snjólaugu Ástu og Birtu Rós Þrastardóttur, vinkonu Snjólaugar. Fjölskylda úr Vigur hreiðra um sig í Tangagötunni á Ísa Björn Baldursson úr Vigur í Ísafjarðar- djúpi og kona hans Ingunn Ósk Sturludóttir eru nýflutt í land. Ingunn hafði búið í eynni í tæpan áratug en Björn hefur verið eyjar- skeggi alla sína tíð. Þau segja að það hafi verið erfið ákvörðun að flytja í land, en vistaskiptin hafi þó gengið betur en þau bjuggust við. Nú búa þau Björn og Ingunn í fallegu gömlu timburhúsi í Tangagötu á Ísafirði sem þau keyptu fljótlega eftir að þau fluttu upp á meginlandið. Ingunn segir þau hjón ljónheppin að hafa fundið svo fallegt hús á svo góðum stað í bænum og húskaupin hafi verið eitt af því sem hafi gengið betur en vonast var til við flutningana. Maður er í mikilli snertingu við náttúruna á svona stað, dýr og fugla, maður er í raun- inni einn með náttúrunni. Í þá daga voru allar aðstæður öðru- vísi en þær eru í dag, nú þegar komið er „sjálfrennandi raf- magn“ eins og faðir minn sag- ði, bryggja og almennilegt símasamband.“ – Var engin bryggja þegar þú varst krakki? „Nei, bryggjan kom ekki fyrr en árið 1975. Pabbi og Björn bróðir hans fóru þá fram á skektu á móti Fagranesinu og oft í misjöfnum veðrum. Þá héldum við systkinin niðri í okkur andanum og báðum til Guðs í hljóði. Veiturafmagnið kom ekki fyrr en 1984 og almennilegt símsamband ári síðar. Áður var símakapall út í eyju sem var slitinn reglulega þegar rækjubátarnir voru að draga fram og til baka í Djúpinu. Við bræðurnir, ásamt Hug- rúnu konu Salvars, tókum svo við búi af foreldrum okkar og föðurbróður 1985, þegar ég var átján ára gamall, og áratug síðar flutti Ingunn í Vigur.“ Fór ekki úr eyjunni til að ná sér í konu – Og hvernig kynntust þið hjónin? „Ég þurfti nú ekki að fara langt til að finna mér konu“, segir Björn, og Ingunn bætir við: „Í raun þurfti hann ekki að fara neitt því ég kom til hans. Þannig er að systir Björns og systir mín, sem nú er látin, voru mjög góðar vin- konur, og þegar Ragnheiður mágkona mín varð fertug bauð hún til veislu í Vigur. Systur minni var boðið og ég var eig- inlega hálfgerð boðflenna. Eftir það varð ekki aftur snúið, ég féll fyrir bóndasyninum unga og eyjunni grænu. Í kjölfar þessarar veislu vor- um við lengi í símasambandi og skiptumst á að fara í heim- sókn hvort til annars, hann til Reykjavíkur og ég í Vigur. Það varð síðan úr að ég flutti til hans tæpu ári síðar eða vorið 1995.“ Skrítið eftir á – Hvernig var fyrir þig, Reykvíking í húð og hár, að flytja í litla eyju í Ísafjarðar- djúpi? „Uppeldisaðstæður okkar Björns hefðu í raun varla getað verið ólíkari. Ég er borgarbarn í húð og hár og hann er alinn upp í lítilli eyju. Mér finnst stundum að Björn átti sig ekki á því sjálfur hvað hann ólst upp við sérstakar aðstæður, alla vega frá mínum sjónarhóli séð. Hann hefur til dæmis sagt mér frá því þegar hann þurfti að biðja pabba sinn að kveikja á ljósavélinni sérstaklega svo hann gæti horft á Stundina okkar. Þetta finnst borgarbarni skrýtið. Mér finnst magnað að hlusta á hann segja frá upp- vaxtarárum sínum. Hugsun hans og tenging við sögu og náttúru Vigur er ótrúlega sterk. Hjarta hans slær í takt við eyj- una hans. Þegar maður býr á svona stað í svo nánum tengslum við náttúruöflin, þá breytist eitt- hvað innra með manni. Það er ekki sjálfgefið að borgarbarn eins og ég fúnkeri við slíkar aðstæður, en ég gerði það, og það alveg ágætlega þó ég hefði aldrei verið í sveit áður. Ætli ég hafi bara ekki verið bóndi í fyrra lífi. Ég gekk í flest verk eins og ég hefði aldrei gert annað. Ég hef lent í aðstæðum þarna sem fólk trúir ekki að séu enn fyrir hendi í okkar þjóðfélagi, séu bara til í skáld- sögum. Ég get nefnt sem dæmi haustdag einn, þegar von var á mjólkurbátnum innan tíðar og fámennt var á bænum. Þá var gríðarlegur undirsjór á Bæjarvíkinni og ekki hægt að leggjast að bryggju, þannig að við Björn settum mjólkina á brúsa og fórum með Zodiacinn yfir í Brunnvík sem er norðan við bæinn, en þar var ekki eins órólegt. Þar var brúsunum komið fyrir nokkrum í einu og óð ég út í öldurótið og ýtti Birni frá og mátti horfa á eftir honum í þungum sjónum. Síðan varð ég að vera snögg til að draga hann upp á traktornum þegar hann kom til baka. Þetta voru einar fjórar ferðir sem þurfti að fara út í bátinn því ekki var hægt að taka mikið í einu í Tók við búi átján ára Björn er uppalinn í eyjunni grænu í Ísafjarðardjúpi. Að- spurður um það hvernig hafi verið að alast upp á lítilli eyju á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar segir hann að það hafi verið eins og samfelldur draumur. „Það var mjög sérstakt. 30.PM5 6.4.2017, 09:4310

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.